Morgunblaðið - 25.04.2017, Page 11

Morgunblaðið - 25.04.2017, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. APRÍL 2017 Hringbraut-Fjölmiðlar ehf. | Eiðistorgi 17 | 170 Seltjarnarnesi | www.hringbraut.is | Sími +354 561 3100 Missið ekki af áhugaverðum þætti um starfsemi Margt Smátt og og viðtali við Árna Esra Einarsson, eiganda fyrirtækisins. Hringbraut næst á rásum 7 (Síminn) og 25 (Vodafone) ATVINNULÍFIÐ ÁdagskráHringbrautar í kvöld kl. 20.00 Heimsókn til Margt Smátt í þættinum Atvinnulífið sem er á dagskrá Hringbrautar kl. 20.00 í kvöld • Mikið úrval af fatnaði og gjafavöru til merkinga fyrir fyrirtæki og félagasamtök • Nýjar vélar í framleiðslusal sem auka afköst og gæði • Merkingar fyrir fjölda íþróttafélaga ásamt Color Run, Reykjavíkur Maraþon og GSÍ • Silkiprentun, ísaumur, púðaprentun og transfer prentun Str. S-XXL Bæjarlind 6, sími 554 7030 Við erum á facebook Bolir Verð kr. 4.900 Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Síðdegis í gær höfðu 42 umsagnir um fjármálaáætlun ríkisstjórnarinn- ar til næstu fimm ára borist til fjár- laganefndar Alþingis, langflestar frá ferðaþjónustufyrirtækjum og einstaklingum. Hörð gagnrýni kemur fram hjá ferðaþjónustufyrirtækjunum á þau áform sem fram koma í fjármála- áætluninni að hækka virðisauka- skatt á ferðaþjónustu úr 11% í 22,5%. Bent er á að ferðaþjónustan á Íslandi sé í beinni samkeppni á heimsmarkaði. Með mikilli styrk- ingu íslensku krónunnar hafi tekjur ferðaþjónustunnar dregist mjög saman. Of lítill tími gefist til þess fyrir fyrirtækin að undirbúa slíka skatta- hækkun, því fyrirtækin þurfi a.m.k. að hafa tveggja ára aðlögunartíma. Boða lokun í einhverja mánuði Ferðaþjónustufyrirtæki úti á landi boða mörg að þau muni þurfa að loka fyrirtækjum sínum, eins og gistihúsum og hótelum, um 4-5 mánaða skeið, komi til skattahækk- unarinnar, vegna þess að bókanir muni og séu að dragast svo mikið saman, að ekki svari kostnaði að halda fyrirtækjunum gangandi allan ársins hring. Bær hf. sem er eigandi og rekstr- araðili Icelandair hótels Klaustur mótmælir áformum um skatta- hækkanir á ferðaþjónustu harðlega. Gera langtímasamninga Í umsögn Bæjar segir m.a.: „Bær bendir á að félagið hefur, líkt og margir aðrir ferðaþjónustuaðilar, gert langtímasamninga um verð og framboð á þjónustu. Þetta við- skiptafyrirkomulag er sérstaklega algengt utan höfuðborgarsvæðisins. Samningar við ferðaheildsala kveða á um kaup á gistingu og þjónustu á hóteli félagsins í miklu magni og á tilteknum verðum, allt að 2 ár fram í tímann. Áhætta af breytingum í skattaumhverfí félagsins hvílir al- farið á því sjálfu á umræddu tíma- bili. Geta félagsins til að hleypa skattahækkun út í verðlag takmark- ast því við lágt hlutfall heildarvið- skipta. Svigrúm félagsins til þess að bera sjálft skattahækkanirnar er lítið sem ekkert, enda hafa horfur í greininni versnað umtalsvert vegna mikilla launahækkana og óhag- stæðrar gengisþróunar. Áformaðar skattahækkanir munu því til skemmri tíma draga mjög úr arðsemi félagsins en til lengri tíma hafa bein áhrif til umtalsverðra verðhækkana.“ Kvartað undan samráðsleysi Sárlega er kvartað undan því að ekkert samráð hafi verið haft við ferðaþjónustuna um þessa ákvörðun og tilmælum er beint til Alþingis um að farið verði í vandaða grein- ingarvinnu í samstarfi við ferða- þjónustuna og niðurstaða af vand- aðri vinnu verði notuð sem grundvöllur ákvarðanatöku um breytingar á VSK, hvað atvinnu- greinin kunni að þola, hvaða tíma- setningar eigi að miða við, o.s.frv. Fram kemur í umsögnum að sam- keppnisstaða innlendra ferðaskrif- stofa og ferðaskipuleggjenda sé nú þegar erfið. Með hækkandi gjöldum á greinina og styrkingu krónunnar hafi verðin hækkað og viðbrögð samstarfsaðila erlendis séu tvenns konar: Söluskrifstofur hætti við ferðir til Íslands og fari einfaldlega til ann- arra landa, eða þær skeri niður kostnað með því að stytta ferðirnar, lækka þjónustustigið og koma með sitt eigið starfsfólk, leiðsögumenn, bílstjóra og rútur. Hætta við eða stytta ferðir  Hörð gagnrýni frá ferðaþjónustunni á áform ríkisstjórnarinnar um hækkun virðisaukaskatts á greinina  Hækkunin muni grafa undan atvinnugreininni Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Ferðaþjónusta Hörð gagnrýni ferðaþjónustunnar, ekki síst minni fyrir- tækja úti á landi, kemur fram í fjölmörgum umsögnum um fjármálaáætlun. mbl.is alltaf - allstaðar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.