Morgunblaðið - 25.04.2017, Qupperneq 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. APRÍL 2017
TE & KAFFI NOTAR EINGÖNGU ÚRVALS KAFFIBAUNIR
FRÁ BESTU RÆKTUNARSVÆÐUNUM, SÉRVALDAR OG
BRENNDAR AF BRENNSLUMEISTARA.
ILMANDI
HLUTI AF DEGINUM
Íslenskt fjölskyldufyrirtæki
og framleiðsla síðan 1984
„Á vit nýrra hljóma“ er yfirskrift
lokatónleika vetrarins í tónleika-
röðinni Klassík í Vatnsmýrinni
sem haldnir verða í Norræna hús-
inu í kvöld, þriðjudag, kl. 20.
„Listamenn frá Hamborg, Mart-
in Gonshorek flautuleikari og Stef-
an Matthewes píanóleikari, flytja
efnisskrá sem varpar ljósi á hina
fjölbreyttu þróun sem varð innan
franskrar rómantíkur í átt að nýju
tónmáli módernismans. Tónleik-
arnir hefjast á verkinu sem breytti
svo miklu, Síðdegi skógarpúkans
eftir Debussy. Auk þess er á dag-
skrá Sónata í A-dúr eftir César
Franck, Bilitis eftir Claude De-
bussy og Sónata í D-dúr op. 94 eft-
ir Sergej Prokofief. Verkið Bilitis
er myndrænt verk sem Debussy
samdi við tólf ljóð eftir Pierre Lou-
ys. Hin þekkta fiðlusónata Francks
sem hann tileiknaði belgíska fiðlu-
snillingnum Eugène Issafe verður
flutt í umritun fyrir flautu og pí-
anó. Flautan öðlaðist nýtt hlutverk
bæði sem einleikshljóðfæri og í
kammermúsík í lok nítjándu og við
upphaf tuttugustu aldarinnar en
flautusónata Prokofiefs, samin árið
1943, er fyrsta tónsmíðin sem er
hægt að líta á sem verk af sömu
stærðargráðu og fiðlu- og sellósón-
ötu blómaskeiðs rómantíkurinnar,“
segir í tilkynningu. Þar kemur
fram að miðar verða seldir við inn-
ganginn. Almennt miðaverð er
2.500 krónur, en 1.500 fyrir eldri
borgara og öryrkja. Aðgangur er
aftur á móti ókeypis fyrir nem-
endur og alla sem eru 20 ára og
yngri.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Félagar Martin Gonshorek flautuleikari og Stefan Matthewes píanóleikari
leika verk eftir Claude Debussy, César Franck og Sergej Prokofief.
Á vit nýrra hljóma
í Norræna húsinu
Lokatónleikar tónleikaraðarinnar
Klassík í Vatnsmýrinni í kvöld
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Við hyggjumst bjóða upp á mjög
skemmtilega efnisskrá sem sam-
sett er af þekktum djassstandörd-
um og popplögum í nýjum bún-
ingi,“ segir María Magnúsdóttir
sem ásamt píanóleikaranum Hirti
Ingva Jóhannssyni kemur fram á
tónleikum í tónleikaröðinni Freyju-
jazz í Listasafni Íslands í dag kl.
12:15. „Salurinn er æðislegur,
þannig að ég held að þetta verði
dásamleg stund.“
Spurð um samstarf þeirra Hjart-
ar Ingva segir María að þau hafi
lengi vitað hvort af öðru, en séu
aðeins nýbyrjuð að vinna saman.
„Við höfum lengi fylgst að í tónlist-
arnámi, en erum bara nýbyrjuð að
koma fram saman. Við vorum bæði
í námi við Tónlistarskóla FÍH og
héldum bæði út til Hollands í nám,
hann í Amsterdam og ég í Haag,“
segir María. Hún lauk gráðu í
rytmískum söng og af kennara-
deild Tónlistarskóla FÍH 2008;
Bachelor-prófi með láði frá Kon-
unglega listaháskólanum í Haag
2015 þar sem hún hlaut útskriftar-
verðlaunin Fock Medaille, en í
skólanum lærði hún djasssöng,
klassískar tónsmíðar og sönglaga-
smíðar og gráðunni Master of Po-
pular Music með láði frá Gold-
smiths University of London í
september 2016, en þar lagði hún
sérstaka stund á nám í tónsmíðum
fyrir miðla, upptökutækni og hljóð-
vinnslu. Hjörtur Ingvi útskrifaðist
með burtfararpróf í klassískum
píanóleik frá Tónlistarskóla FÍH
2010 og B.M.-gráðu í djasspíanó-
leik frá Konservatoríinu í Amster-
dam.
„Við erum bæði nýlega flutt
heim til Íslands aftur og fengum
bæði vinnu við Tónlistarskóla FÍH
þar sem hann spilar m.a. undir hjá
mínum söngnemendum. Fljótlega
fórum við að vinna saman og kom-
um fyrst fram opinberlega saman
fyrir um mánuði. Hann er fárán-
lega fær píanóleikari og æðislegt
að vinna með honum. Þegar kemur
að tónlistinni hugsum við mjög
svipað, enda erum við bæði mikið
að vinna með popptónlist og mæt-
umst í djassinum þar sem menntun
okkar liggur,“ segir María og
bendir á að Hjörtur Ingvi er
hljómborðsleikari hljómsveitar-
innar Hjaltalín. Sjálf hefur María
komið víða við í tónlist, en hún
semur, útsetur og framleiðir
„electro-acoustic folk pop“ tónlist
undir listamannsheitinu MIMRA
og sendi nýverið frá sér myndband
við lagið „Play With Fire“.
