Morgunblaðið - 17.05.2017, Síða 29

Morgunblaðið - 17.05.2017, Síða 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 2017 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú ert í sjöunda himni því allar þínar áætlanir hafa staðist. Slakaðu á kröfunum, það gefur meira af sér en að píska sig áfram og vera útkeyrður allan daginn, alla daga. 20. apríl - 20. maí  Naut Góður vinur leitar ásjár hjá þér og þú verður að gefa þér tíma til þess að sinna honum. Hvíldu þig og leggðu nýtt mat á þörfina fyrir innri frið, ekki síður en þörfina fyrir veraldleg metorð. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Peningar sem náinn vinur hefur lofað þér gætu látið á sér standa. Ekki ganga of harkalega á eftir því en minntu frekar vinalega á þig. Gott væri að gefa sér tíma til íhugunar. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Mikilvægt framlag þitt til vináttu hef- ur ekki fengið verðskuldaða athygli – þar til nú. Fáðu traustan vin til þess að gera slíka úttekt á þér. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þér finnst sótt of fast að þér úr öllum áttum og þú þarft að verja sjálfan þig. Taktu þér hlé frá hinni endalausu baráttu, hún er hvort eð er ekki að skila neinu þessa dag- ana. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Ef fullkomnun er leiðigjörn valda æf- ingar beinlínis hrotum. Sama landslag getur virst drungalegt eða himneskt, allt eftir því hvernig birtan er. 23. sept. - 22. okt.  Vog Góðu fréttirnar eru þær að þú þarft ekki lögfræðing. Samræður um heimspeki, trú eða frumspeki gæti fengið þig til að sjá hlut- ina frá öðru sjónarhorni. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú vilt gera öllum til geðs en þarft að muna að það er ekki alltaf mögu- legt. Ef þú staldrar við vandamálið missir þú sjónar af hinni augljósu lausn. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Tölvuvandræði og tæknilegir erf- iðleikar gera vart við sig í dag. Kynntu mál þitt af hógværð og þá færðu fólk til að hlusta á þig. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú ert svo heillandi núna að þú gætir fengið fólk til að að gera allt það fyrir þig sem þú nennir ekki að gera. Hikaðu ekki við að tjá öðrum væntumþykju þína. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Notfærðu þér þann hæfileika þinn að vera fundvís á missmíðir. Sérstaklega ef vandinn er ekki hluti af vinnunni þinni. 19. feb. - 20. mars Fiskar Besta leiðin til þess að fá það sem þú vilt er ekki endilega sú fyrsta sem manni dettur í hug. Komdu þér í viðunandi form. Ekki hefur farið á milli mála að um-ferð um Keflavíkurflugvöll hefur snaraukist og fjöldi þeirra, sem fara um Leifsstöð árlega, hefur margfald- ast. Þetta hefur skilað sér í löngum og tímafrekum biðröðum. x x x Biðraðir við brottför eru þó orðnarskaplegri eftir að innritunar- vélar komu til sögunnar. Víkverji á reyndar í mesta basli við að setja þar til gerðan límmiða á ferðatöskuna sína, en reynir að vanda sig sem mest hann má því að hann vill vera viss um að hún berist á réttan flug- völl. Í liðinni viku kom Víkverji til Ís- lands frá Bandaríkjunum og var ekki fyrr kominn inn í flugstöðvar- bygginguna en blasti við gríðarleg þvaga, sem breiddi úr sér veggja á milli. Silaðist þvagan hægt og bítandi í átt að tveimur stigum, skriðstiga og venjulegum stiga. Aðeins áhöfnum og völdum einstaklingum var hleypt upp skriðstigann. Það hefur þó ef til vill verið af öryggisástæðum að fólki var ekki hleypt í skriðstigann því að uppi tók við önnur þvaga. Hefði skapast bráð hætta ef menn hefðu orðið fastir í skriðstiganum. Víkverji hafði á tilfinningunni að í þvögunni væru hundruð manna, allir jafn gátt- aðir á þessari röð og margir órólegir vegna þess að þeir þurftu að ná tengiflugi áfram til Evrópu og tíminn orðinn