Morgunblaðið - 25.04.2017, Page 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. APRÍL 2017
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Nú er rétti tíminn runninn upp til að
sinna einu og öðru sem þú hefur látið reka á
reiðanum. Gættu þín að ákveða ekki neitt í
skyndi. Aðrir kunna að vilja hjálpa þér.
20. apríl - 20. maí
Naut Nú er lag að eiga góða stund með vin-
um og vandamönnum. Ekki hugsa sífellt um
fortíðina, hún er liðin og það eina sem þú átt
er stundin núna.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Framlög til góðgerðarmála eru á
framkvæmdalistanum þínum. Ekki fara í fýlu
þó að hlutirnir gangi ekki sem best, það kem-
ur betri tíð með blóm í haga.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú þarft að vita hvað þú vilt svo þú
getir sett þér markmið. Farðu vandlega í
gegnum hugmyndir þínar og ef þú heldur að
breytingar séu til bóta, þá breyttu til.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þér gengur allt í haginn og það er engu
líkara en að þú eigir allan heiminn. Þú ert lag-
hent/ur og getur því gert ansi margt á heim-
ilinu. Brettu upp ermarnar og byrjaðu.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Ekki er gott að átta sig á því hvar land-
ið liggur í samskiptum við yfirboðara núna.
Hjólin snúast þér í hag um leið og þú breytir
því hvernig þú tekur gagnrýni.
23. sept. - 22. okt.
Vog Gerðu ráð fyrir að rekast á alls konar fólk
úr fortíðinni næstu vikurnar. Þú ert full/ur
eftirvæntingar því þú sérð fram á skemmti-
lega tíma í sumar.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Vertu opnari og taktu mark á
skoðunum annarra þótt þær séu á skjön við
þínar. Allt er gott í hófi. Sundferð gæti gert
þér gott.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Vertu opinská/r og þá munu aðrir
fallast á þín rök. Þér gengur ekki vel að halda
svefnrútínu þinni, þú verður þá einfaldlega að
leggja þig eins oft og þú getur á miðjum degi.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú getur fundið fegurð á furðuleg-
ustu stöðum. Einkalíf þitt stendur í miklum
blóma. Njóttu þess og leggðu grunn að fram-
haldi á því.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þótt þig langi til þess að breyta
einhverju þá er ekki rétti tíminn til þess núna.
Reyndar ertu að skipuleggja framtíð þína og
stefnu í lífinu – í huganum.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Skrifaðu niður skuldbindingar þínar
gagnvart öðrum og hvettu aðra til hins sama.
Þig langar til að læra meira, leggstu í rann-
sóknir á því hvernig þú getur framkvæmt
það.
Víkverji varð vitni að mögnuðumlistviðburði á sunnudagskvöldið,
sem hrein unun var á að horfa. Leik-
sýningin líður seint úr minni, sér-
staklega lokakaflinn. „Hver skrifaði
eiginlega þetta handrit,“ spurði Vík-
verji í forundran og fann svarið ekki
í leikskránni. Segja má að þetta hafi
verið spuni frá upphafi til enda, með
fyrirfram skrifuðum línum inn á
milli.
x x x
Viðburðurinn fór fram fyrir troð-fullu húsi, þar sem hvert sæti
var skipað upp í rjáfur. Sviðið var
stórt og fjöldi góðra leikara sveif þar
um. Meira fór fyrir líkamlegri tján-
ingu en miklum texta. Það sem var
sagt, var þó vel orðað og hnitmiðað,
einkum þegar leikar stóðu hæst. Þá
spöruðu menn ekki stóru orðin.
Leikarar voru hvattir dyggilega af
áhorfendum, sem klöppuðu og hróp-
uðu í tíma og ótíma. Sumir grétu,
aðrir hlógu. Þeir voru vel með á nót-
unum og fengu sannarlega eitthvað
fyrir sinn snúð þetta kvöld. Tilfinn-
ingar báru sumar ofurliði og því var
hléið kærkomið, til að létta á spenn-
unni og fá sér einhverja hressingu.
Ekki veitti af því hitinn var mikill í
leikhúsinu.
x x x
Ekki var hraðinn minni eftir hlé.Leikararnir fóru um sviðið á
ógnarhraða, sýndu mikla og fágaða
fótafimi, sumir stukku hæð sína í loft
upp. Átökin og spennan á milli aðal-
persóna var áþreifanleg. Menn
fengu glóðarauga og spýttu blóði.