Stekkur milli stíla
„Ég var lengi að skilgreina mig
sem söngkonu þangað til ég áttaði
mig á því að ég þyrfti að skipta
mér í tvennt. Annars vegar er ég
María Magnúsdóttir djass-
söngkona og hins vegar er ég
MIMRA þegar ég flyt mína eigin
electro pop-músík,“ segir María og
tekur fram að söngtæknilega sé
ekkert mál að stökkva á milli stíla.
„Ég bý að miklu með djassnámið.
Þegar maður er búinn að ná góðu
valdi á röddinni og veit hvernig
maður vill beita henni hverju sinni,
þá er ekkert flókið að skipta milli
söngstíla, enda er þetta hvort
tveggja rytmísk tónlist. Þetta
snýst allt um að finna taktinn í lík-
amanum því þá kemur það út sem
þarf að koma út.“
Þó aðeins sé hálft ár síðan María
flutti heim hefur hún haft nóg að
gera. „Ég tímasetti flutninginn
þannig að ég næði heim fyrir Ice-
land Airwaves þar sem ég kom
fram á slatta af „off venue“ tón-
leikum. Ég var ekki með neina tón-
leika í desember þegar allir tónlist-
armenn eru að troða upp og óskaði
þess þá heitt að fá tækifæri til að
koma oftar fram. Það var fljótt að
vinda upp á sig, því þessa dagana
er ég með tvenna til þrenna tón-
leika á hinum ýmsu kaffihúsum
bæjarins í hverri viku, sem er bara
gaman. Ef maður er já-manneskja
þá er alltaf nóg að gera og það gef-
ur mér ótrúlega mikla orku að
koma fram,“ segir María sem auk
þess að kenna söng og syngja stýr-
ir kór Wow air þar sem hún útset-
ur sjálf popplögin sem flutt eru.
„Dásamleg stund“
María Magnúsdóttir söngkona og Hjörtur Ingvi Jóhanns-
son píanisti koma fram á Freyjujazzi í Listasafni Íslands
Morgunblaðið/Golli
Samferða María Magnúsdóttir og Hjörtur Ingvi Jóhannsson menntuðu sig
bæði í Hollandi og starfa núna m.a. við kennslu hjá Tónlistarskóla FÍH.
Út er komið 15. tölublað Jóns á
Bægisá, tímarits um þýðingar. Þýð-
ingasetur Háskóla Íslands er útgef-
andi og ritstjórar þeir Ástráður Ey-
steinsson og Gauti Kristmannsson.
Ritið hefur legið í dvala undanfarin
ár en þráðurinn hefur verið tekinn
upp að nýju og tekur Þýðingasetur
HÍ verkefnið að sér en bókaforlagið
Ormstunga gaf það út um sex ára
skeið og verður áfram viðriðið út-
gáfuna. Eftir sem áður verður meg-
inefni ritsins annars vegar fræði-
greinar, frumsamdar og þýddar,
sem og önnur umfjöllun um þýð-
ingar, og hins vegar þýðingar á fag-
urbókmenntum.
Í þessu nýja tölublaði Jóns á
Bægisá kennir ýmissa grasa. Í því
má finna þýðingar á ljóðum, örsög-
um og smásögum eftir höfunda frá
Rússlandi, Grikklandi, Ástralíu,
Englandi, Bandaríkjunum og Kína,
auk enskra þýðinga á verkum ís-
lenskra höfunda. Það heyrir til tíð-
inda að birt er þýðing Sigurðar A.
Magnússonar, sem er nýlátinn, á
ljóði eftir gríska Nóbelsskáldið
Ódýsseas Elýtis og skrifaði Sig-
urður einnig stutt yfirlit um skáldið.
Önnur þýðing sem má telja til tíð-
inda er eftir Kristján Eldjárn, fyrr-
verandi forseta, á þekktu ljóði eftir
Thomas Gray. Þá eru fjölbreytilegir
prósatextar í ritinu, meðal annars
smásögur eftir Barbara Baynton og
William Carlos Williams.
Fræðigreinar eru einnig fjöl-
breytilegar. Ástráður fjallar til að
mynda um stöðu þýðinga í bók-
menntasögu, Jón Friðjónsson um
biblíuþýðingar og Martin Ringmar
um fyrstu þýðinguna á Pippi Lång-
strump sem gerð var á heimsvísu,
en hún var á íslensku og birtist und-
ir heitinu „Lóa langsokkur“.
Þýðingatímaritið Jón á
Bægisá kemur út að nýju
Morgunblaðið/Eggert
Þýðandinn Birt er þýðing Sigurðar
A. Magnússonar rithöfundar á ljóð-
um eftir Ódýsseas Elýtis og skrifaði
hann líka um skáldið.
Ýmsar þýðingar
og fræðigreinar