Morgunblaðið - 25.04.2017, Side 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. APRÍL 2017
Vala Magnúsdóttir, deildarstjóri rekstrar og þjónustu á Borgar-sögusafni Reykjavíkur, á 40 ára afmæli í dag. „Ég fer meðyfirumsjón yfir fjármálum og rekstri safnsins og safnbúð-
unum. Svo sé ég einnig um mannauðsmálin á safninu.“ Undir Borgar-
sögusafn heyra Árbæjarsafn, Landnámssýningin, Sjóminjasafnið,
Ljósmyndasafn Reykjavíkur og Viðey.
„Þessi söfn voru sameinuð undir heitinu Borgarsögusafn árið 2014
og ég byrjaði að starfa hjá því á þeim tíma. Áður hafði ég lengst af
unnið í banka og öðrum fjármálatengdum störfum en ákvað að breyta
til, fór í meistaranám í hagnýtri menningarmiðlun og er núna í við-
skiptatengdu starfi í menningargeiranum. Þetta eru rosalega flott
söfn og skemmtileg vinna.“ Fyrir var Vala með BS-gráðu í viðskipta-
fræði og MS-gráðu í stjórnun og stefnumótun.
Utan vinnu þá hefur Vala verið að dunda sér við að mála að undan-
förnu. „Ég fór með pabba mínum, Magnúsi Gíslasyni, á olíumálning-
arnámskeið og við erum á námskeiði nr. 2 núna. Svo var maðurinn
minn að skrá okkur á badmintonnámskeið en við erum bara búin að
fara í einn tíma svo það kemur í ljós hvort badminton verður áhuga-
mál, en það er alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt.“
Vala hélt afmælisveislu síðasta föstudag ásamt vinkonu sinni. „Í
dag ætlar maðurinn minn að bjóða mér eitthvert út að borða í hádeg-
inu, ég veit ekki hvert. Eftir vinnu ætla ég svo að vera með fjölskyld-
unni og við að fá okkur köku saman.“
Sambýlismaður Völu er Eiríkur Haraldsson, forritari hjá Arion
banka, og börn þeirra eru Ingrún Lilja 4 ára og Sigurður Högni 2 ára.
Í New York Vala stödd í Empire State byggingunni síðastliðið vor.
Skellti sér í safna- og
menningargeirann
Vala Magnúsdóttir er fertug í dag
Þ
órhallur Arason fæddist
á Húsavík 25.4. 1947 en
flutti til Patreksfjarðar
árið 1956 þegar faðir
hans tók við embætti
sýslumanns í Barðastrandarsýslu.
Þórhallur tók landspróf á Núpi í
Dýrafirði og lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Akureyri 1967.
Við tók nám í viðskiptafræði við
Háskóla Íslands þar sem Þórhallur
útskrifaðist 1972.
Með háskólanámi sínu vann Þór-
hallur við mælingar hjá Vegagerð-
inni og að loknu námi við Háskóla
Íslands varð hann forstöðumaður
hagdeildar stofnunarinnar.
Árið 1987 tók Þórhallur við starfi
skrifstofustjóra fjárreiðu- og eigna-
skrifstofu fjármálaráðuneytisins
þar sem hann lauk starfsferli sínum
eftir 30 ára starf.
Á þessum árum hefur Þórhallur
einnig verið tilnefndur til þátttöku í
mörgum nefndum sem og gegnt
störfum sem stjórnarmaður í fyrir-
tækjum á vegum ríkisins. Áhuga-
mál Þórhalls tengjast fyrst og
fremst útiveru og hreyfingu. Hann
Þórhallur Arason, fyrrv. skrifstofustjóri – 70 ára
Í Puerto Banus Frá yfirstandandi afmælisferð. Talið frá vinstri: Þórhallur, Halla, Þorbjörg, Rannveig og Tómas.
Þrammað um Öræfin
og hjólað um vínhéruð
Nýja sportið Þórhallur og Rannveig með allar græjur á gofvellinum Keili.
Selfoss Sóldís
Kara fæddist 30.
apríl 2016 kl. 2.40.
Hún vó 3.070 g og
var 48 cm löng.
Foreldrar hennar
eru Sunna Björg
Bjarnadóttir og
Guðlaugur Karl
Skúlason.
Nýir borgarar
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
SKOÐAÐU ÚRVALIÐ Á VEFSÍÐUNNI OKKAR
www.skornirthinir.is
ÖRUGG SKREF
ÚT Í LÍFIÐ
í fyrstu skónum frá Biomecanics
Biomecanics-skórnir auðvelda börnum að taka fyrstu skrefin.
Aukinn stuðningur frá hliðunum bætir jafnvægi og eykur
stöðugleika. Börnin komast auðveldar áfram og af meira
öryggi þökk sé sveigjanlegum sóla og sérstyrktri tá.
Stærðir: 18–24
Verð: 7.995
Margir litir