Morgunblaðið - 17.05.2017, Blaðsíða 36
MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 137. DAGUR ÁRSINS 2017
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 548 KR. ÁSKRIFT 5.950 KR. HELGARÁSKRIFT 3.715 KR. PDF Á MBL.IS 5.277 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.277 KR.
1. „Fólk er orðið úrvinda af þreytu“
2. Var líklega látin fyrir bílslysið
3. Raunveruleg hætta á annarri árás
4. „Ég er búin að fá nóg“
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Guðrún Birgisdóttir flautuleikari
og Selma Guðmundsdóttir píanóleik-
ari halda tónleika í dag kl. 12.15 í
Salnum í Kópavogi. Þær munu leika
nokkrar sígildar perlur eftir Vivaldi,
Bach, Grieg, Elgar og Rachmaninoff,
auk vel valinna laga eftir Sigfús Hall-
dórsson. Tónleikarnir verða um 30
mín. að lengd og aðgangur ókeypis.
Ljúfir píanó- og
flaututónar í Salnum
Sýning á ferða-
dagbókum Önnu
Sigríðar Hróðmars-
dóttur verður opn-
uð í dag í Borgar-
bókasafninu í
Sólheimum.
Undanfarin 20 ár
hefur Anna Sigríður
búið til bók fyrir hvert ferðalag sitt út
fyrir landsteinana og eru bækurnar
með ýmsu sniði, af ýmsum stærðum
og gerðum og búnar til úr fjölbreyttu
hráefni. Það sem ræður útliti bókar-
innar er t.a.m. lengd ferðalagsins og
svo mismunandi efnisval Önnu.
Ferðadagbækur
Önnu í Sólheimasafni
Sönghópurinn Spectrum heldur til
Spánar í haust til að taka þátt í al-
þjóðlegu kóramóti. Í tilefni af því eru
haldnir tónleikar í Guðríðarkirkju í
kvöld kl. 20 þar sem flutt eru lög eftir
m.a. Mugison, Tómas R. Einarsson,
Billy Joel, Freddy Mercury
og Eric Whitacre. Hljóð-
færaleikarar eru Vign-
ir Þór Stefánsson,
Gunnar Hrafnsson,
Ársæll Másson og
Þorvaldur Ingveld-
arson. Stjórnandi er
Ingveldur Ýr Jóns-
dóttir.
Vortónar Spectrum
Á fimmtudag Norðan 3-10 m/s, en 10-15 vestan til fram yfir
hádegi. Léttskýjað sunnanlands, annars dálítil rigning eða skúrir.
Á föstudag Hæg breytileg átt eða hafgola og bjart með köflum.
Hiti 6 til 13 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðan 10-18 m/s norðvestan- og vestan-
lands, stöku skúrir á Suðvesturlandi, annars víða rigning.
VEÐUR
„Ég var ekkert tengdur Eyjum og á
hér engin skyldmenni. Ég hef verið að
koma hingað í apr-
íl og er bara yfir
hásumarið, og þá
að minnsta kosti
er þetta helvíti
skemmtilegt og
þægilegur staður
til að vera á. Þetta
er bara æðislegt,“ segir
Sindri Snær Magnússon,
knattspyrnumaður úr ÍBV,
sem átti mjög góðan leik í
sigri á Víkingi R. í þriðju
umferð Pepsi-deildar
karla. »2-3
Ánægður með lífið
í Vestmannaeyjum
Valskonum var í vor spáð Íslands-
meistaratitli kvenna í knattspyrnu en
þær eru þegar komnar í erfiða stöðu
og töpuðu í gærkvöld í þriðja sinn í
fyrstu fjórum umferðunum. Stjarnan
hafði betur í viðureign liðanna á Hlíð-
arenda, 3:1, þar sem Agla María Al-
bertsdóttir var í aðalhlutverki. ÍBV
gerði góða ferð til Grindavíkur og
sigraði þar 4:0. »2-3
Meistaraefnin með
þriðja ósigurinn
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Greina má á milli ríkra og fá-
tækra með því að skoða svip-
brigðalausar andlitsmyndir af
fólki. Þetta kemur fram í rann-
sókn sem Þóra Björnsdóttir, dokt-
orsnemi í sálfræði við Toronto-
háskóla í Kanada, og ráðgjafi
hennar, Nicholas Rule, hafa gert,
en greint verður frá rannsókninni
í „Journal of Personality and
Social Psychology“ á næstunni.
Þóra segir að þessar niður-
stöður séu mikilvægar og geti
nýst til þess að koma í veg fyrir
enn meiri ójöfnuð. Þær hafi leitt í
ljós að fólk vill frekar ráða ríka
en fátæka í vinnu, þótt það sjái
aðeins andlitsmyndir af þeim og
viti ekkert um efnahag þeirra.
