Morgunblaðið - 17.05.2017, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 7. M A Í 2 0 1 7
Stofnað 1913 120. tölublað 105. árgangur
HÆGT AÐ AUKA
LÍFSGÆÐI SÚR-
EFNISÞEGA BARÐI FÉKK LANGSPIL
ALMODÓVAR FER
FYRIR AÐAL-
DÓMNEFNDINNI
STEF VERÐLAUNAR 30 KVIKMYNDAHÁTÍÐIN Í CANNES 33KJARTAN MOGENSEN 12
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Algengara er að karlkennarar verði
fyrir einelti, andlegu ofbeldi og kyn-
ferðislegri áreitni í starfi sínu en
kvenkyns starfsfélagar þeirra. Þetta
er meðal þess sem fram kemur í nýrri
könnun sem gerð var meðal fé-
lagsmanna í Kennarasambandi Ís-
lands; kennara í leik-, grunn- og fram-
haldsskólum auk skólastjórnenda þar
sem starfsumhverfi kennara var
skoðað. Þar kemur einnig í ljós að
rúmlega 10% félagsmanna í sam-
bandinu hafa orðið fyrir einelti und-
anfarin tvö ár, 5% hafa orðið fyrir hót-
unum eða líkamlegu ofbeldi í starfi
sínu og 2% hafa sætt kynferðislegri
áreitni. Gerandinn er í flestum tilvik-
um yfirmaður, en einnig er nokkuð
um hegðun sem þessa af hendi nem-
enda eða foreldra.
Ásdís Ingólfsdóttir, formaður
vinnuumhverfisnefndar KÍ, segir
þessar niðurstöður koma verulega á
óvart. „Þetta er talsvert meira en ég
átti von á og ljóst að það þarf að kanna
hvort einhverjir þættir í vinnuum-
hverfinu ýta undir þetta,“ segir hún.
Könnunin leiddi einnig í ljós að
mikill meirihluti, eða 60% þessara
mála, er ekki tilkynntur til næsta yf-
irmanns eða stéttarfélags. Ásdís segir
það vekja spurningar um hvort end-
urskoða þurfi hvernig tilkynningum
af þessu tagi sé komið á framfæri.
Karlkennarar áreittir
Einelti, áreitni og ofbeldi er hluti af vinnuumhverfi kennara Sjaldgæft að til-
vikin séu tilkynnt til yfirmanns eða stéttarfélags Gerandinn er oftast yfirmaður
MLagðir í einelti … »18
Starfsumhverfi kennara
» 10% eru lögð í einelti.
» 12,5% verða fyrir andlegu
ofbeldi.
» 2% eru áreitt á kynferð-
islegan hátt.
» 60% málanna eru aldrei til-
kynnt.
Öryggispróf-
anir tölvuörygg-
isfyrirtækisins
Syndis sýna að
um helmingur Ís-
lendinga er með
öryggisveikleika
á tölvum sínum
vegna óuppfærðs
hugbúnaðar.
Þetta veldur því
að þeir eru mun
viðkvæmari fyrir tölvuárásum eins
og Wannacry sem nýlega dreifðist á
tölvur í 150 löndum. „Við tókum úr-
tak af 743 tölvum þar sem við gát-
um mælt hugbúnaðarstjórnun með
tilliti til öryggisuppfærslna. Úr
þessu sáum við 321 tölvu með hug-
búnað keyrandi á þekktum örygg-
isveikleika. Það er næstum helm-
ingur eða 43%,“ segir Theódór
Ragnar Gíslason, ráðgjafi í tölvu-
öryggismálum og meðstofnandi
Syndis. Þá er eru vísbendingar um
að tölvuþrjótarnir á bak við tróju-
hestinn og gíslatökuforritð Wan-
nacry hafi óvart sýkt fleiri tölvur
en til stóð. »9
Íslendingar auðveld
bráð tölvuþrjóta
Vírus Wannacry
nýtir sér veikleika.
Sumarið nálgast óðum og hefur veðrið farið hlýn-
andi jafnt og þétt síðustu daga.
Börnin sjást nú leika sér úti um alla borg, eins
og hann Samúel Gísli sem velti sér með rjóðar
kinnar í grasinu á róluvellinum við Freyjugötu, í
góða veðrinu í gær.
