Morgunblaðið - 25.04.2017, Blaðsíða 19
19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. APRÍL 2017
Borgarskraut Ferðamenn setja með ýmsum hætti mark sitt á umhverfið þar sem þeir koma. Eitt af því eru límmiðar sem þeir líma aftan á umferðarskilti. Sannarlega ný tegund af borgarskrauti.
Eggert
Tveggja alda ártíðar hinnar
frægu ensku skáldkonu Jane
Austen (1775-1817) er minnst
víða um lönd á þessu ári en þó
sérstaklega í Hampshire í Suð-
ur-Englandi, þar sem Austen
bjó stærsta hluta ævi sinnar.
Æskuár og fyrri
ritunartími
Jane Austen fæddist 16. des-
ember 1775 í smábænum Stev-
enton í norðurhluta Hampshire.
Hún var dóttir prestsins George Austen og
konu hans Cassöndru sem eignuðust átta
börn. Eina systir Jane, Cassandra, var henn-
ar besti vinur og lífsförunautur en hvorug
þeirra giftist. Austen byrjaði 11 ára gömul að
skrifa, jafnt leikrit, ritgerðir og stuttar sög-
ur. Fyrir 25 ára aldur hafði hún skrifað drög
að skáldsögunum Sense and Sensibility,
Northanger Abbey og Pride and Prejudice.
Auk þess skrifaði hún stuttu bréfaskáldsög-
una Lady Susan á nítjánda ári, 1794, en sag-
an kom nýlega út sem kvikmynd undir heit-
inu Love and Friendship (2016).
Dvölin í Bath 1800-1809
Í desember 1800 ákvað George Austen að
setjast í helgan stein og flutti ásamt konu
sinni og tveimur dætrum til Bath, sem var
vinsæll dvalarstaður efri stéttarinnar á þess-
um árum. Jane virðist hafa liðið illa í Bath
og skrifaði ekki neitt í átta ár, en bróð-
ursonur hennar sagði síðar að Hampshire-
sveitin hefði verið „vagga snilligáfu hennar“.
Talið er að foreldrar systranna hafi m.a. val-
ið bæinn þar sem það var góður staður til
þess að finna eiginmenn fyrir
ógiftar dæturnar.
Staðsetning Bath gerði fjöl-
skyldunni kleift að fara í sumar-
leyfi á ýmsa staði við sjávar-
síðuna á suðurströnd Englands,
eins og til Lyme Regis, þar sem
Persuasion gerist að hluta til.
Mikið hefur verið fjallað um
mögulegt ástarævintýri Austen
og „mannsins við hafið“ á þess-
um stað í sumarleyfi árið 1801.
Þessi ónafngreindi maður hafði
hug á að biðja um hönd hennar,
en lést stuttu síðar. Haustið
1802 bar góður vinur Austen-
systranna, bróðir vinkvenna þeirra, upp bón-
orð. Hann hét Harris Bigg-Wither og var
erfingi talsverðra eigna. Í fyrstu játaðist
Jane honum en dró svo samþykki sitt til
baka næsta morgun eftir svefnlausa nótt.
Í upphafi árs 1805 lést faðir hennar og
voru mæðgurnar þá í lausu lofti án húsnæðis
og peninga, háðar góðmennsku og stuðningi
bræðra Jane og Cassöndru. Loks árið 1809
lét Edward Austen Knight, en hann hafði
verið ættleiddur 12 ára gamall af vel efn-
uðum og barnlausum hjónum, móður sína og
systur fá hús til afnota í Chawton í Hamps-
hire.
Síðari ritunartími 1809-1817
Jane Austen fann aftur innblásturinn í
Chawton og hóf skriftir af fullum krafti. Hún
fullvann gömlu handritin auk þess sem hún
skrifaði frá grunni skáldsögurnar Mansfield
Park, Emmu og Persuasion. Jane var um-
hugað um að hvorki þjónarnir né aðrir sem
heimsóttu fjölskylduna yrðu varir við skrift-
irnar. Hún bannaði því að lamirnar á hurð
sem lá að herberginu yrðu smurðar því
marrið gaf skáldkonunni tækifæri á að fela
blöðin sín. Austen fann viðurkennda útgef-
endur í Lundúnum, en gaf skáldsögurnar út
án höfundarnafns, þótt vitað væri að þær
væru eftir konu. Skáldsögurnar fengu góða
dóma og voru fremur vinsælar. Snemma árs
1816 byrjaði Austen að finna fyrir kvilla sem
fór versnandi. Sumir telja að hún hafi þjáðst
af Addison-veiki, sem er sjúkdómur er teng-
ist nýrnastarfseminni, aðrir að hún hafi feng-
ið eitlakrabba. Hún lést rúmlega fertug í
Winchester 18. júlí 1817 og er grafin undir
gólfinu í sögufrægri dómkirkju bæjarins.
Northanger Abbey og Persuasion komu út
saman eftir dauða Austen í lok ársins 1817
með æviágripi Henrys um systur sína.
Frægð hennar óx jafnt og þétt á 19. öldinni
og hefur farið stigvaxandi æ síðan, ekki síst
síðustu tuttugu árin. Gríðarlegur fjöldi aðlag-
ana og endurritana á skáldsögum hennar
hefur komið út, ýmiss konar handbækur,
sjálfshjálparbækur, kokkabækur, glæpasög-
ur, hrollvekjur og þannig mætti lengi telja. Á
íslensku hafa komið út verkin Hroki og
hleypidómar (1988) í þýðingu Silju Aðal-
steinsdóttur (eldri þýð. Ást og hleypidómar,
1956) og Emma (2012) í þýðingu Sölku Guð-
mundsdóttur.
Því má halda fram að Jane Austen sé nú-
tímalegasti rithöfundur 19. aldarinnar og
áhrif hennar á kvennamenningu samtíma
okkar eru gríðarleg. Írónísk frásagnarrödd
Austen afhjúpar hræsni, snobb og uppgerð
efri stéttar auk þess sem sögur hennar tak-
ast á við siðblindu, hroka og mannasiði um
leið og þær segja frá ást og tilhugalífi
kvenna sem reyna að fóta sig í karlaheimi.
Laugardaginn 29. apríl mun Félag um
átjándu aldar fræði standa fyrir málþingi um
Jane Austen í fyrirlestrasal Þjóðarbókhlöð-
unnar. Aðgangur er ókeypis og allir eru vel-
komnir.
Eftir Öldu Björk
Valdimarsdóttur
» Því má halda fram að
Jane Austen sé nútíma-
legasti rithöfundur 19. aldar-
innar og áhrif hennar á
kvennamenningu samtíma
okkar eru gríðarleg.
Alda Björk
Valdimarsdóttir
Tveggja alda ártíðar Jane Austen minnst
Áhrifavaldur Áhrif Jene Austen á kvenna-
menningu samtíma okkar eru mjög mikil.
Höfundur er dósent í almennri
bókmenntafræði við HÍ.