Morgunblaðið - 30.03.2017, Page 36
FIMMTUDAGUR 30. MARS 89. DAGUR ÁRSINS 2017
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 548 KR. ÁSKRIFT 5.950 KR. HELGARÁSKRIFT 3.715 KR. PDF Á MBL.IS 5.277 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.277 KR.
1. Bauð Heimir fría ferð til Dublin?
2. Ingó og Rakel innlyksa án matar
3. „Helmingurinn hérna inni vill…
4. Einstæð mynd af Heklugosi birt
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Hljómsveitin Skuggamyndir frá
Býsans leikur í kvöld kl. 21.30 á
Bryggjunni brugghúsi við Granda-
garð. Hljómsveitin mun leika hress-
andi blöndu tónlistar frá Balkanskag-
anum. Hljómsveitina skipa Haukur
Gröndal sem leikur á klarínett, Ásgeir
Ásgeirsson sem leikur á ýmis fram-
andleg strengjahljóðfæri, Þorgrímur
Jónsson á bassa og Erik Qvick á slag-
verk.
Skuggamyndir frá
Býsans á Bryggjunni
Tónlistarkonan
Elíza Newman
heldur tónleika
ásamt hljómsveit
í kvöld kl. 20 í
Græna herberginu
við Lækjargötu. Á
tónleikunum
verða leikin lög af
nýjustu breiðskífu
Elízu, Straumhvörf, auk eldri laga.
Tónlistarkonan Unnur Sara Eldjárn
kemur fram á undan Elízu og hitar
gesti upp.
Elíza heldur tónleika
í Græna herberginu
Á föstudag Hæg breytileg átt og úrkomulítið, en norðan eða norð-
austan strekkingur með éljum norðvestantil. Hiti 2 til 10 stig að
deginum, hlýjast syðst.
VEÐUR
FH nægir jafntefli gegn Sel-
fossi í lokaumferð Olís-deildar
karla í handbolta til að
verða deildarmeistari,
en þetta varð ljóst í
gærkvöld þegar liðið
vann Hauka í spenn-
andi Hafnarfjarðarslag í
næstsíðustu umferðinni.
Akureyringar eru enn á lífi
eftir dramatískt jafntefli
gegn ÍBV. Þeir mæta
Stjörnunni í hreinum úr-
slitaleik um 9. sæti. » 1, 2
Titill blasir við FH
og Akureyri á lífi
Íslenska kvennalandsliðið í hand-
bolta er komið niður í fjórða og
neðsta styrkleikaflokk fyrir und-
ankeppni Evrópumótsins 2018 sem
þýðir að liðið fær þrjú sterk lið
með sér í riðil. Dregið verður í riðla
í París þann 21. apríl en und-
ankeppnin hefst svo í október og lýk-
ur í júní á næsta ári. »1
EM-róðurinn verður
enn þyngri en áður
Keflavík vann sér inn heimavallarrétt
í úrslitakeppni Íslandsmóts kvenna í
körfubolta með því að enda í 2. sæti í
deildinni, sætinu fyrir ofan Skalla-
grím. Í fyrsta leik liðanna í undan-
úrslitunum í gær hrifsaði Skallagrím-
ur hins vegar réttinn til sín, ef svo má
segja, með 70:68-sigri. Liðin mætast
að nýju í Borgarnesi á sunnudag en
vinna þarf þrjá leiki. »4
Skallagrímur svipti
Keflavík réttinum
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Salvör Nordal, forstöðumaður Sið-
fræðistofnunar og lektor í heimspeki,
lætur ekki þar við sitja heldur stjórn-
ar einnig jógatímum árla dags í
íþróttahúsi Háskóla Íslands. Hún
kennir heimspeki og siðfræði og seg-
ir jógað falla vel að fræðunum og öf-
ugt.
Að loknu alþjóðlegu námi í Kun-
dalini jóga, sem haldið var í Jóga-
setrinu veturinn 2008-2009, fékk Sal-
vör réttindi til þess að kenna
Kundalini jóga, en áður hafði hún
stundað þar Kundalini jóga hjá Auði
Bjarnadóttur í nokkur ár. „Ég fór í
kennaranámið fyrst og fremst fyrir
sjálfa mig, því mér fannst það gera
mér gott að vera í jóga og Kundalini
jóga átti sérstaklega vel við mig,“
segir hún.
