Morgunblaðið - 05.05.2017, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 05.05.2017, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2017 Fæst í apótekum, heilsubúðum og stórmörkuðum. Frábært til að bæta hormónajafnvægi fyrir konur á öllum aldri Heilbrigðari og grennri Rannsókn sýna að konur sem hafa mikið lignans i blóðinu eru að meðaltali með 8,5 kg minni fitumassa en þær konur sem skortir eða hafa lítið af Lignans.** * Howel AB Journal of the American Medical Associaton june 2002 287:3082 ** British Journal of Nutrition(2009), 102: 195-200 Cambridge University. 1 kúfuð teskeið á dag - 40 daga skammtur Mulin hörfræ - rík af Lignans Trönuberjafræ Kalk úr hafþörungum CC FLAX • Regluleg inntaka stuðlar að kjörþyngd • Omega 3- ALA • Fjölbreyttar trefjar NÝJAR UMBÚÐIR SLEGIÐ Í GEGN Í VINSÆLDUM - FRÁBÆR -ÁRANGUR P R E N T U N .IS Úrval af jakkafötum fyrir útskriftina Laugavegi 77 | 101 Reykjavík | Sími: 551 3033 Flottir í fötum B E C K U O M O Str. 44-56 Fleiri munstur Bæjarlind 6, sími 554 7030 Við erum á facebook Túnikur Verð kr. 7.900 Sólvallagötu 12 OPIÐ HÚS í Hússtjórnaskólanum í Reykjavík á morgun, laugardaginn 6. maí milli kl. 13.30 og 17.00 Kaffi og kökusala ásamt sýningu á handavinnu nemenda Allir velkomnir Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Skýring þess að réttarhöld í París yf- ir níu fyrrverandi yfirmönnum Landsbankans í Lúxemborg vekja nokkra athygli í Frakklandi er sú að einn stefnenda, Enrico Macias, er þekktur söngvari í Frakklandi. Tveir Íslendingar eru meðal ákærðra, þeir Björgólfur Guð- mundsson, fyrrverandi stjórnar- formaður gamla Landsbankans og einn af aðaleigendum bankans, og Gunnar Thoroddsen, sem var einn af yfirmönnum bankans í Lúxemborg. Eins og fram kom í frétt í Morgun- blaðinu í fyrradag gaf franski rann- sóknardómarinn Renaud van Ruym- beke út ákæru á hendur níumenn- ingunum snemma árs 2014, og réttarhöld yfir þeim hófust í París á þriðjudag. Fram kemur í frétt fréttastof- unnar AFP að Enrico Macias, sem er 78 ára gamall, hafi borið vitni fyrir dómstólnum í fyrradag. Macias var einn sá fyrsti til þess að kæra Lands- bankann í Lúxemborg árið 2009. Macias sagði réttinum á miðviku- dag að í heilan áratug hefði hann ótt- ast að missa heimili sitt, í kjölfar þess að Landsbankinn hrundi og hóf að innheimta lán sem bankinn hafði veitt honum gegn veði í húseign hans. Eins og fram kom í frétt Morgun- blaðsins í fyrradag byggist ákæran á hendur níumenningunum á því að viðskiptavinir bankans, 108 húseig- endur í Frakklandi og á Spáni, kvörtuðu þegar þeir töpuðu á um- deildum fjármálagerningum sem bankinn seldi. Viðskiptin voru með þeim hætti að bankinn bauð við- skiptavinunum lán með veði í hús- eignum þeirra. Viðskiptavinirnir fengu aðeins hluta af lánunum greiddan, eða um 25%, þótt þeir veð- settu húseignir sína að fullu. Lands- bankinn í Lúxemborg hélt eftir 75% af hverju láni til fjárfestinga og sagði lántakendum að ávöxtunin af fjár- festingunum myndi greiða upp lán þeirra að fullu. Í frétt AFP segir m.a.: „Macias hafði reynt að fá lán upp á fimm milljónir evra (580 milljónir króna að núvirði) til þess að