Morgunblaðið - 27.04.2017, Qupperneq 104
104 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 2017
Barnamenningarhátíð á Seltjarnarnesi hefst í dag og
leggur meginþorri grunnskólabarna á Nesinu henni lið.
Hátíðin fer fram á Eiðistorgi, í bókasafninu og Gallerí
Gróttu með þátttöku um eitt hundrað barna á Nesinu
sem skemmta gestum, sjá um skreytingar eða leggja há-
tíðinni lið á einn eða annan hátt. Eiðistorg verður fært í
hátíðarbúning og forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannes-
son, setur hátíðina formlega kl. 17. Kynnir verður Sigyn
Blöndal, umsjónarmaður Stundarinnar okkar á RÚV, en
hátíðardagurinn hefst með opnun sýningarinnar Þetta
vilja börnin sjá! í Gallerí Gróttu kl. 10. Á henni verða
myndir eftir 24 myndskreyta úr 32 barnabókum sem
komu út í fyrra.
Af viðburðum hátíðarinnar má nefna vísindasmiðju Háskóla Íslands og
freestyle-dansarar úr Valhúsaskóla sýna dans.
Barnamenningarhátíð á Nesinu
Guðni Th.
Jóhannesson
Rithöfundasamband Íslands og
Landsbókasafn Íslands – Háskóla-
bókasafn hafa stofnað til nýrra
ljóðabókaverðlauna sem bera heit-
ið Maístjarnan og verða þau veitt
árlega héðan af.
Fyrstu tilnefningar til Maí-
stjörnunnar voru kynntar við at-
höfn í Gunnarshúsi í gær. Eyþór
Árnason er tilnefndur fyrir ljóða-
bók sína Ég sef ekki í draumheld-
um náttfötum sem Veröld gefur út,
Magnús Sigurðsson fyrir Veröld
hlý og góð: ljóð og prósar sem
Dimma gefur út, Sigurður Pálsson
fyrir Ljóð muna rödd sem JPV gef-
ur út, Sigurlín Bjarney Gísladóttir
fyrir Tungusól og nokkrir dagar í
maí sem Mál og menning gefur út
og Þórdís Gísladóttir fyrir Óvissu-
stig sem forlagið Benedikt gefur
út.
Gjaldgengar til verðlaunanna
voru allar útgefnar íslenskar ljóða-
bækur frá í fyrra sem skilað var til
Landsbókasafns Íslands – Háskóla-
bókasafns og fékk dómnefnd þær
til umfjöllunar en hana skipa Ár-
mann Jakobsson fyrir hönd Rithöf-
undasambandsins og Áslaug Agn-
arsdóttir fyrir hönd
Landsbókasafnsins.
Verðlaunin verða veitt í fyrsta
sinn í Þjóðarbókhlöðunni 18. maí, á
degi ljóðsins, og er verðlaunafé
350 þúsund krónur.
Ljóðskáldin Frá afhendingu tilnefninga í Gunnarshúsi í gær.
Fimm tilnefnd til nýrra
ljóðabókaverðlauna
Ljósmynd/Ólafur J. Engilbertsson
Rússneski fiðluleikarinn Boris
Belkin leikur fiðlukonsert Max
Bruch undir stjórn Vladimirs
Ashkenazy á tónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands í Eldborg
Hörpu í kvöld kl. 19.30.
„Boris Belkin er heimskunnur
fyrir tilfinningaþrunginn fiðluleik
af „rússneska skólanum“. Hann
kom fyrst fram opinberlega aðeins
sjö ára gamall og hreppti gullið í
fiðlukeppni Sovétríkjanna 1973, en
flýði skömmu síðar til Vestur-
landa. Belkin hefur átt gifturíkt
samstarf við Vladimir Ashkenazy
um langt árabil, þeir hafa hljóð-
ritað geisladiska saman og farið í
tónleikaferðir víða um heim,“ seg-
ir í tilkynningu frá hljómsveitinni.
„Annar náinn vinur og sam-
starfsmaður Ashkenazys var ís-
lenska tónskáldið Þorkell Sigur-
björnsson og á tónleikunum
hljómar Mistur frá 1972, sem er
eitt helsta hljómsveitarverk hans.
Lokapunkt tónleikanna myndar
svo hin stórfenglega fjórða sin-
fónía Brahms, sem er þykkt og
safaríkt verk, innblásið af barokk-
formum og ekki síst tónlist Bachs.
Með þessum flutningi lýkur
„Brahms-hring“ Ashkenazys, en
hann hefur nú stjórnað öllum sin-
fóníum meistarans á fjórum árum
með Sinfóníuhljómsveit Íslands.“
Að vanda verður boðið upp á
tónleikakynningu í Hörpuhorni kl.
18.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Innlifun Vladimir Ashkenazy stjórnar sinfóníutónleikum í kvöld í Eldborg.
Ashkenazy lokar
„Brahms-hringnum“
Going in Style 12
Þrír eldri borgarar, sem
skrimta á eftirlaununum, og
neyðast jafnvel stundum til að
borða hundamat, ákveða að
nú sé nóg komið. Þeir ákveða
því að ræna banka.