Eftir að Guðrún Jóhanna Guð-
mundsdóttir, sem var starfs-
mannastjóri Háskóla Íslands um
árabil, hafði lokið sama námi ákváðu
þær að bjóða upp á jógatíma á
morgnana í íþróttahúsi HÍ haustið
2015. Morgnarnir hafi orðið fyrir val-
inu því húsið er þétt setið yfir daginn.
Salvör segir að vegna annarra verk-
efna hafi hún ekki getað bundið sig
við jógakennslu fyrr en hún fékk
samstarfskonu. Þær skiptist á að
kenna. „Við byrjuðum einu sinni í
viku og höfum smám saman bætt við
tímum, erum nú með þrjá tíma viku-
lega,“ segir hún. Kennarar og annað
starfsfólk hefur verið í meirihluta í
tímunum en Salvör segir að stærri
hópur nemenda hafi sýnt jóganu
áhuga og því voni þær að fljótlega
verði einnig hægt að bjóða upp á
tíma síðdegis til þess að mæta óskum
stúdentanna.
Góð heilsurækt
Auk góðrar hreyfingar og lík-
amlega styrkjandi æfinga segir Sal-
vör að töluverð áhersla sé á hug-
leiðslu og slökun í jóga. „Þessir tímar
eru styrkjandi fyrir alla og ekki síst
unga fólkið.“ Hún segist sjálf alltaf
hafa stundað mikla hreyfingu og
langt sé síðan hún hafi farið í sinn
fyrsta jógatíma. „Þá fann ég að jóga
er mjög góð heilsurækt, en það sem
laðaði mig sérstaklega að Kundalini
jóga er áherslan á hugleiðslu. And-
legi þátturinn er mjög mikilvægur og
styrkjandi í jóganu og það eykur ein-
beitingu og styrkir mig andlega. Jóg-
að slær á eirðarleysi og þegar maður
finnur góð áhrif sækir maður í að
halda áfram.“
Salvör segir að tengingar í jóga-
fræðunum við heimspekilegar spurn-
ingar séu áhugaverðar og í heim-
speki megi greina vaxandi áhuga á
hugmyndum, sem tengjast jóga. Hjá
Forn-Grikkjum hafi heimspekiskólar
enda verið með líkamsrækt sem hafi
tengt saman heilbrigða sál og hraust-
an líkama. „Þessar tengingar eru
spennandi og til dæmis eru margir
snertifletir milli jógaheimspekinnar
og stóuspekinnar sem hefur alltaf
talað sérstaklega til mín,“ segir hún.
„Við erum bæði andlegar verur og
líkamlegar og það er gott að minna
sig á það í þessum jógatímum því
umfram allt þjálfar jóga tengingu
milli líkama og sálar.“
Tengir líkama og sál
Salvör: Tengingar í jógafræðum við heimspekilegar spurningar áhugaverðar
Ljósmyndir/Kristinn Ingvarsson
Kundalini jóga Salvör Nordal er ekki aðeins forstöðumaður Siðfræðistofnunar og lektor í heimspeki við Háskóla Íslands heldur kennir einnig jóga.
Fræðimaður Salvör Nordal.
Anita Sauckel, nýdoktor við Há-
skóla Íslands, heldur fyrirlestur um
klæðaburð og tísku í Íslendinga-
sögum í dag kl. 16.30 í
stofu 101 í Odda. Í
rannsóknum sínum
fæst Sauckel við
Íslendingasögur,
frásagnarlist,
klæðaburð og
klæðagerð á mið-
öldum og forn-
leifafræði.
Klæðaburður og tíska
í Íslendingasögunum
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Víða austan og norðaustan 5-13 m/s en 15-
23 syðst og léttir víða til vestanlands en rigning eða slydda um
landið austanvert. Hiti 2 til 11 stig, hlýjast á Suðurlandi.