Morgunblaðið - 25.04.2017, Side 16

Morgunblaðið - 25.04.2017, Side 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. APRÍL 2017 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Flestar bílasölur eru fullar af not- uðum bílum á of háu verði. Þetta segir Guðfinnur S. Halldórsson hjá Bílasölu Guð- finns en hann hefur verið á markaðnum í rúm 48 ár. Segir hann að ástandið hafi aldrei verið með þeim hætti sem nú er. „Það er ljóst að verð á notuð- um bílum þarf að lækka meira en það hefur gert og þá í samhengi við lægra verð á nýjum bílum. Það er hægt að taka dæmi af Toyota Yaris. Það er hægt að fá nýjan slíkan bíl fyrir 1.900 þúsund krón- ur. Þá gengur ekki að fólk sé að reyna að fá 700-800 þúsund fyrir Yaris frá árinu 2006.“ Óraunhæfar verðhugmyndir Segist hann hafa ákveðinn skiln- ing á því að fólk vilji fá sem hæst verð fyrir bílinn sinn en ekki gangi að setja óraunhæfan verðmiða á söluvöruna, þá muni hún einfald- lega ekki ganga út. „Ég hef einfaldlega þurft að vísa fólki frá vegna óraunhæfra verð- hugmynda. Ég get bara ekki tekið bílastæði undir bíla sem eru á slík- um prísum að það er víst að þeir munu bara alls ekki seljast,“segir guðfinnur. Guðfinnur segir að það séu fyrst og fremst tvær ástæður fyrir hinu mikla framboði á markaðnum nú. Í fyrsta lagi sé það mikill innflutn- ingur á bílum í tengslum við mikil og aukin umsvif bílaleigna og að of gamlir bílar séu í umferð. „Það er ágæt þumalputtaregla að markaðurinn þurfi 10 til 15 pró- sent endurnýjun á ári. Það þýðir að ef það eru 200 þúsund bílar á markaðnum þá þurfi 20-30 þúsund nýja bíla á ári. Það er svipað og verið er að flytja inn núna þó mjög stór hluti af því fari beint í bílaleig- urnar og komi svo inn á markaðinn sem mikið eknir bílar. Hins vegar verður framboðið svona mikið því meðalaldurinn á flotanum er ekki að lækka nægilega mikið.“ Bílaleigur skekkja markaðinn Hann segir að mikill bílainn- flutningur af hálfu bílaleigna sé farinn að skekkja markaðinn veru- lega. „Þær hafa haldið uppi innflutn- ingnum síðustu árin og það er hætt við að markaðurinn nái ekki jafn- vægi fyrr en þær finna aðrar leiðir til að þjónusta sína viðskiptavini. Það gæti til dæmis gerst með því að þær flyttu inn bíla á útlenskum númerum og leigðu út yfir sumar- mánuðina en að sömu bílar færu svo úr landi þegar vertíðinni er lokið,“ segir Guðfinnur. Samkvæmt Árbók bílgreina sem Bílgreinasambandið gefur út ár- lega var meðalaldur fólksbifreiða á Íslandi 12,5 ár í lok árs 2016 og hafði þá lækkað úr 12,7 árum frá árinu á undan. Þar kemur fram að íslenski bílaflotinn sé talinn gamall í alþjóðlegum samanburði. Þá er þar einnig bent á að fjöldi þeirra bíla sem eru 20 ára og eldri hafi aukist um 34% milli áranna 2011 og 2016. Fleiri bílar en fólk Nýlega var greint frá því í Morgunblaðinu að í fyrra hefðu verið nýskráðir tæplega 21 þúsund bílar og að árslok hefðu þeir verið komnir í 344.664 eða fleiri en allir íbúar landsins samanlagt. Fjölgaði ökutækjum um 6% frá árinu 2015. Verð á notuðum of hátt Morgunblaðið/Kristinn Bílasölur Glæðst hefur yfir markaðnum að undanförnu miðað við fyrri ár.  Einn reyndasti bílasali landsins segir of lítinn verðmun á nýjum bílum og not- uðum á markaðnum í dag  Segir allar bílasölur fullar þrátt fyrir ágæta veltu Guðfinnur S. Halldórsson á heimasíðu fyrirtækisins. Fyrir- tækið framleiðir ferska tilbúna rétti. Bræðurnir Ágúst og Lýður Guðmundssynir stýra Bakkavör og eiga ráðandi hlut í fyrirtæk- inu, sem þeir stofnuðu árið 1986. Í janúar 2016 gengu fjárfest- ingasjóðir á vegum bandaríska eignastýringarfyrirtækisins Bau- post í hluthafahópinn. Aðrir eiga ekki í fyrirtækinu. Ekki er upp- lýst nánar um skiptingu