endurgera hús- eign sína í Saint-Tropez, en enginn franskur banki var reiðubúinn að veita honum slíkt lán. Landsbankinn í Lúxeborg bauð Macias á hinn bóg- inn lán upp á 35 milljónir evra (rúmir 4 milljarðar króna að núvirði), þar sem hann fengi níu milljónir evra í reiðufé og afgangurinn, 36 milljónir evra, var settur í fjárfestingarsjóð, þar sem heimili Macias var lagt að veði. Hugmyndin var sú, að hagn- aðurinn af fjárfestingunum myndi sjá um afborganir af láninu, og Maci- as rifjaði upp að hann hefði verið „ofurglaður“. En við fall Landsbankans hóf bankinn innheimtu á lánunum þegar í stað og sagði viðskiptavinum sínum, lántakendunum, að bankinn myndi yfirtaka heimili þeirra og aðrar eign- ir sem að veði hefðu verið settar fyrir lántökunum. Eignirnar yrðu seldar, svo bankinn fengi útistandandi skuldir greiddar. Eins og önnur vitni heldur Macias því fram að hann hafi verið blekktur. „Ég eyddi tíu árum ævi minnar í ótta um að missa aleigu mína,“ sagði Macias í réttarhöldunum. Kona hans hafi verið orðin veik, þegar áfallið dundi yfir 2008. „Ég missti konu mína vegna þessa banka.“ En dómarinn, Olivier Geron, lýsti ákveðnum efasemdum og sagði í réttinum að stefnendur hefðu getað gert sjálfum sér þann greiða, að sýna vott af „heilbrigðri skynsemi“. „Að taka lán, án þess að það kosti þig nokkurn skapaðan hlut, er ámóta og það séu jól á hverjum degi,“ sagði dómarinn. Einn lögmaður stefndu sagði að Macias hefði getað selt aðrar eignir en húseign sína og benti á sportbíl í eigu söngvarans, sem væri 200 þús- und evra virði. Macias reiddist þess- ari tillögu verjandans og hrópaði: „Ég er alþjóðleg stjarna. Ég á fullan rétt á því að eiga Bentley!“ „Ég á fullan rétt á því að eiga Bentley!“  Kennir Landsbankanum í Lúx um dauða konu sinnar AFP Fórnarlömb Stefnendur halda úti heimasíðu. Hópurinn nefnir síðuna „Fórn- arlömb Landsbankans í Lúxemborg.“ Enrico Macias er til hægri í efri röð. „Við munum fara fram á miskabæt- ur frá ríkinu. Ef ekki semst um bæt- ur þá munum við fara í mál,“ segir Reynir Traustason í samtali við mbl.is um nýfallinn dóm Mannrétt- indadómstóls Evrópu. Dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að ís- lenska ríkið hefði brotið gegn ákvæði 10. gr. mannréttinda- sáttmála Evrópu í máli gegn honum og tveimur öðrum yfirmönnum á rit- stjórn DV þegar þeir voru dæmdir fyrir meiðyrði í Hæstarétti. Sigur fyrir alla fjölmiðlamenn „Þetta er gott fyrir alla fjölmiðla- menn. Við erum hreinsaðir og feng- um uppreist æru. Það er mjög góð tilfinning,“ segir Reynir. Hann ætlar að fara yfir málið með lögfræðingi sínum og skoða hvort óska eigi eftir því við endurupptökunefnd að málið verði tekið upp að nýju fyrir Hæsta- rétti. „Þetta er áfellisdómur því þetta er sjötti dómurinn sem fellur yfir íslenska ríkinu. Mér finnst menn ekki hafa lært mikið. Það þarf að skoða hverju þarf að breyta og endurskoða lög. Við lítum út eins og fífl frammi fyrir öðrum þjóðum.“ Munu sækja miskabætur frá ríkinu  Íslenska ríkið braut gegn 10. gr. MSE ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS VEISTU UM GÓÐAN RAFVIRKJA?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.