Morgunblaðið - 05.05.2017, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2017
✝ Kári Jónssonfæddist á Siglu-
firði 5. september
1938. Hann lést á
Heilbrigðisstofnun
Norðurlands á
Siglufirði 22. apríl
2017.
Foreldrar hans
voru hjónin Jón
Friðrik Marinó Þór-
arinsson, f. á Siglu-
firði 2. maí 1905, d.
20. mars 1979, og Sigrún Ólafía
Markúsdóttir, f. á Stuðlum í
Reyðarfirði 27. október 1907, d.
2. október 1982.
Systkini og hálfsystkini Kára
eru: Bryndís Brynjólfsdóttir Ás-
kelsson, f. 1925, d. 2002. Sig-
urbjörg Jónsdóttir, f. 1928, d.
2001. Þórarinn Ágúst Jónsson,
f. 1930, d. 1996. Sigurður Ágúst
Jónsson, f. 1934, d. 2001. Aðal-
björg Jónsdóttir, f. 1934, d.
2001. Júlíus Júlíusson, f. 1942,
búsettur í Hafnarfirði. Hafliði
Júlíusson, f. 1946, búsettur í
Hafnarfirði. Gylfi Júlíusson, f.
1950, d. 2002.
Kári gekk að eiga Kristínu
Björgu Baldvinsdóttur 27. des-
Kristínu bróðurdóttir Kristínar,
Ragna Hannesdóttir, f. 24. nóv-
ember 1951, maki Kristján Elís
Bjarnason. Eiga þau þrjú börn.
Barnabörn Kára eru 18 tals-
ins og barnabarnabörn eru
einnig 18.
Kári Jónsson bjó fyrstu ár
ævi sinnar með foreldrum sín-
um í Lækjargötu 7 Siglufirði,
eða þar til foreldrar hans skildu
þegar hann var 7 ára gamall.
Eftir það bjó hann hjá föður
sínum og ættingjum í sama húsi
þar til hann lauk barnaskóla.
Á uppvaxtarárum Kára var
algengt að börn byrjuðu
snemma að sjá fyrir sér. Kári
var engin undantekning þar og
hóf hann ungur, eða um 12 ára
aldur, að vinna fyrir sér. Kári
vann ýmsa verkamannavinnu,
s.s. á síldarplönum, á Varnar-
svæðinu við Keflavík, stundaði
vertíðarveiðar á hinum ýmsum
bátum við landið, var háseti á
síðutogurum, vann við löndun
og skipaþjónustu hjá Þormóði
ramma hf. á Siglufirði. Síðustu
20 ár starfævinnar vann Kári
við netagerð í hópi góðra fé-
laga á netaverkstæðinu á Siglu-
firði.
Útför Kára fer fram frá
Siglufjarðarkirkju í dag, 5. maí
2017, og hefst athöfnin kl. 14.
ember 1958 og
eignuðust þau
fimm börn og eru
fjögur þeirra á lífi.
Þau eru: Ólafur
Haukur, f. 6. júní
1958, maki Ólína
Þórey Guðjóns-
dóttir. Þau eiga
tvö börn.
Drengur Kára-
son, f. andvana 2.
mars 1959.
Jakob Örn Kárason, f. 27.
september 1960, maki Elín Þ.
Björnsdóttir. Þau eiga fimm
börn.
Tómas Kárason, f. 4. október
1963, maki Dominique Porepp.
Eiga þau tvö börn. Fyrir átti
Tómas tvö börn með fyrrver-
andi sambýliskonu sinni, Guð-
björgu Gunnarsdóttur.
Baldvin Kárason, f. 7. nóv-
ember 1967, maki hans er Gróa
María Þórðardóttir, þau eiga
tvö börn.
Kristín eiginkona Kára átti
fyrir Þorstein Haraldsson, f. 19.
apríl 1952, maki Jóhanna Páls-
dóttir og eiga þau tvö börn.
Þá ólst upp hjá Kára og
Elsku afi, mikið er ég þakklát
fyrir samverustundirnar um
páskana og síðasta faðmlagið. Ég
á eftir að sakna þess að þú sért
ekki heima hjá ömmu næst þegar
ég kem í heimsókn.
Stundin líður, tíminn tekur,
toll af öllu hér,
sviplegt brotthvarf söknuð vekur
sorg í hjarta mér.
Þó veitir yl í veröld kaldri
vermir ætíð mig,
að hafa þó á unga aldri
eignast vin sem þig.
Þú varst ljós á villuvegi,
viti á minni leið,
þú varst skin á dökkum degi,
dagleið þín var greið.
Þú barst tryggð í traustri hendi,
tárin straukst af kinn.
Þér ég mínar þakkir sendi,
þú varst afi minn.