Ekki var hægt að kvarta yfir líkams-
tjáningunni. Hún var óaðfinnanleg.
Sumir sýndu meira látbragð en aðr-
ir, meiri vonbrigði og sárindi.á með-
an hinir létu verkin tala.
x x x
Lokakaflinn stendur upp úr, semfyrr segir. Síðustu setninguna, á
allra síðustu sekúndum verksins,
átti stjarna kvöldsins, sem stóð
framar öllum öðrum og sýndi að
hann er sá besti í dag.
Lionel Messi heitir hann. Leik-
ritið heitir El Clasico, leiktjöldin
féllu og hin aðalhetjan, Ronaldo,
hvarf af sviðinu til búnings-
herbergja, skellti á eftir sér og grét.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Drottinn veitir lýð sínum styrk, Drott-
inn blessar lýð sinn með friði.
(Sálm. 29:11)
Hamraborg 10, Kópavogi – Sími: 554 3200
Opið: Virka daga 9.30-18 Laugardaga 11–14
GOTT ÚRVAL
AF UMGJÖRÐUM
Verið velkomin til
okkar í sjónmælingu
Gunnar Rögnvaldsson á Löngu-mýri í Skagafirði orti og birti
á fésbókarsíðu sinni:
Nú fyllist allt af fuglahljóm
og fer að grænka haginn.
Því blessuð lóan blíðum róm
bauð mér góðan daginn.
Af vísu Gunnars spannst mikil
vísnagerð á facebookþræðinum.
Mývetningurinn Páll Dagbjartsson
fyrrverandi skólastjóri í Varmahlíð
í Skagafirði orti:
Fjöldamargir fiðlusarg,
fyrir þiggja borgun.
Var það ekki gæsagarg
sem gladdi þig í morgun?
Gunnar Rögnvaldsson svaraði:
Í fjarska getur flókið virst
hver fugl þar prýðir móa.
Í hettumávum heyrði fyrst
hitt var söngvin lóa.
Nú blandaði sér í leikinn Ólafur
Sigurgeirsson lektor við Hólaskóla
og bóndi á Kálfsstöðum í vestan-
verðum Hjaltadal:
Vorsins keimur vakti hal
var að dreyma spóann.
Álftir sveima inn í dal
eftir þeim er lóan.
Gunnar Rögnvaldsson svaraði:
Í dalnum flesta fugla sér
þá fer á hesti um slakka.
Og yrkir best af öðrum hér
Óli á vesturbakka.
Ólafur Sigurgeirsson:
Gróðurþeli um grund og völlu
grænkar vel á jörðu
spakur Keli spillir öllu
spáir éli hörðu.
Guðmundur á Sandi orti um „vor-
gæði“:
Enn þá gerast æfintýr:
Eyjar, búnar flosi;
Jarðar-kringla, himinn hýr,
hafið – öll í brosi.
Og enn orti hann:
Hagar öðlast blómabú.
Brosa lendur hnjóska.
Hýrusvipur á himni er nú.
Hvers er framar að óska?
Þórólfur Jónasson bóndi Hraun-
koti kallaði þessa stöku „Vorhug“:
Flýgur vor um láð og lá
að liðnu andartaki.
Von og gleði ástin á
í því vængjablaki.
Þórður Jónsson bóndi í Laufahlíð
í Reykjahverfi orti „að loknu hreti“:
Sínum vendi sólin brá;
sótti á hendur skýja.
Fjallaendum ystu frá
eins og brennd þau flýja.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Um vorið og fugla himinsins
Í klípu
FRÍTT
SÝNISHORN
VATN Á
FLÖSKU
150 KR.
200 KR.
SÓDA-
VATN
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„VILTU PIZZUSNEIÐINA SEM ÞÚ
BORÐAÐIR EKKI Í SÍÐUSTU VIKU?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar það er
engin eftirsjá.
ÉG ÞARF AÐ KAUPA
EITTHVAÐ FYRIR LÍSU, HÚN
ELSKAR DÝR… SJÁUM NÚ TIL KLIKK ÚPS
ÉG ÞARF UNDIRSKRIFT
ÞÍNA FYRIR ÞESSARI
HÝENU HÉR, FRÖKEN.
SI
IÐ
PP
VILTU FARA MEÐ BÆN
ÁÐUR EN VIÐ BORÐUM?
HVÍ? ERU ÞETTA
AFGANGAR?
ÞEF!
ÞEF!