Morgunblaðið - 05.05.2017, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 05.05.2017, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2017 Ármúla 15, 108 Reykjavík Sími 515 0500 fasteignakaup@fasteignakaup.is fasteignakaup.is Fasteignasalinn þinn fylgir þér alla leið í söluferlinu, frá upphafi til enda Sirrý lögg. fasteignasali Erna Vals lögg. fasteignasali Íris Hall lögg. fasteignasali Morgunblaðið/Golli Á tískupallinum Útskriftarsýning fatahönnunarnema Listaháskóla Íslands. Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Tískusýning útskriftarnemavið hönnunar- og arki-tektadeild ListaháskólaÍslands í Hörpu í fyrra- kvöld var ekki hefðbundin í þeim skilningi að kynna splunkunýja tískustrauma. Hún gæti þó verið vísir að því sem koma skal. Í aug- um margra óinnmúraðra var við- burðurinn frekar listsýning með gangandi listaverkum. Og sem slík býsna margslungin og verkin mörg hver bæði frumleg og furðuleg. Sköpurum þeirra virtist liggja heil- mikið á hjarta. Tíska eða list? Hver er munur- inn? Förum ekki út í þá sálma. Katrín María Káradóttir, fagstjóri fatahönnunardeildar, er meira en tvævetur í starfi og hefur fylgt nokkrum hópum gegnum BA- námið. Hvað segir hún um nem- endur sína og verk þeirra? „Þeir eru tíu talsins að þessu sinni, sjö stelpur og þrír strákar, og fengu algjörlega listrænt frelsi. Þeim var einungis uppálagt að vinna og tefla fram sex til tíu al- klæðnuðum. Þótt við kennararnir leiðbeinum þeim í náminu er kons- eptið nemendanna sjálfra. Við reynum ekki að beina þeim á aðrar brautir, heldur viljum við að þeir skapi sín eigin verk og standi heils- hugar með þeim. Öfugt við hópinn sem útskrifaðist í fyrra og var meira á ljóðrænu nótunum eru flestir í útskriftarhópnum núna með „attitjúd“ ef svo má að orði komast. Þeir hafa miklar skoðanir og eru gagnrýnir á ýmislegt í sam- félaginu, jafnvel hápólitískir,“ segir Katrín María og örlar á stolti í röddinni. Stemmning og tíðarandi Henni finnst áhugavert hvern- ig hóparnir tjá sig með mismun- andi hætti frá ári til árs, rétt eins og þeir fylgi ákveðnum þemum, sem þó er hvergi kveðið á um. „Hugsanlega skapast hópstemmn- ing hjá nemendum sem eru búnir að vinna gríðarlega mikið og lengi saman. Tíðarandinn hefur líka mik- ið að segja, enda margt sem brenn- ur á ungu fólki nú um stundir.“ Til að geta hampað BA- gráðunum sínum með sóma og sann dugði nemendum ekki að hanna bara eitthvað út í bláinn. Þeir þurftu að skila inn stuttri greinargerð þar sem þeir lýsa kveikjunni að hugmyndinni sem og hugmyndafræðinni að baki fatalín- um sínum. „Margir skrifuðu af- skaplega beinskeytta og harða pólitíska texta,“ segir Katrín María. Hún viðurkennir að sér hafi komið svolítið á óvart hversu ein- arðir margir voru í afstöðu sinni til einstakra mála, t.d. í því að nota ekki dýraafurðir eða ný efni í hönnun sinni. „Endurnýting var leiðarstefið hjá sumum, einn nem- andinn upphóf femínisma, aðrir deildu á meinta karlmennskuímynd eða græðgina í samfélaginu. Og húsmóðirin fékk ekki einu sinni að vera í friði,“ segir Katrín María brosandi og útskýrir síðastnefnda fyrirbærið aðeins nánar: „Nemand- inn túlkar í hönnun sinni hversu honum finnst hugmyndin um að konur hafi þurft að velja á milli starfsframa og fjölskyldu fjarlæg og framandi.