Morgunblaðið - 27.04.2017, Side 46

Morgunblaðið - 27.04.2017, Side 46
46 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 2017 INDLAND Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Konurnar á ekknaheimilinu Var- anasi Durga Ashram láta vel af sér. Þar fá rúmlega tuttugu aldraðar ekkjur víðsvegar að úr Indlandi húsaskjól, mat og þjónustu prests. Þó að þær séu lánsamari en ekkj- urnar sem þurfa að lifa á betli eða vændi í fátækrahverfum þessarar helgu borgar hindúa á bakka Gang- es-fljóts hafa þær átt erfiða ævi, brottreknar af heimilinum sínum og sniðgengnar af samfélaginu. „Maðurinn minn var drykkju- maður. Eftir að hann dó tók bróðir hans landið okkar og rak mig í burtu. Þetta voru eignir föður míns. Þau hótuðu að drepa mig. Ég kom hingað til Varanasi til að fá betri örlög,“ segir Meenavshi Bhattac- hapaya, sextug ekkja sem bjó í ná- grenni Mumbai, stórborgarinnar í Indlandi. Hún hefur verið ekkja í tuttugu ár en dvalið síðustu tíu árin á þessu ekknaheimili með andlegri þjónustu (ashram) í Varanasi. Taldar færa ógæfu Indverjar glíma enn við forn og úrelt viðhorf til ekkna, sérstaklega á vanþróaðri svæðunum í norður- hluta landsins. Þær fá á sig skömm- ina af andláti eiginmanna sinna og er óttast að þær færi fjölskyldunum ógæfu. Eru oft reknar af heimilum sínum og síðan algerlega snið- gengnar af samfélaginu. Þurfa að lifa í útskúfun og fyrirlitningu það sem eftir er. Stundum er farið með ekkjurnar til Varanasi eða annarra helgustu borga hindúa og þær skildar eftir hjálparlausar á götuhorni eða við ekknaathvörf sem eru mörg í Ind- landi. Þær taka stundum sjálfar á sig skömmina af dauða eiginmanna sinna og yfirgefa heimilin og enda þá oft í helgu borgunum. Trúa hindúar því að þeir sem deyja þar fái lausn frá hringrás endurholdg- unarinnar og komist í alsæluna. Fátækrahverfin á pílagrímasvæð- inu í Varanasi, á bökkum Ganges- fljóts, eru hins vegar ömurleg. Þar bíður fátt annað en betl eða að lenda í klóm glæpahringja sem selja þær í vændi sem greiðslu fyrir húsaskjól. Erfitt er að skilja hvers vegna ekkjur eru þannig útskúfaðar úr samfélaginu eða útskúfa sér jafnvel sjálfar. Það á sér langa sögu og tengist að einhverju leyti lakri stöðu kvenna í samfélaginu, miðað við vestræn gildi. Áður fyrr voru ekkjur oft brenndar, að eigin ósk eða fjölskyldunnar, þegar líkams- leifar eiginmanna þeirra voru brenndar. Bretar bönnuðu þetta á nýlendutímanum í byrjun nítjándu aldar en indversk lög bönnuðu brennurnar ekki fyrr en á níunda tug aldarinnar. Einstaka tilvik voru um slíkar brennur fram eftir tutt- ugustu öldinni. Ekkjur í áratugi Stjórnvöld og frjáls hjálparsam- tök hafa verið að reyna að breyta stöðu ekkna og viðhorfum sam- félagsins. Fjöldi athvarfa er í helgu borgunum og víðar. Þar fá þær að- stoð, sums staðar aðeins húsaskjól en annars staðar fæði og jafnvel þjónustu prests við bænir eins og á heimilinu sem ég heimsótti með ferðafélögum mínum á dögunum. Sums staðar er yngri ekkjum veitt starfsþjálfun eða menntun og börn- um þeirra hjálpað til náms. Talið er að tugir þúsunda ekkna séu í Varanasi og ef til vill um 