Morgunblaðið - 17.05.2017, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.05.2017, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 2017 „Hundurinn minn var búinn að vera í meðferðum hjá dýralækni í heilt ár vegna húðvandamála og kláða, þessu fylgdi mikið hárlos. Hann var búinn að vera á sterum án árangus. Reynt var að skipta um fæði sem bar heldur ekki árangur. Eina sem hefur dugað er Polarolje fyrir hunda. Eftir að hann byrjaði að taka Polarolje fyrir hunda hefur heilsa hans tekið stakkaskiptum. Einkennin eru horfin og hann er laus við kláðann og feldurinn orðinn fallegur.“ Sigurlín Birgisdóttir, hundaeigandi Sími 698 7999 og 699 7887 Náttúruolía sem hundar elska Við Hárlosi Mýkir liðina Betri næringarupptaka Fyrirbyggir exem Betri og sterkari fætur NIKITA hundaolía Selolía fyrir hunda Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Jafnlaunafrumvarpið í forgangi  Allsherjar- og menntamálanefnd keppist við að klára málið  SA segir kostnað hlaupa á milljörðum Guðni Einarsson gudni@mbl.is Allsherjar- og menntamálanefnd Al- þingis leggur áherslu á að ljúka af- greiðslu frumvarpsins um jafnlauna- vottun sem fyrst, að sögn Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, formanns nefndarinnar. „Þetta er í forgangi hjá nefndinni og við gerum okkar besta,“ sagði Ás- laug Arna. Nefndin tók á móti gest- um vegna umsagna um málið í gær og á morgun er von á einum gesti til viðbótar og fulltrúum ráðuneytisins. „Eftir það þarf nefndin að ræða hvort hún vill gera einhverjar breytingar á frumvarpinu. Það er mikilvægt að vinna þetta vel,“ sagði Áslaug Arna. Hún sagði að ýmsar góðar athugasemdir við frumvarpið hefðu komið fram. En telur hún að hægt verði að afgreiða það í vor? „Já, ég gæti alveg trúað því en við þurfum að leggjast betur yfir at- hugasemdir sem komið hafa fram,“ sagði Áslaug Arna. Hún sagði að ef vinnan sem væri eftir vegna frum- varpsins ylli því að afgreiðsla þess drægist fram á haustið þá yrði svo að vera. Nítján umsagnir bárust Samtals bárust nítján umsagnir um frumvarpið frá hinum ýmsu fé- lögum, samtökum, stofnunum og fræðimönnum. Samtök atvinnulífsins (SA) sendu efnismikla umsögn. Meðal annars segjast þau ekki vera fylgjandi lög- festingu jafnlaunastaðalsins ÍST 85 en leggjast þó ekki gegn því að frum- varpið verði að lögum, að teknu tilliti til athugasemda sem SA gerir. SA bendir m.a. á að staðallinn ÍST 85 sé eign Staðlaráðs en samkvæmt frumvarpinu virðist sem leggja eigi hald á vinnu Staðlaráðs við gerð staðalsins. Eins veki það athygli að staðallinn sem ætlunin er að leiða í lög er ekki birtur með frumvarpinu og hann er ekki heldur að finna á meðal þingskjala. Því vakni spurn- ing um hvernig almenningur og fyr- irtækin geti kynnt sér lagasetn- inguna til fulls. Varla sé ætlunin að hver og einn þurfi að leggja út fé til að kaupa staðalinn sem ætlunin sé að lögfesta. SA bendir líka á mikinn kostnað við lögfestingu jafnlaunavottunar. SA telur að innri kostnaður fyrir- tækja við innleiðingu staðalsins og kostnaður vegna kaupa á þjónustu sérfræðinga í stöðlum og launakerf- um muni hlaupa á nokkrum millj- örðum króna fyrir þá 1.200 aðila sem um ræðir. Þá bendir SA á að með því að tryggja samfellu í dagvistunarúr- ræðum frá lokum fæðingarorlofs væri stigið risastórt skref til að draga úr heildarlaunamun kynjanna. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir Þau Lucile Delfosse og Hrafn Ósk- arsson, sem bæði vinna hjá Skóg- ræktinni á Tumastöðum í Fljóts- hlíð, hafa hænt að sér villta auðnutittlinga með fóðurgjöfum. Þetta kemur fram á heimasíðu Skógræktarinnar (www.skogur.is). Kjörkuðustu fuglarnir setjast í lófa þeirra og gæða sér á sólblóma- fræjum. Kvenfuglarnir eru frakk- ari í þeim efnum en karlfuglarnir. Auðnutittlingum hefur fjölgað á Tumastöðum. Fyrir fáeinum árum varð hrun í stofninum um allt land. Hrafn hefur fylgst með fuglunum og gefið þeim á veturna í áratugi. Fuglarnir venjast mönnum smám saman. gudni@mbl.is Kerlan er frakkari en karlinn Ljósmynd/Trausti Jóhannsson Lófagjöf Lucile Delfosse með óttalausan auðnutittling í lófa sér. Önnur fyrirtaka í máli ákæruvalds- ins gegn Thomasi Møller Olsen, sem ákærður er fyrir að hafa orðið Birnu Brjáns- dóttur að bana, fór fram í Héraðs- dómi Reykjaness í gær. Kolbrún Bene- diktsdóttir varahéraðssaksóknari lagði fram viðbótargreinargerð vegna notkunar á símum og jafn- framt afrit af grænlensku sakavott- orði ákærða, sem eftir á að þýða yfir á íslensku. Þá var dómkvaddur bæklunar- læknir, Ragnar Jónsson, til að meta Thomas og hvort hann hefði verið fær um að fremja verknaðinn. Lækn- irinn fær nú gögn málsins til að fara yfir og svara tveimur spurningum sem fyrir hann hafa verið lagðar. Enn hefur ekki fengist réttar- meinafræðingur til að taka málið að sér, en búið er að óska eftir aðstoð sænsks réttarmeinafræðings sem eftir á að gefa svar. Til stendur að dómkveðja hann í næstu viku, eða einhvern annan sem fæst til verks- ins. Hlutverk réttarmeinafræðings í málinu er að svara fimm spurningum er liggja fyrir. Hinn ákærði var ekki viðstaddur fyrirtökuna. solrun@mbl.is Fyrirtaka í Birnumál- inu í gær Sakborningur Í lögreglufylgd.  Leitað að réttar- meinafræðingi Önnum kafinn málari var að skafa húsvegg á Laugavegi 28 b í Reykjavík í gær, væntanlega til þess að búa hann undir málningu. Samkvæmt veðurspá dagsins fyrir höfuðborg- arsvæðið má búast við vaxandi norðanátt í dag, allt að 10-15 m/s síðdegis. Eins er að vænta smá- skúra sem þykja ekki góðir fyrir málningar- vinnu. Það verður líka með svalara móti eða 5-8 stiga hiti. Skrapað og skafið svo skín í bert Morgunblaðið/Eggert

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.