“ Þrátt fyrir eiturharðar skoð- anir útskriftarnemanna tekur Katrín María sérstaklega fram að þeir séu upp til hópa voða ljúft og geðþekkt fólk. En það er margt í mörgu og fötunum líka. Samfélagsrýni í spjörunum Fatahönnuðum framtíðarinnar liggur mikið á hjarta eins og varla fór framhjá gestum á útskriftarsýningu þeirra í Hörpu í fyrrakvöld. Katrín María Káradóttir, fagstjóri fatahönnunardeildar LHÍ, segir flest verkanna spegla „attitjúd“ skapara þeirra, enda nemendurnir tíu með miklar skoðanir. Tveir þeirra, Darren og Kristín, liggja ekkert á sínum. Morgunblaðið/Ómar Fagstjórinn Katrín M. Káradóttir. Verkefni fatahönnunarnemanna verða sýnd á útskriftarhátíð LHÍ, sem opnuð verður 13. maí í Hafnarhúsinu. Grasagarður Reykjavíkur, fræðslu- átakið Reykjavík iðandi af lífi og Fuglavernd bjóða gestum og gang- andi í lífveruleit í Grasagarði Reykjavíkur í Laugardal kl. 11 á morgun, laugardag 6. maí. Gestir og sérfræðingar garðsins leita uppi plöntur, skordýr, fugla, fiska, mosa og fléttur til greiningar. Starfsfólk garðsins þekkir hinar 5.000 teg- undir plantna sem hefur verið plant- að skipulega í garðinn en þar leynist einnig mikið af öðrum plöntum og lífverum sem bíða upp- götvunar. Gestir eru hvattir til að taka með sér flórubækur, stækkun- argler, kíkja og myndavélar. Í lífveruleit er lögð áhersla á að finna og greina eins margar teg- undir og mögulegt er á ákveðnum afmörkuðum stað yfir ákveðinn stuttan tíma. Grasagarðurinn í Laugardal Tækifæri Lífveruleit er tækifæri til að fræðast um fjölbreytni náttúrunnar. Leitað að plöntum og pöddum Hljómsveitin Kiriyama Family hefur gefið út sína aðra plötu, Waiting For …, og fagnar henni með útgáfu- tónleikum á Hard Rock Café frá klukkan tíu til miðnættis í kvöld, föstudaginn 5. maí. Endilega … … fagnið með Kiriyama Jú, hann er orðin þreyttur hann Fil- ippus drottningarmaður í Englandi, og skal engan undra, maðurinn er 95 ára. Hann ætlar að hætta að sinna konunglegum skyldum sínum síðar á þessu ári. Þetta var formlega til- kynnt í gær á fundi við Buck- inghamhöll. Filippus, hertoginn af Edinborg, fæddist á grísku eyjunni Korfu 10. júní árið 1921, og var einkasonur Andrews Grikklandsprins en móðir hans var Alice, prinsessan af Battenberg. Filippus prins gekk ungur að árum til liðs við konung- lega herinn og tók meðal annars þátt í bardögum á hafi úti í síðari heims- styrjöldinni. Elísabet II. og Filippus hafa verið lengi samstiga í lífinu, þau fagna 70 ára brúðkaupsafmæli í nóvember á þessu ári. Þau hittust í fyrsta sinn þegar Elísabet var aðeins 13 ára en hann 18 ára. Þau trúlofuðust átta ár- um síðar opinberlega árið 1947, þeg- ar hann var 26 ára en hún 21 árs. Fjórum mánuðum síðar fór brúðkaup þeirra fram í Westminster Abbey. Þau hjónakornin hafa eignast fjögur börn saman, Karl fæddist árið 1948 og systir hans Anna kom í heiminn tveimur árum síðar. Andrés bættist í hópinn árið 1960 og Edvard sá yngsti fjórum árum síðar. Filippusi er lýst sem viljasterkum Filippus drottningarmaður er viljasterkur og blátt áfram Vill bera sínar töskur sjálfur AFP Í gegnum súrt og sætt Filippus í skotapilsi árið 2014 með Elísabetu sinni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.