Morgunblaðið - 25.04.2017, Side 13
slíkt segir hún eðlilegt og koma fyrir
flesta.
„Núna er hægt að greina sjúk-
dóminn með nokkurri vissu með því
að taka sýni úr mænuvökva, setja
fólk í heilaskanna og -línurit og gera
ýmis taugasálfræðileg próf. Eftir
greiningu er fólk síðan frætt um ein-
kenni og gang sjúkdómsins og við
hverju það megi búast í framtíðinni.
Skiljanlega verða margir óttaslegn-
ir, sumir vilja sem minnst vita á með-
an aðrir vilja fá eins greinargóðar
upplýsingar og hægt er.“
Þörf umræða
Sjálfri finnst Arndísi mikilvægt
að fræðsla um sjúkdóminn sé að-
gengileg og um hann sé fjallað á
opinberum vettvangi, bæði af sjón-
arhóli sjúklinga og aðstandenda. Til
að mynda hafi erindi Ellýjar Katr-
ínar Guðmundsdóttur, lögfræðings,
á fræðslufundi Íslenskrar erfða-
greiningar í síðasta mánuði verið
mikilvægt innlegg í umræðuna, en
hún greindist með forstigseinkenni
sjúkdómsins, aðeins rúmlega fimm-
tug.
„Þótt lífið með sjúkdómnum
geti verið erfitt, bæði fyrir þá sem af
honum þjást og aðstandendur
þeirra, eru ýmsar leiðir til að gera
það léttbærara. Þeir sem eru með
forstigseinkenni ættu að halda áfram
að gera það sem þeim finnst
skemmtilegast, fara vel með sig,
stunda líkamsrækt af einhverju tagi,
borða hollan mat og reyna að fá góð-
an svefn. Einnig er mikilvægt að
örva hugann, til dæmis með því að
ráða krossgátur. Óhjákvæmilega
kemur að því að þeir verði upp á aðra
komnir og þá er gott að búið sé að
gera viðeigandi ráðstafanir. Niður-
stöður rannsóknarverkefnisins
leiddu m.a. í ljós að sjúklingar og að-
standendur sem eru bjartsýnir, að-
hyllast lausnamiðaða hugsun og leit-
ast við að gera það besta úr að-
stæðum eru ólíklegri en aðrir til að
finna fyrir kvíða og þunglyndi.“
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. APRÍL 2017
Rúmlega sjötíu nemendur í 5. bekk
Laugarnesskóla standa fyrir sýningu á
listrænum afrakstri þriggja daga rann-
sóknasmiðju í samvinnu við list-
kennslunema Listaháskóla Íslands og
Grasagarð Reykjavíkur þar sem sýn-
ingin verður opnuð í dag. Smiðjunni
og sýningunni er ætlað að vekja at-
hygli á þeim áhrifum sem hver og einn
hefur á sitt nánast umhverfi og nátt-
úruna í dag og í framtíðinni.
Í vinnusmiðjunni er lögð áhersla á
fagurfræðilegar upplifanir þátttak-
enda með áherslu á skynjun eða upp-
lifun þeirra á umhverfinu. Smiðjan
byggir á virku samspili þátttakenda
við umhverfi Grasagarðsins og um-
ræðum um hvernig við byggjum sann-
gjarnt samfélag sem stuðlar að sjálf-
bærni.
Sýningin er kl. 8.30-16.30 frá og
með deginum í dag, 25. apríl, til 1. maí.
Nemendasýning í Grasagarði Reykjavíkur
Morgunblaðið/Jim Smart
Samspil Sýningin er byggð á virku samspili þátttakenda við umhverfið.
Áhrif hvers og eins á umhverfið
Komdu litla krílið mitt er söng- og sögustund fyrir
krakka í efri deildum leikskóla/neðstu bekkjum
grunnskóla, sem geta bókað sig fyrirfram hjá
Þjóðminjasafni. Í dag kl. 11-11.30 verða fluttar út-
setningar Báru Grímsdóttur fyrir sópran og selló á
gömlum barnagælum, sem og ný lög við gömul
kvæði. Eins konar kvöldvökustemning verður á
tónleikunum, þar sem einnig verða sagðar sögur
og sungið saman; áheyrendur munu læra 1-2 lög
af efnisskránni. Flytjendur eru Þórunn Elín Péturs-
dóttir sópran og Ólöf Sigursveinsdóttir á selló.
Söng- og sögustund fyrir 4ra til 7 ára í Þjóðminjasafninu
Komdu litla krílið mitt
Þórunn Elín Pétursdóttir
og Ólöf Sigursveinsdóttir.
Alzheimerssjúkdómur er tauga-
hrörnunarsjúkdómur og algeng-
asta orsök heilabilunar. Alois Alz-
heimer var þýskur læknir sem árið
1906 lýsti einkennum sjúkdóms-
ins fyrstur manna og sýndi hann
jafnframt fram á mjög einkenn-
andi breytingar í heila sjúklings-
ins.
Sjúkdómurinn er algengastur
hjá eldra fólki, en yngri ein-
staklingar geta líka veikst. Ein-
kenni Alzheimerssjúkdómsins
koma hægt og smjúgandi og geta
verið afar óljós og margslungin.
Þegar sjúkdómsgreiningin liggur
endanlega fyrir er algengt að að-
standendur tali um að það séu
mörg ár síðan eitthvað fór að
breytast, það var bara svo erfitt
að átta sig á hvað var að gerast.
Gleymska er yfirleitt fyrsta ein-
kennið sem tekið er eftir, einkenn-
in verða smám saman meira og
meira áberandi og fara að hafa
meiri áhrif á líf einstaklingsins og
gera honum erfiðara að takast á
við tilveruna. Þessu ferli getur
fylgt mikill kvíði og öryggisleysi.
Engin lækning er ennþá við Alz-
heimerssjúkdómnum, en til eru lyf
sem geta hægt á ferlinu og aukið
vellíðan einstaklingsins. Þrátt fyr-
ir þetta er mikilvægt að fá grein-
ingu á sjúkdómnum eins snemma
í ferlinu og kostur er, bæði til þess
að fá viðeigandi meðferð og líka
til þess að geta verið virkur þátt-
takandi í því að skipuleggja fram-
tíðina. Að mörgu þarf að hyggja
og margir þurfa að koma að mál-
um ef vel á að takast til. Aðstand-
endur eru hvattir til að leita sér
aðstoðar, fá ráðgjöf og stuðning.
Mikilvægt að fá greiningu
snemma í ferlinu
ALZHEIMERSSJÚKDÓMUR ER ALGENGASTA ORSÖK HEILABILUNAR
Af vefsíðu Alzheimersamtakanna: www.alzheimer.is
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Umboðsmenn um land allt: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ
Við kynnum nýjan Mitsubishi ASX. Þessi snaggaralegi fjórhjóladrifni sportjeppi skilar þér miklu
afli á mjúkan og sparneytinn hátt. Þú situr hærra, hefur meira rými og finnur hvernig þægindin gera
aksturinn að hreinni upplifun. Taktu snúning á ASX og leyfðu skilningarvitunum að skemmta sér.
Mitsubishi ASX 4x4
Intense ClearTec dísil, sjálfskiptur frá:
4.890.000 kr.
FYRIR HUGSANDI FÓLK
NÝR MITSUBISHI ASX 4x4
5 ára ábyrgð
FRAMÚR VONUM