Morgunblaðið - 25.04.2017, Side 33

Morgunblaðið - 25.04.2017, Side 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. APRÍL 2017 Það var gríðarmikil stemn-ing í stóra sal Bíós Para-dísar á frumsýningar-kvöldi Spólað yfir hafið, sem er ný íslensk heimildarmynd um pílagrímsferð íslenskra torfæru- kappa til „mekku mótorsportsins“ eins og þeir sjálfir komast að orði. Salurinn var troðfullur og allir sem láta torfæru sig varða hér á landi mættir til að berja sjálfa sig og koll- ega sína augum á hvíta tjaldinu. Þessi séríslenska akstursíþrótt lifir enn góðu lífi innan ákveðinnar kreðsu sem hefur stundað íþróttina óslitið frá upphafi en blómaskeið hennar var í kringum tíunda ára- tuginn. Þá óku hetjur um héruð og aðalpersóna myndarinnar, ökuþór- inn Árni Kópsson, var fremstur meðal jafningja og sópaði að sér titl- um þegar hann lagði að baki hverja brautina á fætur annarri akandi á „Heimasætunni“. Hann er hvergi af baki dottinn og þegar torfærukapp- ar hyggjast leggja land undir fót og halda mót í Tennessee í Bandaríkj- unum, ákveður hann að kaupa leif- arnar af Heimasætunni, gera hana upp og taka þátt í keppninni. Tíminn er naumur og allir sem vettlingi geta valdið koma saman til að standsetja Heimasætuna fyrir ferðina. Bílasmiðirnir vinna baki brotnu en gleyma þó ekki að stoppa í örskotsstund til að gæða sér á kóka kóla og hnallþóru inni á milli lota. Loks næst að ljúka verkinu, rétt í tæka tíð til að húrra drossí- unni um borð í gám og senda til Ameríku. Þegar þangað er komið fáum við að kynnast hinum keppendunum og föruneytum þeirra betur. Keppend- um fylgir hersing aðstoðarmanna, auk þess sem fjölskyldan mætir eins og hún leggur sig; allir og amma þeirra eru mættir til að sýna amerísku rauðhálsunum hvernig eigi að spóla upp brekkur. Keppendur láta stórkarlalega og bauna á keppinauta sína í gríð og erg en í raun og veru eru allir mestu mátar. Sú einstaka sam- heldni og framkvæmdagleði sem einkennir torfærusamfélagið er ekki síður til umfjöllunar í myndinni en keppnin sjálf. Torfærukarlarnir, með sína húðflúruðu handleggi og íturvöxnu bjórvambir, eru heillandi persónur sem eru í senn uppfullir af ást á sportinu og samferðafólki sínu. Það vekur líka séstaka athygli hvað allir eru jákvæðir og iðnir, menn leggjast fullir bjarsýni í verkefni sem virðast ómöguleg og tjasla saman handónýtum skrjóðum með örlitlu hyggjuviti og helling af skíta- mixi. Andri Freyr hefur eins og kunn- ugt er unnið mikið heimildarefni fyrir sjónvarp. Hann hefur yfirleitt kosið að vera sjálfur fyrir framan myndavélina, eins og heimildar- myndagerðarmenn á borð við Mich- ael Moore og Werner Herzog, og orðið líkt og þeir að ákveðinni per- sónu sem áhorfendur þekkja; Andri á flandri. Myndir hans eru fyrir vik- ið sjálfsvísandi, þær bera hans per- sónulega stíl og aldrei leikur neinn vafi á að sjónarhornið sé hans. Í Spólað yfir hafið kýs Andri að halda sig til hlés og birtist aldrei í mynd. Hans persónulega handbragð er því ekki eins greinilegt og er það lík- lega ágæt ákvörðun, þar sem tor- færutýpurnar fá að baða sig einar í verðskulduðu sviðsljósi. Myndefni frá bílaverkstæðum og keppninni er fléttað saman við við- töl við torfærufólkið. Mér þykir hafa tekist að skapa sögu úr efninu, klippingar eru góðar og flæðið átakalaust. Kvikmyndatakan var á heildina litið góð en á stöku stað gat að líta tökur sem voru viðvanings- legar, „súmað“ var harkalega á hluti sem ég fæ ekki séð að skiptu máli og vélinni hossað til og frá af mikl- um móð. Þegar þetta gerðist gat maður ekki annað en veitt