Morgunblaðið - 25.04.2017, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 25.04.2017, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. APRÍL 2017 ÁRSFUNDUR LANDSVIRKJUNAR 2017 Hilton Reykjavík Nordica Á morgun, miðvikudaginn 26. apríl, kl. 14 • Benedikt Jóhannesson fjármála- og efnahagsráðherra Ávarp • Jónas Þór Guðmundsson stjórnarformaður Ávarp • Hörður Arnarson forstjóri Ragna Árnadóttir aðstoðarforstjóri Þarf framtíðin orku? • Gerður Björk Kjærnested fundarstjóri • Inga Lind Karlsdóttir stjórnar umræðum að erindum loknum Þarf framtíðin orku? Verið öll velkomin Skráning á www.landsvirkjun.is #lvarsfundur Landsvirkjun hvetur til opinnar umræðu um orkumál og þau tækifæri og áskoranir sem eru framundan. Hvernig er rekstur og fjárhagur fyrirtækisins að þróast? Hvað er að gerast á orkumörkuðum heimsins? Hvaða áhrif hefur það á Íslandi? Hver er orkuþörf framtíðar og hvernig mætum við henni? Bein útsending verður frá fundinum á landsvirkjun.is. Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Íslenska kaffihúsið Öskubox í Lymington á suðurströnd Eng- lands fékk góða kynningu í enska blaðinu The Telegraph um helgina og segir Oddný Cara Edwards Hildardóttir, eigandi kaffihússins, að umfjöllunin hafi ekki aðeins vakið mikla athygli heldur skipti mjög miklu máli fyrir framhaldið. Jákvæð umfjöllun Bent var á eftirtektarverða staði sem vert væri að heimsækja í Lymington, sem er um 17.000 manna bær skammt frá Bourne- mouth og Southampton, og var Öskubox eina kaffihúsið sem var tiltekið. „Þessi skrif hafa þegar haft mikil áhrif,“ segir Oddný. „Um helgina fengum við marga gesti sem gerðu sér sérstaka ferð hingað á suðurströndina bara til þess að fá sér kaffi hjá okkur og smakka meðlætið. Bókanir hafa aldrei verið fleiri og við erum í skýjunum.“ Forsvarsmenn alþjóðlegrar mat- vælakeðju eru á meðal þeirra sem höfðu samband við Oddnýju um helgina. Hún segir að þau hafi ver- ið í viðræðum um samvinnu að undanförnu og nú vilji þeir gera samning um samstarf. „Þessi um- fjöllun tekur Öskubox á hærra plan, því stefnt er að því að ég búi til íslenskan mat fyrir keðjuna,“ segir hún en vill ekki fara nánar út í málið að sinni. Oddný opnaði Öskubox í júní í fyrra og vakti kaffihúsið þegar at- hygli, þar sem það skar sig úr öðr- um kaffihúsum. Norrænt yfirbragð hafði þar mikið að segja, að sögn Oddnýjar, „og tengingin við Ísland og norræna goðafræði gerði gæfu- muninn“. Öskubox var útnefnt besta nýja fyrirtæki ársins á Hampshire- svæðinu (The Brilliance in Busi- ness Awards 2016/2017) skömmu fyrir áramót og segir Oddný að viðurkenningin hafi vakið enn frekari athygli á kaffihúsinu. „Samkeppnin er mikil og kaffihús á Englandi hafa átt erfitt upp- dráttar fyrsta veturinn, en vetur- inn var góður hjá okkur, ég er enn með 10 manns í vinnu og ýmislegt nýtt á döfinni,“ segir Oddný. „Þetta sýnir að við íslensku stelp- urnar getum gert ýmislegt, ekki bara strákarnir,“ bætir hún við, en Anna Dóra Unnsteinsdóttir, mynd- listarkona og hönnuður, hannaði staðinn. Öskubox í alþjóðlegt samstarf  Íslenska kaffi- húsið fær enn eina rós í hnappagatið Verðlaun Oddný Cara Edwards Hildardóttir með viðurkenninguna.The Telegraph Umfjöllunin um Öskubox hefur opnað nýjar dyr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.