12 þúsund á aldrinum 20 til 45 ára. Fjöldi ungra ekkna stafar af ótíma- bærum dauða karla vegna að- stæðna við vinnu og sjúkdóma en einnig af því að í landinu hafa tíðk- ast barnagiftingar þar sem ungar stúlkur eru gjarnan giftar mun eldri karlmönnum. Konurnar geta því lifað í marga tugi ára sem ekkj- ur. Anuj Singh, forstjóri heimilisins í Varanasi, segir að yngri ekkjurnar komi vissulega á heimilið til að fá mat og húsaskjól í styttri tíma en þær haldi svo á pílagrímasvæðið. Þar sé ekki gott að vera. Þær eldri dvelji á heimilinu til dauðadags. Hér er gott að vera „Það eru mest múslimar í Pak- istan og ekkert pláss fyrir hindúa. Ég kom hingað þegar eiginmaður minn dó,“ segir Pushpa, öldruð ekkja sem fæddist í Pakistan og bjó þar þangað til eiginmaður hennar dó fyrir 22 árum. „Ég kom hingað til að lifa góðu lífi. Hér er gott að vera,“ segir hún. Pushpa segist engin tengsl hafa við fjölskyldu sína enda enginn lifandi af hennar nán- ustu ættingjum. Pushpa segir að lítið annað sé um að vera á heimilinu en að biðjast fyrir. Það geri konurnar allan dag- inn undir stjórn prests heimilisins. Bhattachapaya sem fyrr er vitnað til segir að heimilið sé góður staður fyrir konur sem hvergi annars stað- ar fái hjálp. „Kona getur ekki verið ein á götu, sérstaklega ekki á nótt- unni. Ég þakka fyrir að vera ekki þar. Konur vilja öruggt skjól, þess vegna er gott að vera hér.“ Varanasi Durga Ashram er kost- að með frjálsum framlögum hjálp- arsamtaka og einstaklinga. Nú er verið að safna fyrir nýju húsi og á þá að vera hægt að hýsa 50 konur. Ljóst er að ekki er vanþörf á. Klæddar í hvítt Einkennisklæðnaður ekkna í Ind- landi er hvítur sarí, þeim er ekki ætlað að njóta litanna eins og gift- um konum, og er gert að neita sér um allar lífsnautnir. Þær máttu lengi vel ekki taka þátt í Holi, ár- legri trúarsamkomu hindúa þar sem litagleðin er ríkjandi, eða öðr- um hátíðum. Þær þóttu óheillakrák- ur þar eins og annars staðar. Hjálparsamtök sem vinna í þágu ekkna hafa síðustu ár staðið fyrir þátttöku þeirra í trúarhátíðinni til að reyna að breyta viðhorfum sam- félagsins. Þær fara niður að Gang- es-fljótinu, fá yfir sig rauðan lit og dansa eins og frjálsar manneskjur. Útskúfun ekknanna  Margar indverskar konur reknar frá heimilum sínum eftir dauða eiginmannanna og sniðgengnar af samfélaginu  Stjórnvöld og hjálparsamtök reyna að breyta viðhorfum til ekkna í þjóðfélaginu Ekki pláss Pushpa er öldruð ekkja frá Pakistan. Þar var ekki pláss fyr- ir hindúatrúað fólk eftir dauða eig- inmanns hennar. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Ekkjur Rúmlega tuttugu ekkjur búa þröngt í ekknaheimili í Varanasi. Það er betra en gatan. Yngri konur úr nágrenninu hjálpa til við matseld og aðhlynningu. Rekin að heiman Meenavshi Bhattachapaya, sextug ekkja sem bjó í ná- grenni Mumbai, er viðræðugóð og glöð þrátt fyrir að fjölskyldan hafi ekki komið vel fram við hana eftir dauða eiginmannsins. Sportgleraugu Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 www.eyesland.is Bolle Bolt Golf kr. 26.790,-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.