(Hákon Aðalsteinsson.)
Með sorg í hjarta kveð ég þig,
elsku afi minn. Hvíldu í friði.
Þín,
Lýdía Kristín Jakobsdóttir.
Elsku afi Kári.
Með nokkrum orðum langar
mig til að minnast þín því þú
varst mér svo mikilvægur. Orð fá
því varla lýst hversu vænt mér
þykir um þig og hversu mikið ég
sakna þín. Ég er svo þakklát fyrir
að hafa komið til Siglufjarðar um
páskana, hafa fengið að knúsa þig
í síðasta sinn og segja þér frá öllu
sem um er að vera í lífinu hjá
mér. Þú varst alltaf svo góður
hlustandi og fyrir það er ég þér
þakklát. Ég á margar góðar
minningar af Háveginum með
þér og ömmu, en þar finnst mér
þið alltaf eiga heima. Þú hugsaðir
alltaf svo vel um mig og Steffý
systur þegar mamma og pabbi
voru ekki í bænum og bauðst
okkur alltaf í mat. Það er margt
sem kemur upp í hugann þegar
ég hugsa til þín og er erfitt að
berjast við tárin þegar ég hugsa
til þess að koma heim á Sigló og
fá ekki knús frá afa. Mamma seg-
ir alltaf að ég sé lík þér og pabba
að því leyti að ég hef svo gaman
af því að fylgjast með fólki en það
hafðir þú svo sannarlega líka.
Það er erfitt að hugsa til þess að
það síðasta sem þú hvíslaðir að
mér um páskana var að ég ætti að
hringja í þig um leið og ég væri
búin að ná prófunum og byrjuð að
vinna. Sú símhringing mun því
miður ekki eiga sér stað en í stað-
inn mun ég minnast þín með því
að elda humarsúpu með mysu því
það er ekkert sem minnir mig
meira á þig en mysa. Elsku afi,
takk fyrir samveruna, skilning-
inn, gleðina og umhyggjuna. Þín,
Þórdís.
Kári Jóns var ekki bara afi
minn og langafi barnanna minna,
hann var góðvinur minn. Maður
áttar sig sjaldnast á því hversu
mikið maður er mótaður af þeim
sem fylgja manni í gegnum lífið.
Líklega er „lítill“ Kári í okkur öll-
um, okkur afkomendunum. En
hver var Kári? Kári Jóns var
langt frá því að vera gallalaus.
Hann glímdi við sína bresti,
sennilega allt lífið, og miklu
meira en hann nokkurn tíma lét
uppi. Hann var engu að síður
þeirri náttúru gæddur að sjá allt-
af hið jákvæða, vinur okkar allra
sem tókum honum eins og hann
var. Afi var öðru fremur afkvæmi
þeirra aðstæðna sem hann ólst
upp við og mótuðu hann fyrir lífs-
tíð. Hann leið e.t.v. miklu meira
fyrir það alla ævi að foreldar hans
skildu þegar hann var barn. Mið-
að við þann tíðaranda sem ríki í
þá daga, þá hefur hann líklega
ekki átt sjö dagana sæla.
Skilnaðarbörn voru í þá daga
afskipt á tímum þegar uppruni og
félagslegt bakland skiptu öllu um
örlög einstaklinganna. Hann
sagði mér t.d. söguna af því þegar
hann var sendur í kjölfar skiln-
aðar foreldranna austur á Reyð-
arfjörð til ættingja móður sinnar.
Hjá þeim átti hann að vera um
tíma, en í stað þess að fara eftir
því sem fyrir hann var lagt þá
réri hann yfir Reyðarfjörð á ára-
bát, næst þegar strandferðskipið
Esjan var í höfn á Reyðarfirði, og
gerðist laumufarþegi um borð.
Um síðir komst auðvitað upp um
hann, enda ekki alveg sjálfsagt að
lítill gutti væri að ferðast einn
síns liðs. Hann gaf því upp nafn
pabba síns, „Nonna Gústa á
Siglufirði“, sem haft var samband
við og bað hann þess að afi fengi
að vera um borð og hugsað væri
um hann. Við því var orðið og
endaði afi á Siglufirði þar sem
hann bjó síðan á Lækjargötu 7
hjá pabba sínum og Sigríði ömmu
sinni þar til hann lauk barna-
skóla. Eftir það tók lífsbaráttan
við, síðutogarar, löndunarvinna,
vinna á netaverkstæði og barátta
þar til hann settist í helgan stein.
Fullt hús af börnum en samt stóð
hann alltaf í lappirnar og ekki
upp á neinn kominn, þrátt fyrir
allt sjálfs sín herra. Hann var
frjáls til þess að vera eins og
hann var, hann var búinn að
leggja inn fyrir því.