eignar- haldsins í ársskýrslu félagsins en fram kom í breskum fjölmiðlum fyrr á árinu að stefnt væri að því að skrá það á hlutabréfamarkað í Bretlandi. Bakkavör er umsvifamikið fyrirtæki en starfsmenn eru um 18.500 í þremur löndum. Um 90% tekna fyrirtækisins í fyrra áttu rætur að rekja til sölu í Bretlandi en 10% alþjóðlega. Stjórnendur fyrirtækisins horfa hins vegar til vaxtar í Bandaríkjunum og Kína. Fram kemur í ársskýrslunni að árið 2012 hafi verið ákveðið að hætta starfsemi á meginlandi Evrópu og einblína á Bretland, Bandaríkin og Kína. Á árunum 2012-2014 var starfsemi í Frakk- landi, Spáni, Tékklandi og Suður- Afríku seld til nýrra eigenda, sem og 40% hlutur í starfsemi á Ítalíu. helgivifill@mbl.is Hagnaður Bakkavarar Group dróst saman um 1% á milli ára og nam 51,3 milljónum punda í fyrra eða sem nemur um sjö milljörðum króna. Fyrirtækið jók meðal ann- ars fjárfestingar í innviðum á milli ára. Tekjurnar jukust um 4% á milli ára og námu rúmlega 1,7 milljörðum punda árið 2016. Að- löguð EBITDA jókst um 12% á milli ára og nam 145,6 milljónum punda, samkvæmt upplýsingum úr ársskýrslu sem birt hefur verið Bakkavör hagnast um sjö milljarða  Tekjur námu 1,7 milljörðum punda og jukust um 4%  Starfsmenn 18.500 Lýður Guðmundsson Ágúst Guðmundsson 25. apríl 2017 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 107.54 108.06 107.8 Sterlingspund 137.81 138.49 138.15 Kanadadalur 80.1 80.56 80.33 Dönsk króna 15.682 15.774 15.728 Norsk króna 12.623 12.697 12.66 Sænsk króna 12.2 12.272 12.236 Svissn. franki 108.03 108.63 108.33 Japanskt jen 0.976 0.9818 0.9789 SDR 147.05 147.93 147.49 Evra 116.67 117.33 117.0 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 148.3704 Hrávöruverð Gull 1271.8 ($/únsa) Ál 1932.0 ($/tonn) LME Hráolía 53.0 ($/fatið) Brent ● Atli Freyr Sveins- son, annar fram- kvæmdastjóra Íslensku auglýs- ingastofunnar, hyggst selja 33% hlut sinn í fyrir- tækinu og segja starfi sínu lausu. „Ég hef starfað hjá Íslensku í 22 ár og nú er kominn tími til að breyta til. Þetta er gert í hinu mesta bróðerni á milli hluthafa,“ segir hann og nefnir að núverandi hluthafar, sem séu fimm að honum undanskildum, muni kaupa hlut- inn auk þess sem nýr hluthafi muni að öllum líkindum ganga í hluthafahópinn. „Þær viðræður eru í gangi,“ segir Atli. Hann segir að Íslenska sé stærsta auglýsingastofa landsins sé litið til veltu en þar starfi um 50 manns. Atli Freyr selur þriðj- ungshlut sinn í Íslensku Atli Freyr Sveinsson ● Stjórn VÍS hefur ráðið Capacent til að halda utan um ráðningu á nýjum for- stjóra félagsins. Eins og greint var frá í liðinni viku mun Jakob Sigurðsson láta af störfum forstjóra innan skamms en hann hefur verið ráðinn forstjóri breska efnaframleiðandans Victrex. Morgun- blaðið leitaði upplýsinga hjá Svanhildi Nönnu Vigfúsdóttur, stjórnarformanni VÍS, um hvernig ráðningarferlinu yrði háttað og hvort staðan yrði auglýst. „Við höfum ráðið Capacent til þess að stýra ferlinu og munum fylgja þeirra ráðleggingum,“ sagði Svanhildur Nanna í skriflegu svari við fyrirspurninni. Ráðning forstjóra VÍS fer í gegnum Capacent STUTT Ársfundur EFÍA 2017 Ársfundur Eftirlaunasjóðs FÍA verður haldinn miðvikudaginn 10. maí 2017 kl. 11 í Hlíðasmára 8, Kópavogi. Allir sjóðfélagar eiga rétt til setu á árs- fundinum með umræðu- og tillögurétti. Hægt er að nálgast ársfundargögn á heimasíðu sjóðsins www.efia.is Dagskrá 1. Skýrsla stjórnar 2. Ársreikningur kynntur 3. Tryggingafræðileg úttekt 4. Fjárfestingarstefna 5. Skipun stjórnar og laun stjórnarmanna 6. Val endurskoðenda 7. Tillögur stjórnar til breytinga á samþykktum sjóðsins 8. Önnur mál

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.