því at- hygli og furðað sig á því, þar sem restin af myndinni var prýðilega vel skotin. Það er alltaf gaman að fá innsýn í heim þar sem fólk brennur virkilega fyrir afar sérhæfðu áhugamáli. Að fara til Ameríku að halda torfæru- keppni er náttúrlega bilun! Engu að síður er það tilvalið efni í heimildar- mynd. Það er boðið upp á fantastuð og ógurlega dramatík, menn vinna mikla sigra en komast líka í hann krappan, sér í lagi einn keppandi sem lendir í skæðustu bílveltu tor- færusögunnar. Ég, fullorðinn manneskja sem hefur ekki drattast til að krækja sér í bílpróf, get seint kallast bílaáhuga- kona og enn síður áhugamanneskja um áhættuakstur (mér verður bumbult við tilhugsunina um klessu- bíla). Þrátt fyrir það heillaði Spólað yfir hafið mig, þar sem hún segir fyrst og fremst sögu skemmtilegra og ástríðufullra persóna sem leggja allt í sölurnar til að ástunda sitt stórfurðulega áhugamál. Bilun! „Að fara til Ameríku að halda torfærukeppni er náttúrlega bilun! Engu að síður er það tilvalið efni í heimildarmynd,“ segir gagnrýnandi m.a. um Spólað yfir hafið, nýja heimildarmynd Andra Freys Viðarssonar. Tætt og tryllt í Tennessee Bíó Paradís Spólað yfir hafið bbbbn Leikstjórn og handrit: Andri Freyr Viðarsson. 91 mín. Ísland, 2017. BRYNJA HJÁLMSDÓTTIR KVIKMYNDIR Tónlistarmaðurinn Ásgeir, fullu nafni Ásgeir Trausti Einarsson, sendi fyrir síðustu helgi frá sér tit- illag nýrrar plötu sinnar, After- glow, sem kemur út 5. maí og er það þriðja lagið af plötunni sem hefur verið opinberað því áður hafa komið út lögin „Stardust“ og „Unbound“. „Afterglow“ er nú orð- ið aðgengilegt á netinu og samdi Ásgeir lagið en textann faðir hans, Einar Georg Einarsson, og var text- inn þýddur á ensku af bróður Ás- geirs, Þorsteini Einarssyni. „Lagið var samið heima á Laug- arbakka þar sem við pabbi gátum eytt tíma saman í rólegheitunum. Þessi tími sem við eyddum saman þar varð að ákveðnum vendipunkti við gerð plötunnar. Ég fékk skýrari mynd af því hvernig ég vildi að nýja platan hljómaði eftir að hafa samið „Afterglow“ þótt ég hafi síðar feng- ið aðrar og elektrónískari hug- myndir en það er einmitt ástæðan fyrir því að platan er að hluta til ak- ústísk og að hluta til elek- trónísk,“ er haft eftir Ásgeiri um lagið í tilkynn- ingu. Þá hefur myndband við lagið „Stardust“ einnig litið dags- ins ljós en það var tekið upp í Gerlev í Danmörku og leikstýrt af Herði Frey Brynjars- syni. Er því lýst sem kvikmynda- legu ferðalagi aftur til gullaldarára skemmtanaiðnaðarins þar sem Ás- geir komi fram ásamt hljómsveit og samhæfðum sundkonum. Mynd- bandið má nú finna á YouTube. Í frekari fréttum af Ásgeiri er það svo helst að hann heldur brátt í tónleikaferð um Evrópu til að fylgja plötunni eftir og mun hann einnig leika á sérstökum tónleikum í Eldborg í Hörpu á Iceland Air- waves-hátíðinni í byrjun nóvember. Ásgeir gefur út titillag Afterglow Ásgeir BÍÓ áþriðjudögum í Laugarásbíó 750 á allarmyndir, allan daginn! kr. FRÍ ÁFYLL ING Á GOS I Í HLÉI SÝND KL. 8, 10.15SÝND KL. 6SÝND KL. 5.50 SÝND KL. 6, 9 SÝND KL. 8, 10.25 PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til kl. 16 mánudaginn 8. maí SÉRBLAÐ –– Meira fyrir lesendur Heimili & hönnun fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 12. maí Í blaðinu verða kynntir margir möguleikar sem í boði eru fyrir þá sem vilja hafa fallegt í kringum sig, breyta og bæta heimilið. Skoðuð verða húsgögn og innréttingar, skrautmunir og fylgihlutir fyrir heimilið, litir og lýsing ásamt mörgu öðru. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.