naumur. Þeir róuðust þó þeg- ar tilkynnt var að beðið yrði eftir far- þegum og enginn skilinn eftir. x x x Þegar upp stigann var komið leitVíkverji við og sá að holið fyrir neðan var enn fullt af fólki. Í ljós kom að ástæðan fyrir mannþröng- inni var vegabréfaskoðun. Þar sem Ísland er gáttin inn á Schengen- svæðið þegar komið er frá Ameríku þarf að skoða vegabréf allra farþega. x x x Frá því að Víkverji gekk frá borðiþar til hann var kominn í gegnum vegabréfaskoðun leið klukkutími. Víkverji verður að játa að það er ým- islegt annað sem freistar eftir langt næturflug en að standa í biðröð eftir að fá að sýna vegabréf. vikverji@mbl.is Víkverji Því að ég, Drottinn, er Guð þinn, ég held í hægri hönd þína og segi við þig: „Óttast eigi, ég bjarga þér (Jes. 41:13) SOUS VIDE FYRIR FULLKOMNA ELDUN Með sous vide tækinu frá Wartmann er hægt að elda á lágum hita og halda þannig safa og bragði inni í kjötinu. Hárnákvæm hitastillingin helst jöfn og sveiflulaus út eldunartímann og maturinn verður safaríkur og mjúkur. • Vatnsdæla heldur vatninu á hreyfingu • Hámarks hitastig 95 gráður á Celsíus • Hámarks eldunartími 60 klukkustundir • Þægilegt stjórnborð • Hægt að nota í allt að 20 lítra af vatni • 1300 W • Vegur aðeins 1100 grömm Verð 23.500,- m.vsk Helgi R. Einarsson segir að nú séstefnan tekin í sauðburð. „Bustarfellsblús“ hafi orðið til fyrirfram, Litlu lömbin þau hoppa, lífsglöð um grundirnar skoppa. Mjólkina fá mömmunni hjá, en myndast sjálf við að kroppa. Sætur er dindill og snoppa sæluna er erfitt að toppa. Jarmandi gáski, gleði og máski um lífið þau flippandi floppa. Fyrir hálfum mánuði heilsaði Páll Imsland leirliði í blíðunni, – sagði að þessi limra risi ekki hátt fremur en ýmsar aðrar en segði sína sögu um það sem gerðist á ballinu. Ömmi varð óður í tjútt og hann öskraði er hann fékk sprútt: Það er væmið og flatt – það víst er og satt – og það vantar sko í það allt fútt. Við setningu Sæluviku sunnudag- inn 30. apríl voru að vanda kunn- gerð úrslit í árlegri vísnasamkeppni. Fjölmargar vísur og seinnipartar bárust svo sem jafnan. Besta botninn að mati dómnefndar átti Magnús Geir Guðmundsson á Akureyri: Vorið fyllir vitin mín, vangann strýkur blærinn. Fegurst er vor fjallasýn og fallegastur bærinn. Bestu vísuna átti svo Skagfirðing- urinn Ingólfur Ómar Ármannsson: Bera gnægð á Bragavöll, búnir kostum flestum. Tengjast þeirra afrek öll ástum, söng og hestum Ingólfur Ómar segir frá því að hann hafi verið á Kálfafelli í Skaftár- hreppi og skroppið að Lómagnúp: „þar bar margt fyrir augu enda fal- legt veður og kvöldsólin skartaði sínu fegursta og víða grasi vaxnar brekkur og tún. Hér á bæ er sauð- burður sirka hálfnaður og allt geng- ur sinn vana gang en þegar kemur stund milli stríða þá er tilvalið að skoða sig um þegar vel viðrar enda höfum við hér um slóðir sloppið við allt þetta hvassviðri sem herjað hef- ur á suðausturhornið undanfarna daga.“ Hrynur foss af hamrabrún, hlíðar skreytir vanga. Gróa brekkur, grænka tún, grös úr jörðu anga. Glóey vefur geislahjúp, gullnum skartar eldi. Leiftri slær á Lómagnúp, logar himinsveldi. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Bustarfellsblús, sæluvikan og Lómagnúpur Í klípu „ÉG BÝST VIÐ AÐ ÞÚ GETIR REYNT AÐ LEGGJA INN FORMLEGA KVÖRTUN. ÞÚ ÁTT EKKI EINU SINNI SMÓKING, ER ÞAÐ?“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÞETTA ER VASALJÓS. ÉG FANN EKKI KERTIN.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... þegar varir ykkar passa fullkomlega. OG HÉR KOMA FRÉTTIR Í ALVÖRUNNI?VÁ… LESTU ÞÆR UPPHÁTT! ÞÚ ERT HEPPINN, KÓNGSI! ÞETTA ER HUNDRAÐASTI KASTALINN SEM VIÐ RÆNUM Í ÞESSUM MÁNUÐI! OG HVERNIG ER ÞAÐ HEPPNI FYRIR MIG? VIÐ ERUM OF ÞREYTTIR TIL ÞESS AÐ RÚSTA NOKKUÐ!!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.