Morgunblaðið/Golli
Samúel í sólinni
„Kaupmáttaraukning og lífs-
kjarabati síðustu ár og áratugi hef-
ur náð til flestra landsmanna, en
sérstaka athygli vekur að ungt fólk
hefur setið eftir,“ segir Konráð
Guðjónsson, hjá greiningardeild
Arion banka í samtali við Morgun-
blaðið. „Ef maður skyggnist aðeins
dýpra sér maður hvað húsnæðis-
kostnaðurinn vegur sífellt þyngra
hjá fólki, því hann hefur hækkað
miklu meira en aðrir liðir í vísitölu
neysluverðs. Hann vegur þar af
leiðandi meira en hann gerði í byrj-
un þessarar aldar. Þannig að hjá
fólki þar sem húsnæðiskostnaður
vegur hvað þyngst hefur kaupmátt-
urinn aukist minna.“ »16
Sífellt þyngri hús-
næðiskostnaður
Reykjavíkurborg hefur á skömm-
um tíma hafnað tilboðum í allmörg
verk þar sem þau reyndust veru-
lega yfir kostnaðaráætlun. Hefur
verið hætt við þessi verk í bili.
Þar á meðal var gerð göngu-
brúar yfir Breiðholtsbraut við
Norðurfell. Aðeins barst eitt tilboð í
verkið, frá Ístaki hf., og var það
228% af kostnaðaráætlun. Tilboðið
var rúmum 182 milljónum yfir
kostnaðaráætlun.
„Verktakar á vissum sviðum
mannvirkjagerðar hafa mjög mikið
að gera og hjá mörgum er verk-
efnastaða þannig að þeir geta ekki
bætt við sig verkefnum, a.m.k.
þetta sumarið eða árið. Einkum á
þetta við faggreinar í byggingar-
iðnaði og þá hjá „smærri“ verktök-
um,“ segir Ámundi V. Brynjólfsson,
skrifstofustjóri framkvæmda og
viðhalds hjá Reykjavíkurborg. »6
Reykjavíkurborg hefur hætt við allmörg
verk vegna þess að tilboðin voru alltof há
Breiðholt Eitt af þeim verkum sem
frestast er ný göngubrú.
Frystitogarinn Sólberg ÓF bætist
í flotann á laugardag, er Rammi hf.
í Fjallabyggð tekur formlega á móti
skipinu á Siglufirði. Skipið er
tæknilega mjög fullkomið og frysti-
getan um 90 tonn af fiski á sólar-
hring, sem er sambærilegt við
stærstu frystihús fyrir bolfisk.
Miðað er við að skipið nýti afla-
heimildir eldri frystiskipa Ramma,
Mánabergs og Sigurbjargar, sem
veiddu á síðasta fiskveiðiári yfir 13
þúsund tonn. Reiknað er með að
með fullkomnum búnaði um borð í
nýja skipinu verði unnt að auka
verðmæti um 20-25%. Sjálfvirkni er
mikil og m.a. er mjöl- eða prótein-
verksmiðja um borð.
Skipið var smíðað í Tyrklandi og
nemur fjárfestingin um fimm millj-
örðum. króna „Ef við fáum að vinna
í friði þá spjörum við okkur,“ segir
Ólafur Marteinsson, framkvæmda-
stjóri Ramma hf. í Fjallabyggð. »14
Verðmæti aukin um 20-25% með
nýju skipi Ramma hf. í Fjallabyggð
Á heimleið Sólbergið ÓF-1 leggur af stað
frá Tyrklandi áleiðis heim til Íslands.
Kjartan Magn-
ússon, borgar-
fulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins,
segir að flokk-
urinn sé andvíg-
ur innheimtu
nýrra gjalda til
að fjármagna
borgarlínuna.
Hins vegar sé
rétt að efla al-
menningssamgöngur. Hann segir
áform um að fjármagna borgarlín-
una með gjöldum vera einn eitt
dæmið um aukna skattheimtu
meirihlutans.
Kristbjörg Stephensen borgar-
lögmaður segir sveitarfélögum
heimilt að leggja á innviðagjald í
frjálsum samningum við lóðarhafa.
Sveitarfélög geti ekki lagt á slík
gjöld einhliða. Spurð út í hug-
myndir um að láta hluta innviða-
gjalds á vissum stöðum renna til
uppbyggingar borgarlínu segir
Kristbjörg að slík gjaldtaka þurfi
líklega að eiga sér lagastoð. »10
Andvígur nýjum
innviðagjöldum
Kjartan
Magnússon