Morgunblaðið - 25.04.2017, Síða 17

Morgunblaðið - 25.04.2017, Síða 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. APRÍL 2017 56 10 000 TAXI BSR Góð þjónusta yfir 90 ár10% afsláttur fyrir 67 ára og eldri Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Um leið og Norður-Kórea eignast eldflaug sem borið getur kjarnaodd á skotmark í Bandaríkjunum – þá er þetta land í mikilli hættu,“ sagði John Kelly, heimavarnarráðherra Banda- ríkjanna, í samtali við fréttastofu CNN þar vestanhafs. „Ég tel að Trump þurfi að takast á við þetta af al- vöru áður en hann byrjar sitt seinna kjörtímabil,“ sagði Kelly, spurður hvenær ráðamenn í Pjongjang myndu ráða yfir slíku vopni. Bandarískur herskipafloti er nú sagður á leið að Kóreuskaga. Er flota- deildin að líkindum mynduð úr fjórum skipum auk kafbáts. Þeirra á meðal er eitt stærsta herskip heims, flugmóð- urskipið USS Carl Vinson, sem fellur undir svonefnda Nimitz-gerð flug- móðurskipa. Um borð eru u.þ.b. 6.000 manns og getur skipið borið hátt í 90 flugvélar og þyrlur. Með Carl Vinson í för er beitiskipið USS Wayne E. Meyer, sem útbúið er sérstaklega til stýriflaugaárása, en í áhöfn eru um 300 manns. Þá fylgja einnig tveir tundurspillar, þeir USS Lake Champlain og USS Michael Murphy. Um borð í fyrrnefnda skip- inu eru m.a. tvær þyrlur af gerðinni SH-60, en hið síðarnefnda er útbúið Tomahawk-stýriflaugum og Harpoon- eldflaugum sem gerðar eru til að granda skipum. Undir haffletinum leynist svo að líkindum einn árásar- kafbátur. Hræðir kannski marglyttu Um helgina sagði Mike Pence, vara- forseti Bandaríkjanna, að herskipa- flotinn yrði kominn inn á Japanshaf eftir „fáeina daga“ og eru hersveitir Suður-Kóreu nú sagðar vera að „hug- leiða“ sameiginlegar flotaæfingar með herskipaflotanum bandaríska. Suður- kóreskar sveitir eru um þessar mund- ir á æfingu með Japönum úti fyrir ströndum Filippseyja, að sögn frétta- veitu AFP. För flotans í átt að Kóreuskaga hef- ur vakið hörð viðbrögð ráðamanna í Pjongjang. Fjölmiðlar þar í landi eru einnig stóryrtir, en að sögn þeirra er skipaflotinn „ódulbúin hernaðarleg kúgun“ og hafa Norður-Kóreumenn hótað því að sökkva Carl Vinson og ráðast á Bandaríkin. „Vera má að þessi hótun hræði marglyttu, en hún mun aldrei virka á DPRK [Alþýðulýðveldið Norður-Kór- eu],“ segir í ritstjórnargrein dagblaðs- ins Rodong Sinmun. Áður hefur þar komið fram að hersveitir Norður-Kór- eumanna séu reiðubúnar að fara í vopnuð átök við Bandaríkjamenn og að þeir hafi getu og búnað til að sökkva flugmóðurskipi þeirra með „einni árás“. Þá hefur norðurkóreska áróðurs- síðan Uriminzokkiri einnig fjallað um yfirvofandi komu Bandaríkjahers að Kóreuskaga og sagt að allt bendi til þess að stríð sé í aðsigi. „Innrásin í Norður-Kóreu nálgast með hverjum degi,“ segir í grein þar, en í henni eru ráðamenn í Washington D.C. sagðir hafa vanmetið getu her- sveita Norður-Kóreu. Er heimurinn sagður verða vitni að því hvernig flug- móðurskipum Bandaríkjamanna verði „breytt í stóran haug af stáli og þau grafin á hafsbotni. Og hvernig land sem kallast Bandaríkin verður þurrkað út af yfirborði jarðar.