Morgunblaðið - 25.04.2017, Side 8

Morgunblaðið - 25.04.2017, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. APRÍL 2017 Eitt af því sem helst greinir vest-ræn réttarríki, og þau ríki sem tekið hafa upp svipuð viðhorf til frelsis einstaklingssins, frá öðrum ríkjum er að almenningur í þessum ríkjum hefur rétt til að tjá sig um hvaðeina sem hon- um liggur á hjarta.    Í grundvallar-lögum þessara ríkja eru ákvæði um að fólk hafi þennan rétt og í því sambandi er talað um tjáningar- frelsi.    Þetta er eitt af því sem frjálsirfjölmiðlar byggja tilveru sína á, enda væri hugtakið frjáls fjölmiðill lítils virði ef ríkið ætlaði sér að setja nákvæmar reglur um hvað má segja og hvað ekki.    Engu að síður eru settar reglurum að ekki megi viðhafa meið- yrði, en slíkar reglur þarf að túlka nægilega þröngt til að réttindin til tjáningar hafi eitthvert gildi.    Hér á landi hefur að undanförnureynt á tjáningarfrelsið. Hið opinbera hefur ákært tvo menn fyrir hatursorðræðu en tapað í bæði skiptin fyrir héraðsdómi.    Nauðsynlegt er að hafa í huga aðfólk þarf ekki að vera hlynnt því sem menn halda fram til að styðja það að þeir fái að tjá sig. Raunar er það svo að vörnin sem tjáningarfrelsið nýtur er einmitt sett svo að menn geti tjáð ólíkar, óvin- sælar og jafnvel ógeðfelldar skoð- anir.    Það þarf ekki að verja vinsælar ogóumdeildar skoðanir, en það er stutt í skoðanakúgun og alræði ef þessar óvinsælu eru bannaðar. Vinsælar skoðanir þarf ekki að verja STAKSTEINAR Eyjasandi 2, 850 Hella - Víkurhvarfi 6, 203 Kópavogi, sími 488 9000 - samverk.is MÁLAÐ GLER Málað gler er falleg klæðning á veggi, innréttingar, skápa og margt fleira innandyra. ÞEKKING - GÆÐI - ÞJÓNUSTA SÉRSMÍÐUM ÚR GLERI Veður víða um heim 24.4., kl. 18.00 Reykjavík 1 léttskýjað Bolungarvík 2 skýjað Akureyri 2 heiðskírt Nuuk 2 rigning Þórshöfn 4 skýjað Ósló 1 alskýjað Kaupmannahöfn 8 skýjað Stokkhólmur 3 rigning Helsinki 6 skúrir Lúxemborg 15 heiðskírt Brussel 14 heiðskírt Dublin 8 skýjað Glasgow 6 léttskýjað London 11 skúrir París 17 heiðskírt Amsterdam 11 súld Hamborg 9 skúrir Berlín 13 heiðskírt Vín 15 heiðskírt Moskva 4 léttskýjað Algarve 19 léttskýjað Madríd 23 skúrir Barcelona 19 heiðskírt Mallorca 21 léttskýjað Róm 18 heiðskírt Aþena 18 léttskýjað Winnipeg 1 snjókoma Montreal 3 skýjað New York 13 alskýjað Chicago 16 léttskýjað Orlando 24 rigning Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 25. apríl Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 5:19 21:33 ÍSAFJÖRÐUR 5:11 21:51 SIGLUFJÖRÐUR 4:54 21:34 DJÚPIVOGUR 4:46 21:06 Sveit Jóns Baldurssonar vann yfir- burðasigur á Íslandsmótinu í brids, sem fór fram um síðustu helgi. Fjöru- tíu sveitir hófu keppni í mótinu en tólf komust í úrslitakeppnina, sem hófst sl. fimmtudag. Fjórar sveitir kepptu loks um Íslandsmeistaratitilinn á sunnudag. Sveit Jóns Baldurssonar tók strax forystuna í úrslitakeppninni og þegar upp var staðið hafði sveitin fengið 206,11 stig. Sveit Unaóss end- aði með 153,12 stig og sveit Grant Thornton varð þriðja með 145,73 stig. Sigursveitina skipuðu, auk Jóns, Sig- urbjörn Haraldsson, Aðalsteinn Jörg- ensen, Birkir Jón Jónsson, Sverrir Ármannsson og Steinar Jónsson. Í sveit Unaóss spiluðu Þorsteinn Bergsson, Björn Snorrason, Pálmi Kristmannsson, Magnús Ásgrímsson, Stefán Kristmannsson og Guttormur Kristmannsson. Yfirburðasigur Jóns og félaga  Austfirðingar í 2. sæti í bridsinu Íslandsmeistarar Jafet Ólafsson, forseti Bridgesambandsins, Aðalsteinn Jörgensen, Jón Baldursson, Sigurbjörn Haraldsson og Birkir Jón Jónsson. Fjörutíu prósent nemenda við Grunnskóla Fjallabyggðar mættu ekki í skólann í gær, en af 205 nemend- um voru 122 mættir, sam- kvæmt upplýs- ingum frá skól- anum. Á Ólafs- firði mættu 34 af 91 nemanda, en 88 á Siglufirði af 114. Hluti forfallanna átti sér eðlilegar skýringar, en þau eru þó meiri en venjulegt getur talist. Má það rekja til mótmæla foreldra barna í þeim hluta grunnskólans sem starfræktur er á Ólafsfirði. Héldu þeir börnum sínum heima til að mótmæla þeirri ákvörðun sveitarstjórnarinnar að færa 1.-5. bekk yfir til Siglufjarðar næsta haust, á meðan kennsla nem- enda í 6. til 10. bekk mun fara fram á Ólafsfirði. Börnin munu þurfa að ferðast með rútu 17 km leið eða um 15 til 20 mín- útur. Skiptingunni er þannig háttað í dag að kennsla í 1.-4. bekk fer fram á báðum stöðum, 5.-7. bekk-ur er á Ólafsfirði en 8.-10. bekkur á Siglu- firði. Fjallabyggð For- eldrar óánægðir. 40% mættu ekki í skóla  Foreldrar í Fjalla- byggð mótmæltu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.