Morgunblaðið - 17.05.2017, Page 6

Morgunblaðið - 17.05.2017, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 2017 2024 SLT L iðLé t t ingur Verð kr 2.790.000 Verð með vsk. 3.459.600 Austurvegur 69 - 800 Selfoss // Lónsbakk i - 601 Akureyr i // Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Endurupptökunefnd hafnaði öðru sinni beiðni um endurupptöku dóms Hæstarréttar í máli nr. 356/2016 en í því máli felldi Hæstiréttur úr gildi úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur frá 18. apríl 2016 þar sem aðfar- argerð sýslumanns, sem lauk með árangurslausu fjárnámi hjá endur- upptökubeiðanda, var felld úr gildi. Taldi endurupptökubeiðandi að tveir dómarar málsins í Hæstarétti hefðu verið vanhæfir til úrlausnar þess og vísar til umfjöllunar sinnar í máli endurupptökunefndar nr. 3/ 2016. Jafnframt telur endurupp- tökubeiðandi að formaður endur- upptökunefndar hafi verið vanhæf- ur til að úrskurða í máli endurupptökunefndar nr. 3/2016. Lögmannsstofa í eigu formanns endurupptökunefndar hafi til með- höndlunar ágreiningsmál sem gagn- aðili í máli þessu reki gegn eig- inmanni endurupptökubeiðanda. Í niðurstöðu endurupptökunefnd- ar er vísað til fyrra máls endur- upptökubeiðanda fyrir nefndinni en þar segir um hæfi dómara að meint tengsl eins dómara og fyrri störf beggja dómara í alls óskyldum mál- um séu ekki til þess fallin að draga óhlutdrægni þeirra með réttu í efa. Jafnframt segir nefndin að mála- tilbúnaður endurupptökubeiðanda er lýtur að því að formaður endur- upptökunefndar hafi verið vanhæf- ur eigi ekki við rök að styðjast. Formaður endurupptökunefndar tengdist ekki á neinn hátt ágrein- ingsmáli sem eiginmaður endurupp- tökubeiðanda átti aðild að sem end- urupptökubeiðandi vísar til, að því er segir í úrskurðinum. Þá segir enn fremur í niðurstöðu nefndarinn- ar að þar sem einungis er unnt að sækja um endurupptöku einu sinni, sbr. 2. mgr. 169. gr. laga um með- ferð einkamála, skorti lagaskilyrði til að fjalla um endurupptökubeiðn- ina og var henni því hafnað þegar í stað, sbr. 2. mgr. 168. gr. laganna. Endurupptökunefnd hafnar sömu beiðni öðru sinni  Endurupptökubeiðandi sakar formann um vanhæfi Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Reykjavíkurborg hefur á skömmum tíma hafnað tilboðum í allmörg verk þar sem þau reyndust verulega yfir kostnaðaráætlun. Þar á meðal var gerð göngubrúar yfir Breiðholts- braut við Norðurfell. Aðeins barst eitt tilboð í verkið, frá Ístaki hf., og var það 228% af kostnaðaráætlun. „Verktakar á vissum sviðum mannvirkjagerðar hafa mjög mikið að gera og hjá mörgum er verkefna- staða þannig að þeir geta ekki bætt við sig verkefnum a.m.k. þetta sum- arið eða árið. Einkum á þetta við fag- greinar í bygging- ariðnaði og þá hjá „smærri“ verk- tökum. Það virðist ekki vera spenn- andi fyrir þessa aðila að vera að keppa á opinber- um útboðsmark- aði við þessar að- stæður,“ segir Ámundi V. Brynj- ólfsson, skrifstofustjóri framkvæmda og viðhalds hjá Reykjavíkurborg. Tilboð Ístaks í gerð göngubrúar yf- ir Breiðholtsbraut ásamt gerð að- liggjandi stíga hljóðaði upp á 325,6 milljónir króna. Kostnaðaráætlun var 143 milljónir. Þarna munar 182 milljónum. Þetta var samvinnuverk- efni borgarinnar og Vegagerðarinn- ar. „Það sem er óvenjulegt er að fá að- eins eitt tilboð í verkefni af þessari stærð sem þá sýnir okkur það að stórir verktakar eru einnig komnir með fangið fullt af verkefnum. Aðilar virðast þó einhverjir vera tilbúnir að taka að sér