Morgunblaðið - 25.04.2017, Side 14

Morgunblaðið - 25.04.2017, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. APRÍL 2017 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Í kaupsamningi ríkisjóðs og Garða- bæjar um jörðina Vífilsstaði er til- tekið í 7. grein að aðilar skuli skipta með sér ábata af sölu alls bygginga- réttar á tilgreindum svæðum um- fram það byggingamagn sem lagt er til grundvallar grunnverði sam- kvæmt verðmati fyrir svæðið. Hlut- deild ríkissjóðs af þessum ábata verður 60% en Garðabæjar 40%. Þessi ábati kemur til viðbótar þeim 558,6 milljónum sem Garðabær greiðir fyrir landið. Verðmatið unnu Jón Guðmunds- son löggiltur fasteignasali og Stefán Gunnar Thors umhverfishagfræð- ingur. Aðilar voru samála um að leggja þetta mat til grundvallar kaupsamningnum. Verðmætt byggingaland Í verðmatinu er notuð sú aðferðafræði að skipta því upp í grunnverð og ágóðaskipti. „Meg- intilgangur aðferðafræðinnar er að draga úr óvissu og áhættu fyrir Garðabæ og ríkissjóð, ásamt því að byggja upp hvata fyrir kaupanda að skipuleggja og nýta landið á hag- kvæman hátt og í samræmi við gæði þess. Það er ljóst að Vífils- staðaland er mjög verðmætt bygg- ingarland en ekki liggja fyrir ít- arlegar áætlanir um uppbyggingu,“ segir m.a, í matinu. Með því að skipta samningnum upp í grunnverð, þar sem Garða- bær kaupir landið á ákveðnu grunn- verði og fær þar yfir því umráða- rétt, geti sveitarfélagið hafist handa við undirbúning að skipulagi svæð- isins. Ríkissjóður fái grunnverð fyr- ir landið og bíði þar með ekki eftir hugmyndum um nýtingu svæðisins. Þar sem grunnverð landsins sé í ákveðnum tilvikum undir markaðs- verði skapi það möguleika á virðis- auka við skipulagningu þess og sölu byggingarréttar. Þar sem ákveðin óvissa sé um nýtingu svæðanna og upp- byggingartíma þeirra sé hægt að nálgast verðmæti þeirra með því að skipta því í tvo þætti, þ.e. grunn- verð og ágóðaskiptingu. Þannig sé unnt að taka tillit til verðmæta landsins, þar sem mikilvægar for- sendur munu liggja fyrir síðar.  Grunnverð: Virði landsins m.v. lágmarksnýtingu eða lágmarksverð þess. Garðabær greiðir ríkissjóði grunnverð fyrir landið og fær yfir því umráðarétt.  Ágóðaskipting: Virði landsins umfram grunnverð skiptist á milli kaupanda og seljanda. Svæðin sem matsmennirnir verð- mátu voru 10 talsins. Heildarstærð landsins er 202,4 hektarar. Samkvæmt aðalskipulagi fyrir Vífilsstaðaland er gert ráð fyrir nýrri byggð á tveimur svæðum, Vetrarmýri og Smalaholti. Á síðar- nefnda svæðinu er einnig gert ráð fyrir kirkjugarði. Ekki verður byggt á stórum svæðum sem fylgja með í kaup- unum. Má þar nefna Svínahraun sem er friðlýst, alls 72,5 hektarar og golfvöll, sem er 30,8 hektarar. Þá munu 9,3 hektarar fara undir stækkun golfvallar. Einnig jaðar- svæði 11,6 fermetrar, sem mun fara undir vegi. Fyrir er blönduð byggð í Vífils- staðalandi, stofnanir, íbúðir og skrúðgarður, alls 26,6 hektarar. Í dag eru byggingar á þessu svæði alls um 6.200 fermetrar. Ríkið mun fá ábata af sölu lóða  Í kaupsamningi ríkissjóðs