“ Kínverjar hvetja til stillingar Xi Jinping, forseti Kína, hringdi í Donald J. Trump Bandaríkjaforseta um helgina og hvatti til þess að frið- samleg lausn yrði fundin á kjarnorku- málum Norður-Kóreu, nú þegar mikil spenna er hlaupin í samskipti ríkjanna. Bandaríkin hafa sagt „allt koma til greina“ til að halda aftur af eldflaugatilraunum Pjongjang. Í átt að Kóreuskaga  Bandarísk flotadeild undir forystu USS Carl Vinson verður komin að Kóreu- skaga eftir „fáeina daga“  Búið að framlengja veru skipsins á sjó um 30 daga AFP Á leiðinni Myndin er tekin um borð í beitiskipinu Wayne E. Meyer og sýnir Carl Vinson sigla í átt að Kóreuskaga. USS Carl Vinson » „Búið er að framlengja veru okkar á sjó um 30 daga til að veita langvarandi viðveru á hafinu við Kóreuskaga,“ segir í tilkynningu á Facebook-síðu flugmóðurskipsins. » „Á sama tíma og við hlökk- um öll til þess að sameinast vinum okkar og fjölskyldu á ný krefst þjóðin þess að við séum sveigjanlegt afl.“ » „Markmið leiðangursins er að fullvissa okkar bandamenn um staðfasta skuldbindingu okkar [til svæðisins].“ Þjóðverjar greina nú mikla aukningu í glæpum sem runnir eru af pólitísk- um rótum og framdir af útlending- um, s.s. jíhadistum og stuðnings- mönnum PKK, verkamannaflokks Kúrdistan. Thomas de Maiziere, inn- anríkisráðherra Þýskalands, segir þessa þróun vera „ólíðandi“. Fréttaveita AFP greinir frá því að í fyrra hafi alls 3.372 slík tilfelli verið skráð í Þýskalandi og er það aukning um 66,5% frá árinu 2015. Að sögn ráðherrans er um að ræða afbrot sem framin voru í nafni vígasamtaka Ríkis íslams eða PKK. Þjóðverjar, auk annarra Evrópu- þjóða, hafa þurft að þola hryðjuverk að undanförnu. Mannskæðasta árás- in var gerð á jólamarkaði í Berlín í desember sl. Ók þá ungur karlmaður frá Túnis vöruflutningabíl á mikilli ferð inn í hóp fólks með þeim afleið- ingum að 12 létust og 56 til viðbótar særðust, sumir hverjir alvarlega. „Ólíðandi“ þróun sést í Þýskalandi  Glæpir tengdir útlendingum á uppleið AFP Á verði Sérsveitarmaður á vettvangi axarárásar á lestarstöð í Düsseldorf. Francois Hol- lande, forseti Frakklands, hef- ur nú lýst yfir stuðningi við framboð miðju- mannsins Emm- anuel Macron, en hann fékk flest atkvæði í fyrri umferð frönsku forsetakosning- anna, eða 23,75%. Næstur á eftir honum er frambjóðandi frönsku Þjóðfylkingarinnar, Marine Le Pen, með 21,53% greiddra atkvæða. Hollande sagði í sjónvarpsávarpi Frakkland illa statt sigri Le Pen í seinni umferð forsetakosninganna, en þær fara fram 7. maí nk. Óttast hann jafnframt að landið einangrist með sigri Le Pen og að Frakkar fari út úr Evópusambandinu líkt og Bretar vinni nú að. „Gagnvart slíkri hættu er ómögulegt að þegja eða sýna hlut- leysi,“ sagði Hollande. „Fyrir mína parta, þá mun ég kjósa Emmanuel Macron.“ Forsetaefnið Macron var á árunum 2014 til 2016 efnahags- ráðherra í ríkisstjórn Hollande. FRAKKLAND Hollande forseti styður Macron Sænska lög- reglan hefur handtekið annan mann sem grun- aður er um aðild að hryðjuverki sem framið var í Stokkhólmi 7. apríl sl. Var þá vörubifreið ekið á mikilli ferð í mannþröng með þeim afleiðingum að fjórir létust og fimmtán til viðbótar særðust. Rakhmat Akilov, sem er 39 ára gamall Úsbeki, var handtekinn skömmu eftir ódæðið og hefur hann þegar játað verknaðinn. Nafn þess sem nú var handtekinn hefur ekki verið gefið upp. „Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar á þessari stundu,“ hefur AFP eftir talsmanni lögreglunnar, en maðurinn hefur ekki enn verið ákærður. SVÍÞJÓÐ Annar handtekinn vegna hryðjuverks

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.