Morgunblaðið - 25.04.2017, Page 19

Morgunblaðið - 25.04.2017, Page 19
19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. APRÍL 2017 Borgarskraut Ferðamenn setja með ýmsum hætti mark sitt á umhverfið þar sem þeir koma. Eitt af því eru límmiðar sem þeir líma aftan á umferðarskilti. Sannarlega ný tegund af borgarskrauti. Eggert Tveggja alda ártíðar hinnar frægu ensku skáldkonu Jane Austen (1775-1817) er minnst víða um lönd á þessu ári en þó sérstaklega í Hampshire í Suð- ur-Englandi, þar sem Austen bjó stærsta hluta ævi sinnar. Æskuár og fyrri ritunartími Jane Austen fæddist 16. des- ember 1775 í smábænum Stev- enton í norðurhluta Hampshire. Hún var dóttir prestsins George Austen og konu hans Cassöndru sem eignuðust átta börn. Eina systir Jane, Cassandra, var henn- ar besti vinur og lífsförunautur en hvorug þeirra giftist. Austen byrjaði 11 ára gömul að skrifa, jafnt leikrit, ritgerðir og stuttar sög- ur. Fyrir 25 ára aldur hafði hún skrifað drög að skáldsögunum Sense and Sensibility, Northanger Abbey og Pride and Prejudice. Auk þess skrifaði hún stuttu bréfaskáldsög- una Lady Susan á nítjánda ári, 1794, en sag- an kom nýlega út sem kvikmynd undir heit- inu Love and Friendship (2016). Dvölin í Bath 1800-1809 Í desember 1800 ákvað George Austen að setjast í helgan stein og flutti ásamt konu sinni og tveimur dætrum til Bath, sem var vinsæll dvalarstaður efri stéttarinnar á þess- um árum. Jane virðist hafa liðið illa í Bath og skrifaði ekki neitt í átta ár, en bróð- ursonur hennar sagði síðar að Hampshire- sveitin hefði verið „vagga snilligáfu hennar“. Talið er að foreldrar systranna hafi m.a. val- ið bæinn þar sem það var góður staður til þess að finna eiginmenn fyrir ógiftar dæturnar. Staðsetning Bath gerði fjöl- skyldunni kleift að fara í sumar- leyfi á ýmsa staði við sjávar- síðuna á suðurströnd Englands, eins og til Lyme Regis, þar sem Persuasion gerist að hluta til. Mikið hefur verið fjallað um mögulegt ástarævintýri Austen og „mannsins við hafið“ á þess- um stað í sumarleyfi árið 1801. Þessi ónafngreindi maður hafði hug á að biðja um hönd hennar, en lést stuttu síðar. Haustið 1802 bar góður vinur Austen- systranna, bróðir vinkvenna þeirra, upp bón- orð. Hann hét Harris Bigg-Wither og var erfingi talsverðra eigna. Í fyrstu játaðist Jane honum en dró svo samþykki sitt til baka næsta morgun eftir svefnlausa nótt. Í upphafi árs 1805 lést faðir hennar og voru mæðgurnar þá í lausu lofti án húsnæðis og peninga, háðar góðmennsku og stuðningi bræðra Jane og Cassöndru. Loks árið 1809 lét Edward Austen Knight, en hann hafði verið ættleiddur 12 ára gamall af vel efn- uðum og barnlausum hjónum, móður sína og systur fá hús til afnota í Chawton í Hamps- hire. Síðari ritunartími 1809-1817 Jane Austen fann aftur innblásturinn í Chawton og hóf skriftir af fullum krafti. Hún fullvann gömlu handritin auk þess sem hún skrifaði frá grunni skáldsögurnar Mansfield Park, Emmu og Persuasion. Jane var um- hugað um að hvorki þjónarnir né aðrir sem heimsóttu fjölskylduna yrðu varir við skrift- irnar. Hún bannaði því að lamirnar á hurð sem lá að herberginu yrðu smurðar því marrið gaf skáldkonunni tækifæri á að fela blöðin sín. Austen fann viðurkennda útgef- endur í Lundúnum, en gaf skáldsögurnar út án höfundarnafns, þótt vitað væri að þær væru eftir konu. Skáldsögurnar fengu góða dóma og voru fremur vinsælar. Snemma árs 1816 byrjaði Austen að finna fyrir kvilla sem fór versnandi. Sumir telja að hún hafi þjáðst af Addison-veiki, sem er sjúkdómur er teng- ist nýrnastarfseminni, aðrir að hún hafi feng- ið eitlakrabba. Hún lést rúmlega fertug í Winchester 18. júlí 1817 og er grafin undir gólfinu í sögufrægri dómkirkju bæjarins. Northanger Abbey og Persuasion komu út saman eftir dauða Austen í lok ársins 1817 með æviágripi Henrys um systur sína. Frægð hennar óx jafnt og þétt á 19. öldinni og hefur farið stigvaxandi æ síðan, ekki síst síðustu tuttugu árin. Gríðarlegur fjöldi aðlag- ana og endurritana á skáldsögum hennar hefur komið út, ýmiss konar handbækur, sjálfshjálparbækur, kokkabækur, glæpasög- ur, hrollvekjur og þannig mætti lengi telja. Á íslensku hafa komið út verkin Hroki og hleypidómar (1988) í þýðingu Silju Aðal- steinsdóttur (eldri þýð. Ást og hleypidómar, 1956) og Emma (2012) í þýðingu Sölku Guð- mundsdóttur. Því má halda fram að Jane Austen sé nú- tímalegasti rithöfundur 19. aldarinnar og áhrif hennar á kvennamenningu samtíma okkar eru gríðarleg. Írónísk frásagnarrödd Austen afhjúpar hræsni, snobb og uppgerð efri stéttar auk þess sem sögur hennar tak- ast á við siðblindu, hroka og mannasiði um leið og þær segja frá ást og tilhugalífi kvenna sem reyna að fóta sig í karlaheimi. Laugardaginn 29. apríl mun Félag um átjándu aldar fræði standa fyrir málþingi um Jane Austen í fyrirlestrasal Þjóðarbókhlöð- unnar. Aðgangur er ókeypis og allir eru vel- komnir. Eftir Öldu Björk Valdimarsdóttur » Því má halda fram að Jane Austen sé nútíma- legasti rithöfundur 19. aldar- innar og áhrif hennar á kvennamenningu samtíma okkar eru gríðarleg. Alda Björk Valdimarsdóttir Tveggja alda ártíðar Jane Austen minnst Áhrifavaldur Áhrif Jene Austen á kvenna- menningu samtíma okkar eru mjög mikil. Höfundur er dósent í almennri bókmenntafræði við HÍ.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.