og Garðabæjar um Vífilsstaði er rætt um grunnverð og ágóðaskipti Morgunblaðið/Styrmir Kári Útivist Í Vífilsstaðalandi er hluti af golfvelli GK, en völlurinn er alls 18 holur. Undir golfvöllinn fara 30,8 hektarar. Salan á Vífilsstöðum komst í frétt- irnar um helgina þegar Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Fram- sóknarflokksins, upplýsti á Facebo- ok að hann hefði óskað eftir umræðu við Benedikt Jóhanesson fjármála- ráðherra um söluna. Sigurður vísaði í 15 ára gamla frétt mbl.is um sölu á landi í Arnar- nesi. Þar hafi hektarinn verið seldur á rúmlega 20 milljónir á núvirði en hektarinn á Vífilsstöðum hafi farið á um 2,5 milljónir. Gunnar Einarsson bæjarstjóri í Garðabæ kveðst undandi á þessari framsetningu þingmannsins. Greini- legt sé að hann hafi ekki lesið samn- inginn eða verðmatið. „Í fyrsta lagi er m.a. verið að selja stórt friðlýst svæði og í öðru lagi er verið að selja golfvöll og á þess- um svæðum kem- ur aldrei íbúða- byggð. Þá og er verið að selja skrúðgarð sem ekki verður byggt á. Þannig að mjög gróft reiknað gætu þetta verið um 50 hektarar sem gætu farið undir byggð og léttan iðnað,“ segir Gunn- ar. „Við erum að skoða með hvaða hætti við förum í rammaskipulag á svæðinu og þá fyrst er hægt að fara að áætla einhvern ábata. Ábatinn skiptist 40/60 með ríkinu en ég treysti mér ekki til að áætla neitt þar um,“ bætir hann við. Þá segir Gunnar þessa hektara minnka enn ef skipulögð yrði lóð fyrir hátækni- spítala á svæðinu en það sé alger- lega óraunhæft að segja til um hvernig það mál þróist. „En ég hef sagt að fyrirfram útilokar Garðabær ekki samtal við ríkið um það mál.“ Í ræðu sem Gunnar flutti við und- irritun kaupsamningsins kvaðst hann hafa orðið var við mikla ánægju hjá bæjarbúum með þessi kaup. „Mjög margir Garðbæingar bera miklar tilfinningar til staðarins. Á fjölmennum aðalfundi eldri borg- ara um daginn sagði ég frá þessum væntanlegu kaupum og fólk klapp- aði og jafnvel sást þar tár á hvarmi,“ sagði Gunnar m.a. í ræðu sinni. Byggt á fjórðungi landsins  Bæjarstjórinn í Garðabæ svarar gagnrýni þingmanns Gunnar Einarsson Reykjavíkurvegi 64, Hfj, s. 555 1515, enjo.is • Opið kl. 11-18 virka daga Með einföldum aðgerðum er hægt að breyta stærð og lögun sköfunnar • Tímasparnaður • Engin kemísk efni • Ódýrara • Umhverfisvænt • Vinnuvistvænt Skínandi hreinir gluggar Komið í verslun okkar eða fáið upplýsingar í síma 555 1515. Einnig mögulegt að fá ráðgjafa heim. Stærð: 22” LED - 100Hz Upplausn: 1920 x 1080 - FullHD DVB-T/DVB-T2/DVB-C USB tengi f. Kvikmyndir, ljósmyndir og tónlist. Upptaka á USB Með innbyggðum DVD spilara Spilun og Timeshift m. USB Tengingar: HDMI x2, USB 2.0 x2 SCART x 1, VGA, Hátalarar: 2x2,5W RMS / Heyrnartól fylgja 12V tengi fylgir 22” sjónvarp í húsbílinn eða hjólhýsið Ex-display model Digihome 22” LEDDVD 132 TV Verð: 44.900,- 12V tengi fylgir LÁGMÚLA 8 · SÍMI 530 2800 FYRIR HEIMILIN Í LANDINUNú er tíminn þegar flestir fara að huga að hjólhýsinu, fellihýsinu eða húsbílnum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.