Metacritic 50/100
IMDb 6,8/10
Sambíóin Álfabakka 17.50,
20.00, 22.10
Sambíóin Egilshöll 17.50, 20.00, 22.15
Sambíóin Kringlunni 20.00, 22.10
Frá ströndum Kúbu og gatna New York yfir á ísi-
lagðar sléttur Barentshafsins, mun hópurinn
ferðast heimshornana milli til að koma í veg fyr-
ir gífurlegar hamfarir á heimsvísu.
Metacritic 61/100
IMDb 8,1/10
Laugarásbíó 18.00, 21.00
Sambíóin Álfabakka 17.10, 20.00, 22.45
Sambíóin Egilshöll 17.20, 19.40, 22.20
Sambíóin Keflavík 20.00, 22.10
Smárabíó 16.40, 17.00, 19.30, 19.50, 22.20, 22.40
Háskólabíó 21.00
Borgarbíó Akureyri 17.20, 20.00, 22.40
Fast and Furious 8 12
Beauty and the Beast
Ævintýrið um prins í álögum sem verður ekki aflétt nema
stúlka verði ástfangin af honum áður en rós sem geymd
er í höll hans deyr.
Bönnuð börnum yngri
en 9 ára.
Metacritic 65/100
IMDb 7,8/10
Sambíóin Álfabakka
17.10, 20.00
Sambíóin Egilshöll
17.20
Sambíóin Kringlunni
17.20
Unforgettable 16
Eftir skilnað við eiginmann
sinn David hefur Tessa borið
þá von í brjósti að hann muni
snúa til hennar og dóttur
þeirra aftur.
Sambíóin Álfabakka 17.50,
20.00, 22.10
Sambíóin Egilshöll 20.00,
22.10
Sambíóin Keflavík 20.00,
22.45
Ghost in the Shell 12
Metacritic 53/100
IMDb 6,9/10
Sambíóin Álfabakka 20.00,
22.45
Sambíóin Kringlunni
20.00, 22.30
Hidden Figures Metacritic 74/100
IMDb 7,9/10
Háskólabíó 21.10
Get Out 16
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 83/100
IMDb 8,3/10
Laugarásbíó 20.00, 22.15
The Shack 12
Metacritic 32/100
IMDb 6,5/10
Sambíóin Kringlunni 17.20,
20.00, 22.40
Undirheimar 16
IMDb 8,0/10
Laugarásbíó 20.00, 22.25
Háskólabíó 21.00
Borgarbíó Akureyri 20.00,
22.10
Hjartasteinn
Morgunblaðið bbbbm
IMDb 7,9/10
Háskólabíó 18.00, 20.50
Bíó Paradís 20.00
A Monster Calls 12
Metacritic 76/100
IMDb 7,5/10
Sambíóin Álfabakka 17.40
Chips 16
Metacritic 28/100
IMDb 5,6/10
Sambíóin Egilshöll 20.00
Kong: Skull Island 12
Metacritic 63/100
IMDb 7,5/10
Sambíóin Álfabakka 22.45
Life 16
Morgunblaðið bbbnn
Metacritic 54/100
IMDb 7,0/10
Smárabíó 20.00, 22.20
Logan 16
Metacritic 75/100
IMDb 9,0/10
Smárabíó 22.40
La La Land Morgunblaðið bbbbb
Metacritic 93/100
IMDb 8,5/10
Sambíóin Kringlunni 17.20
Power Rangers 12
Fimm ungmenni komast þá
að því að þau eru ný kynslóð
af ower Rangers.
Metacritic 44/100
IMDb 7,0/10
Smárabíó 17.20, 22.10
Stubbur stjóri Sjö ára drengur verður af-
brýðisamur út í ofvitann, litla
bróður sinn.
Metacritic 50/100
IMDb 6,5/10
Laugarásbíó 17.50
Sambíóin Egilshöll 17.30
Smárabíó 15.15, 17.30,
20.00
Háskólabíó 17.50, 18.00
Borgarbíó Akureyri 17.30
Dýrin í Hálsaskógi Klassíska ævintýrið eftir
Thorbjörn Egner.
Morgunblaðið bbbbn
IMDb 7,1/10
Laugarásbíó 18.00
Smárabíó 15.30
Strumparnir:
Gleymda þorpið Metacritic 45/100
IMDb 5,9/10
Smárabíó 15.15, 17.30
Stóra stökkið IMDb 6,9/10
Smárabíó 15.10
Spólað yfir hafið
Morgunblaðið bbbbn
Bíó Paradís 18.00
I, Daniel Blake
Metacritic 78/100
IMDb 8,0/10
Bíó Paradís 22.00
Moonlight 12
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 99/100
IMDb 8,2/10
Bíó Paradís 22.30
Velkomin til Noregs
Petter Primus er maður með
stóra drauma, sem verða
sjaldnast að veruleika.
IMDb 6,3/10
Bíó Paradís 18.00, 20.00
Souvenir
IMDb 6,5/10
Bíó Paradís 20.00
Afterimage
Bíó Paradís 18.00, 22.00
Genius
Metacritic 56/100
IMDb 6,5/10
Bíó Paradís 20.00
Kvikmyndir
bíóhúsannambl.is/bio
Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna