Morgunblaðið - 17.05.2017, Blaðsíða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 2017
Kvikmyndahátíðin í Cannes í Frakk-
landi hefst í dag með sýningu á opn-
unarmynd hátíðarinnar, Les Fantô-
mes d’Ismaël eftir franska leikstjór-
ann Arnaud Desplechin. Hún verður
ekki í aðalkeppni hátíðarinnar en að
vanda eru nýjustu myndir heims-
kunnra leikstjóra í þeirri keppni. Má
þar nefna The Beguiled eftir banda-
ríska leikstjórann Sofiu Coppola,
Happy End eftir austurríska leik-
stjórann Michael Haneke, The
Square eftir sænska leikstjórann
Ruben Östlund, Wonderstruck eftir
bandaríska leikstjórann Todd Hay-
nes og You Were Never Really Here
eftir skoska leikstjórann Lynne
Ramsay.
Hátíðin er nú haldin í 70. sinn og
virðast kvikmyndarýnar almennt
sammála um að úrvalið sé gott í ár.
Spænski kvikmyndaleikstjórinn
Pedro Almodóvar fer fyrir aðal-
dómnefnd hátíðarinnar að þessu
sinni en auk hans sitja í henni
bandaríski leikarinn Will Smith, kín-
verska leikkonan Fan Bingbing,
ítalski leikstjórinn Paolo Sorrentino,
franska leikkonan Agnes Jaoui, líb-
ansk-franska tónskáldið Gabriel Ya-
red, þýski leikstjórinn Maren Ade,
suðurkóreski leikstjórinn Chan-
Wook Park og bandaríska leikkonan
Jessica Chastain.
Deilur streymisveitunnar Netflix
og stjórnenda hátíðarinnar hafa vak-
ið athygli nú í vikunni. Netflix er
framleiðandi tveggja kvikmynda
sem keppa um aðalverðlaun hátíðar-
innar, Gullpálmann, kvikmyndanna
The Meyerowitz Stories með Dustin
Hoffman og Adam Sandler í aðal-
hlutverkum og Okja sem Tilda Swin-
ton fer með aðalhlutverk í. Þegar til-
kynnt var að tvær kvikmyndir á
vegum Netflix væru í aðalkeppnis-
flokknum brugðust franskir kvik-
myndahúsaeigendur ókvæða við því
frönsk lög kveða á um að ekki megi
sýna kvikmyndir í streymisveitum
fyrr en þremur árum eftir að þær
fara í almennar sýningar í kvik-
myndahúsum. Niðurstaðan varð sú
að frá og með næsta ári verður það
skilyrði fyrir þátttöku í aðalkeppn-
inni að kvikmyndir verði sýndar í í
frönskum kvikmyndahúsum að lok-
inni hátíð.
AFP
Undirbúningur Verkamenn önnum kafnir við að festa risastóran borða framan á Palais des Festivales þar sem
opnunarmyndin verður sýnd. Ljósmynd af ítölsku leikkonunni Claudiu Cardinale frá árinu 1959 prýðir borðann.
AFP
Aðaldómnefndin Pedro Almodóvar fer fyrir aðaldómnefndinni sem skipuð
er, í efri röð frá vinstri: Will Smith, Fan Bingbing, Paolo Sorrentino, Agnes
Jaoui, Gabriel Yared, Maren Ade, Chan-Wook Park og Jessica Chastain.
Sjötugasta Cannes-hátíðin
Titill væntanlegrar breiðskífu
rokksveitarinnar Ham, sem gefin
verður út í næsta mánuði, er Söngv-
ar um helvíti mannanna . Aðdá-
endur hljómsveitarinnar bíða henn-
ar eflaust með óþreyju en þeir sem
eiga miða á tónleika Rammstein á
laugardaginn fá þó væntanlega að
heyra nokkur lög af plötunni því
Ham mun hita upp fyrir rokksveit-
ina þýsku. Eitt lag af plötu Ham,
„Vestur-Berlín“, hefur hljómað í út-
varpi undanfarnar vikur og fer þar
ekta Ham-slagari.
Söngvar um helvíti mannanna
Ljósmynd/Marinó Thorlacius
Breski leikarinn Adeel Akhtar varð
um helgina fyrsti hörundsdökki
leikarinn til að vinna Bafta sjón-
varpsverðlaunin fyrir bestan leik í
aðalhlutverki í 62 ára sögu verð-
launanna. Frá þessu greinir BBC.
Verðlaunin hlaut Akhtar fyrir
frammistöðu sína í sjónvarpsmynd-
inni Murdered By My Father sem
sýnd var á BBC Three. Þar leikur
Akhtar mann sem myrðir dóttur
sína þegar hún verður ástfangin af
öðrum manni en faðirinn hafði ætl-
að henni. Auk Akhtar voru m.a. til-
nefndir þeir Robbie Coltrane fyrir
frammistöðu sína í National Treas-
ure og Benedict Cumberbatch fyrir
The Hollow Crown: The Wars of
the Roses.
Af öðrum verðlaunahöfum má
nefna að Sarah Lancashire varð
verðlaunuð fyrir bestan leik í aðal-
hlutverki í Happy Valley, en þátta-
röðin var einnig valin besta drama-
tíska serían. Í aukahlutverkum
voru verðlaunuð þau Wunmi Mo-
saku fyrir Damilola, Our Loved Boy
og Tom Hollander fyrir The Night
Manager. Michael McIntyre var
verðlaunaður fyrir besta skemmti-
þáttinn og hafði þar betur en Gra-
ham Norton. Loks má nefna að Jo-
anna Lumley hlaut sérstök
heiðursverðlaun.
Áfangi í 62 ára sögu Bafta
Góður Adeel Akhtar hlaut um
helgina sjónvarpsverðlaun Bafta.
Sameinar það besta í rafsuðu
Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288
Miðasala og nánari upplýsingar
5%
SÝND KL. 5.30SÝND KL. 10SÝND KL. 5.30, 8, 10.30
SÝND KL. 8, 10.20 SÝND KL. 5.30, 8
Magdalena Margrét Kjartansdóttir
opnaði sýninguna Hitting í Sagoy
Galleri í Malmö í Svíþjóð 13. maí sl.
Þar sýnir hún ný grafíkverk, stórar
tré- og dúkristur auk litógrafíu-
verka. Sýningin stendur til 28. maí
2017. Magdalena lauk námi frá
Myndlista- og handíðaskóla Íslands
1984 og hefur sýnt í mörgum söfn-
um og galleríum erlendis sem og
hér á landi. Sagoy Galleri er við
Erikslutsvägen 2 í Malmö.
Magdalena sýnir í Sagoy í Malmö
Grafík Hluti af verki eftir Magdalenu.