Þetta er auðvitað lygasögu lík-
ast, en samt þó dagsatt. En hver
er boðskapurinn? Hann og lífs-
spekin á bak við söguna er sára-
einföld og best sögð með frásögn
úr lifanda lífi. Við afi sátum einu
sinni á Kaffi París og „góndum á
fólk“, þeir sem í raun þekktu
Kára Jóns vita hvað ég á við.
Karlinn var nýbúinn að skella í
sig einum, þá snéri hann sér að
mér glottandi og sagði: „Mundu
eitt, Gaui minn, hugsaðu bara vel
um þig og þína, það gerir það
enginn fyrir þig.“ Ef það er eitt-
hvað sem lífið hefur kennt mér á
minni tiltölulega stuttu ævi, þá er
það að hver er sinnar gæfu smið-
ur
Kári Jóns fæddist 1938 við
takmörkuð gæði og möguleika,
hann yfirgaf þennan heim 22.
apríl 2017 og skilur eftir flottan
hóp. Það er okkar að koma okkur
áfram. Kári Jónsson hafði nefni-
lega metnað fyrir því að þeir sem
á eftir honum kæmu yrðu betri
en hann. Við skulum virða það og
hafa sama metnað og dugnað.
Takk fyrir mig, afi Kári.
Guðjón M. Ólafsson.
Í dag kveðjum við elsku Kára
sem okkur þótti svo vænt um.
Minningarnar eru margar, svo
ljúfar og góðar en fyrst og fremst
skemmtilegar.
Kári var skemmtilegur maður,
léttur í lund og sá spaugilegu
hliðar tilverunnar.
Hann var duglegur og eftir-
sóttur til vinnu. Hann var mikill
fjölskyldumaður og hélt fallegt
heimili með Lóu sinni og sinnti
öllum heimilisstörfum með henni.
Kári reyndist mér og fjöl-
skyldu minni einstaklega vel og
börnum mínum var hann sem
besti afi. Fyrir það vil ég þakka.
Við Kristján sendum Lóu, strák-
unum þeirra öllum og fjölskyld-
um þeirra innilegar samúðar-
kveðjur.
Blessuð sé minning Kára.
Ragna Hannesdóttir.
Stórvinur minn, félagi og faðir
minna bestu vina, Kári Jónsson á
Siglufirði, er látinn. Kára kynnt-
ist ég ungur í gegnum störf og fé-
lagsstarfsemi.
Ég man frásögn föður míns,
sem lengi var formaður Knatt-
spyrnufélags Siglufjarðar, af
Kára hinum eldsnögga knatt-
spyrnumanni spilandi fyrir KS á
malarvellinum í hjarta bæjarins.
Kári var, eins og aðrir knatt-
spyrnumenn síldarbæjarins,
vinnandi alla daga og margar
klukkustundir á hverjum sólar-
hring svo tími til æfinga var ekki
mikill. Leikmenn sáu sjálfir um
sínar æfingar og það gerði Kári
oft og iðulega m.a. með því að
hlaupa í stopulum frítímum upp í
Hvanneyrarskál.
Kári hóf vinnu mjög ungur
eins og tíðkaðist í þá daga, var
lengi á sjó á togurum og bátum
og vann á síldarplaninu hjá
Henningsenbræðrum. Sögurnar
sem Kári sagði mér frá þessum
tímum vitnuðu um hvað lagt var á
unga menn á þessum árum en
slíkt tíðkast ekki í dag, kannski
sem betur fer.
Seinna meir starfaði Kári í
bryggjuliðinu og á Netaverk-
stæðinu og þegar ég hóf afskipti
af stjórnmálum hvatti Kári mig
oft til að koma í heimsókn á þessa
vinnustaði og spjalla við karlana
sem þar unnu. Honum fannst oft
halla á umræðuna gagnvart okk-
ur jafnaðarmönnum og vildi fá
mig til að leiðrétta kúrsinn, ef svo
má að orði komast. Þetta var
dulbúið framlag hins hljóðláta
jafnaðarmanns til mín sem
stjórnmálamanns hvort heldur
var í bæjarmálum eða landsmál-
um.
Hin síðari ár eftir að Kári
hætti að vinna hittumst við oftast
í Aðalbakaríinu sem einn sona
hans rekur. Þá var oft rætt um
reksturinn og framtíðaráformin
hvað bakaríið varðaði og ég
gleymi ekki hversu stoltur og
ánægður hann var þegar Aðal-
bakaríið var opnað eftir endur-
bætur og mikla stækkun. Kári
fylgdist vel með öllu í siglfirsku
bæjarlífi og hafði frá mörgu að
segja þegar við laumuðum okkur
inn á kaffistofu bakarísins og tók-
um spjall saman um landsins
gagn og nauðsynjar. Hann var
öflugur og jákvæður maður með
sterka réttlætiskennd og stórt
jafnaðarmannshjarta.