verkefni fyrir þann viðbótarkostnað sem því fylgir að hugsanlega flytja inn vinnuafl tímabundið og að útvega húsnæði. Kostnaðaráætlun fyrir þetta verk- efni var yfirfarin sérstaklega eftir opnun tilboða og reyndist hún ekki vera óeðlilega lág,“ segir Ámundi. Engin ákvörðun hefur verið tekin um það hvenær þetta verk verður boðið út aftur en göngubrúin verður mikil samgöngubót fyrir Breiðholts- búa. „Við munum taka stöðuna á framkvæmdum við brúna aftur í haust,“ segir Ámundi. Tilboðum var einnig hafnað í nokk- ur önnur verk sem munu því dragast. M.a. er um að ræða endurnýjun og stækkun á æfingasvæði Víkings, end- urnýjun veðurkápu Hólabrekku- skóla, endurnýjun Freyjutorgs og framkvæmdir í Árbæjarhverfi og Vesturbæ. Tilboðin verulega yfir áætlun  Reykjavíkurborg hefur á skömmum tíma hafnað tilboðum í allmörg verk  Verktakar önnum kafnir  Eina tilboðið í göngubrú var 228% af áætlun Ámundi V. Brynjólfsson SFR hefur vísað kjaradeilu sinni við Isavia til rík- issáttasemjara. Árni Stefán Jónsson, formað- ur SFR, sagði í samtali við Morg- unblaðið síðdegis í gær að hann vissi ekki hvenær sáttasemjari myndi boða til sáttafundar. Hann kvaðst eiga von á að það yrði fljót- lega. Sem kunnugt er þá kolfelldu fé- lagsmenn SFR hjá Isavia nýgerðan kjarasamning hinn 25. apríl. Árni Stefán kvaðst eiga von á að þetta yrðu erfiðar samninga- viðræður. agnes@mbl.is SFR vísar til sáttasemjara Árni Stefán Jónsson ist af ýmsum ástæðum. Það er Fura ehf. í Hafn- arfirði sem vinnur verkið. Haraldur Þór Ólason, stjórnarformaður Furu, segir að þeir hafi byrjað að rífa Perlu í síðustu viku og reiknað sé með að verkið taki tvær vikur. Að sögn Haraldar verður brotajárnið flutt með skipi til Spánar þar sem það verður brætt og notað að nýju. Haraldur segir að heimsmarkaðsverð á brotajárni hafi verið afar lágt frá árinu 2015. Það hafi þó heldur hækkað að undanförnu. Hins vegar hafi styrking krónunnar skekkt samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja. sisi@mbl.is Nú er unnið að því að rífa sanddæluskipið Perlu í Hafnarfjarðarhöfn. Perlan sökk sem kunnugt er í Reykjavíkurhöfn 2. nóvember 2015 og í fram- haldinu var skipið dæmt ónýtt. Ákvörðun var tekin um að rífa það i brotajárn. Skipið var síðan dregið til Hafnarfjarðar. Niðurrifið hefur dreg- Morgunblaðið/Guðmundur Árnason Lokahöfnin verður málmbræðsla á Spáni Sanddæluskipið Perla rifin í brotajárn í Hafnarfjarðarhöfn Héðinn Steingrímsson hélt áfram sigurgöngu sinni á Íslandsmótinu í skák í Hafnarfirði í gærkvöld. Þá fór fram sjötta umferð og vann hann Hannes Hlífar Stefánsson með mjög góðri endataflstækni. Héðinn hefur 5½ vinning. Guðmundur Kjartansson er hins vegar ekkert á því að sleppa Héðni langt frá sér og fylgir honum eins og skugginn. Í gærkvöld vann Guð- mundur nafna sinn Gíslason eftir að hafa haft frumkvæði alla skákina. Hann er aðeins hálfum vinningi á eftir Héðni. Baráttan á Íslandsmótinu 2017 virðist því ætla að standa á milli Ís- landsmeistaranna frá 2015 og 2014. Þeir munu mætast í lokaumferðinni á laugardaginn. Í dag er frídagur. Sigurganga Héðins heldur áfram Reykjavíkurborg hefur á þessu ári boðið út um 80 verkefni við mannvirkjagerð, bæði stór og smá. Ýmist er það í opnum út- boðum eða í lokuðum verðfyrir- spurnum. Meðaltal tilboða á tímabilinu janúar-maí er um 104% af kostnaðaráætlunum. Meðaltal tekinna tilboða er um 85% af kostnaðaráætlun. 80 verkefni boðin út í ár REYKJAVÍKURBORG

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.