„Þetta sýnir hvernig tilhneiging
er til þess að skilja og meðhöndla
fólk eftir efnahag og gera stétt-
irnar þannig enn ójafnari,“ segir
Þóra.
Teknar voru 160 andlitsmyndir
af svipbrigðalausu um 20 ára
gömlu fólki, 80 konum og 80 körl-
um, á rannsóknarstofu Toronto-
háskóla. 50% þeirra sem á mynd-
unum voru voru hvít á hörund og
50% asísk, helmingur var með
fjölskyldutekjur undir miðgildi
fjölskyldutekna í Kanada og hinn
helmingurinn með tekjur yfir mið-
gildinu. Rannsakendur sýndu hópi
áhorfenda allar myndirnar, eina
og eina í einu, og báðu þá um að
flokka andlitin sem rík eða fátæk.
Þóra segir að áhorfendur hafi
greint myndirnar að meðaltali
með um 53% nákvæmni sem sé
tölfræðilega töluvert marktækara
en svo að tilviljun hafi ráðið flokk-
uninni. Ekki hafi verið munur á
niðurstöðunum hvort sem áhorf-
endur fengu ótakmarkaðan tíma
til að flokka myndirnar eða aðeins
hálfa sekúndu á mynd. Niðurstöð-
urnar séu í takt við sambærilegar
rannsóknir, þar sem áhorfendur
hafa greint til dæmis kynhneigð
fólks eða stjórnmálaskoðanir
(vinstri, hægri) eftir myndum.
Svipbrigðalaus andlit dæmd
Frá annarri rannsókn var vitað
hvaða þætti fólk tengir við ríka og
fátæka. Fylgni er mikil við vellíð-
an og heilsu og staðalímyndir eins
og að vera aðlaðandi eða klár. Í
rannsókn Þóru var annar hópur
áhorfenda beðinn um að gefa stig
fyrir hvern eiginleika og þannig
mátti sjá fylgni þeirra við ríka og
fátæka eða við þá sem litu út fyrir
að vera ríkir eða fátækir. „Þetta
sýndi okkur að þótt öll andlitin
væru svipbrigðalaus voru þeir ríku
með aðeins glaðlegri svip en þeir
fátæku og áhorfendur notuðu
þennan mun þegar þeir flokkuðu
andlitin,“ segir Þóra. „Þetta teng-
ist hugmyndinni um að ríkidæmi
sé tengt hamingju, sem er satt að
vissu marki. Meiri streita fylgir
fátækt og það sést í andlitinu með
tímanum.“ Hún segir að önnur
rannsókn hafi sýnt að fólk sem sé
oft glatt hafi glaðlegan svip þótt
það sýni engin svipbrigði.
Staða Íslendinga
Hugmyndin er að halda áfram
með rannsóknina og kanna sömu
atriði hjá eldra fólki til að sjá
hvort skilin séu greinilegri með
aldrinum. Eins stendur til að
kanna hvort skilin séu augljósari
eftir löndum þar sem misskipting
sé meiri. „Hugsanlega er erfiðara
að lesa efnastöðu Íslendinga en
Ameríkana úr andliti þeirra,“ seg-
ir Þóra, sem hefur hug á að út-
víkka rannsóknina til Íslands.
Þrátt fyrir að nota megi niður-
stöðurnar til að vinna á móti
ójöfnuði segir Þóra að ekki sé allt
sem sýnist. Þannig hafi ekki verið
hægt að greina á myndum af sama
fólki þegar það var brosandi hvort
það væri ríkt eða fátækt. „Það er
því kannski hægt að fela það með
svipnum hvort maður er ríkur eða
fátækur,“ segir hún og bætir við
að klæðnaður geti líka haft áhrif,
hegðun og fleira.
Ráða frekar ríka en fátæka
Niðurstöður Þóru
geta spornað við
frekari ójöfnuði
Morgunblaðið/Golli
Rannsókn Þóra Björnsdóttir doktorsnemi hefur hug á að útvíkka rannsóknina til Íslands.
Valsmenn meist-
arar annað kvöld?
Annað kvöld geta Valsmenn
fagnað sínum fyrsta Íslands-
meistaratitli í handbolta karla
frá árinu 2007, takist þeim að
leggja FH að velli á Hlíðarenda
í fjórða leik liðanna. Valur er
kominn í 2:1 í einvíginu eftir
að hafa landað sigri öðru sinni
í Kaplakrika í gær, 29:24, og
er einum sigri frá því að kór-
óna algjörlega magnað tíma-
bil sitt sem þegar inniheldur
bikarmeistaratitil og Evrópu-
ævintýri. »4