Eins og við Siglfirðingar vitum
mótuðu síldarárin alla Siglfirð-
inga en síldin var dyntótt og
hvarf einn góðan veðurdag.
Margir Siglfirðingar neyddust til
að flytja burtu úr bænum en Kári
og eftirlifandi eiginkona hans,
Kristín B. Baldvinsdóttir, fóru þó
hvergi og hafa búið alla sína tíð á
Siglufirði. Kári er því lagður til
hinstu hvílu í siglfirskri mold í
dag – föstudaginn 5. maí.
Moldin er trygg við börnin sín,
sefar allan söknuð og harm
og svæfir þig við sinn móðurbarm.
Grasið hvíslar sitt ljúfasta ljóð
á leiðinu þínu. Moldin er hljóð
og hvíldin góð …
(Davíð Stefánsson.)
Ég þakka af heilum hug mín-
um trausta og góða vini fyrir allar
okkar samverustundir og mikinn
stuðning og hvatningu alla tíð.
Við Oddný vottum Kristínu og
fjölskyldum þeirra okkar dýpstu
samúð. Þeirra er missirinn mest-
ur.
Minningin lifir um góðan
dreng og vin.
Kristján L. Möller.
Kári Jónsson
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
BJÖRN OTTÓSSON,
Hvannahlíð 8,
Sauðárkróki,
lést 26. apríl að heimili sínu.
Útför hans fer fram frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 6. maí
klukkan 14.
Sigríður Gísladóttir
Ragnhildur Sigrún Björnsd. Ólafur Stefánsson
Anna Birna Björnsdóttir Egill Birkir Sigurðsson
Davíð Þór Björnsson Margrét Rósa Haraldsdóttir
og barnabörn
Okkar innilegustu þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð, vináttu og hlýju vegna
andláts
GUÐRÚNAR GUNNARSDÓTTUR,
Lyngholti 5, Keflavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Hrafnistu
Nesvöllum, fyrir einstaka umönnun og hlýtt viðmót.
Hilmar Harðarson
Ingunn María Hilmarsdóttir Ágúst Gunnarsson
Þórey Ása Hilmarsdóttir Jóhannes K. Jóhannesson
Gunnhildur Hilmarsdóttir Ahmed Kallel
Guðmundur P. Hilmarsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
stjúpfaðir, tengdafaðir og afi,
GUNNAR HELGI PÁLSSON,
Kirkjuvöllum 7,
lést á Hrafnistu, Hafnarfirði, 23. apríl.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hins látna. Sérstakar þakkir til starfsfólks
Bylgjuhrauns.
Sigríður Sigurðardóttir
Guðmundur Þór Gunnarsson Sigríður Hrönn Pálsdóttir
Ragnheiður Gunnarsdóttir Jón Örn Sigurðsson
Unnur Jónsdóttir Valur Arnórsson
Berglind, Inga, Viktoría og Frans
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
EYJÓLFUR HÖGNASON,
Suðurlandsbraut 60,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Mörk þriðjudaginn
2. maí
Kristjana I. Heiðdal
Ásta Eyjólfsdóttir Þorgeir Ástvaldsson
Högni Eyjólfsson
barnabörn og barnabarnabörn
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð, vináttu og hlýju vegna
andláts og útfarar ástkærrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
HÖLLU DANÍELSDÓTTUR,
Hrólfskálamel 2.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
deildar B7 á Landspítala, Fossvogi.
Ásbjörn Jónsson Hildigunnur Gunnarsdóttir
Ásdís Jónsdóttir Árni Rudolf Rudolfsson
Jón Gunnar Ásbjörnsson
Ásbjörn Daníel Ásbjörnsson
Arndís Ásbjörnsdóttir
Rudolf Jón Árnason
Halla Marta Árnadóttir
og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
GUÐJÓN ÁRNI OTTÓSSON
rafvirki,
Boðaþingi 22, Kópavogi,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
sunnudaginn 16. apríl.
Útförin fór fram 2. maí í kyrrþey að ósk hins látna.
Fyrir hönd aðstandenda,
Dóra Friðleifsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GUÐRÚN H. NORÐDAHL,
áður Hæðargarði 35,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund
mánudaginn 1. maí.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 9. maí kl. 13.
Valgerður G. Björnsdóttir Skarphéðinn P. Óskarsson
Magnús Björnsson Ásta Ásdís Sæmundsdóttir
barnabörn og langömmuubörn