Morgunblaðið - 18.05.2017, Qupperneq 1
F I M M T U D A G U R 1 8. M A Í 2 0 1 7
Stofnað 1913 121. tölublað 105. árgangur
Síðumúla 30 - Reykjavík | Sími 533 3500
Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504
LANDSINS
MESTA ÚRVAL
AF RIEDELGLÖSUM
LANDSBANK-
INN VIÐ AUST-
URHÖFN
NÝTT VERK Í
ÁRBÆJAR-
KIRKJU
GERA ÞAÐ
SEM ÞEIR
VILJA
30 ÁRA AFMÆLI 31 HERRAR 16 SÍÐURVIÐSKIPTAMOGGINN
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Verið er að leggja lokahönd á framkvæmdir í
verslun Costco í Kauptúni í Garðabæ sem opn-
uð verður á þriðjudaginn og í gær, þegar blaða-
manni og ljósmyndara Morgunblaðsins bauðst
að kynna sér starfsemina, voru tilvonandi
kassastarfsmenn þar í þjálfun. Yfir 200 starfs-
menn hafa verið ráðnir í þessa 14.000 fermetra
verslun og á hverjum degi eru fluttar þangað
vörur úr tíu flutningagámum.
Brett Vigelskas, framkvæmdastjóri Costco á
Íslandi, segir að íslenska verslunin verði nokk-
uð stærri en hin hefðbundna Costco-verslun og
þá sé hún amerískari í útliti og vöruúrvali en
gengur og gerist í verslunum Costco í Evrópu.
„Okkur skilst að Íslendingar séu svolítið hrifnir
af því sem amerískt er og við viljum gjarnan
koma til móts við það,“ segir Brett.
Þetta verður eina evrópska verslunin þar
sem sushi verður útbúið á staðnum og þar sem
lyf verða til sölu. Einnig verður áfengi selt þar í
heildsölu. „Það verður líklega brjálað að gera.
Ég ætla að leyfa mér að fullyrða það,“ segir
Brett spurður hvernig hann haldi að viðtök-
urnar verði á þriðjudaginn. Hann segir að liðs-
menn björgunarsveita verði á staðnum til að að-
stoða starfsfólk, ef þörf verður á.
Erfitt að segja til um Costco-áhrifin
Hugmyndin um að opna Costco-verslun á Ís-
landi kom fyrst upp fyrir u.þ.b. fimm árum að
sögn Bretts. Árið 2014 bárust síðan fyrst
spurnir af áformum þessarar alþjóðlegu
verslanakeðju um að opna verslun hér á landi
og síðan þá hafa íslenskir fjölmiðlar verið iðnir
við að flytja fréttir af undirbúningnum. Brett
segir að þessi mikli áhugi sé í líkingu við það
sem búist hafi verið við.
Costco kaupir ýmsan varning af íslenskum
birgjum og talsvert hefur verið rætt um hugs-
anleg áhrif Costco á aðra smásöluverslun, svo
mikið að til hefur orðið nýtt hugtak í íslensku
máli, Costco-áhrifin. Brett segist hafa heyrt af
þessu nýyrði. „Það hljóta að verða einhver áhrif
af því þegar svona stór verslun er opnuð. En
hversu mikil þau verða eða hvernig, það er erf-
itt að segja til um það, “ segir Brett.
»4 og ViðskiptaMogginn
„Það verður
líklega brjálað“
Björgunarsveitir verða við opnun Costco
Morgunblaðið/Hanna
Í þjálfun Tilvonandi kassastarfsfólk í verslun Costco var í starfsþjálfun í gær. Búist er við að
margir leggi leið sína þangað þegar verslunin verður opnuð næstkomandi þriðjudag.
Framkonur urðu í gær Íslandsmeistarar í handbolta
með sigri á Stjörnunni í spennuleik, í fjórða leik liðanna
í úrslitaeinvíginu. Fram vann einvígið 3:1 og fagnaði
titlinum á heimavelli sínum í Safamýri. » Íþróttir
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Meistaratitlinum fagnað á heimavelli
Framkvæmda-
stjóri Fluglestar-
innar – þróunar-
félags, Runólfur
Ágústsson, segir
farið að skýrast
hvaða leið henti
best fyrir fluglest
á höfuðborgar-
svæðinu. Nú sé
einkum horft til leiðar 1, sem bjóði
upp á tengingar við Vífilsstaði,
Smáralind og Kringluna.
Runólfur á nú í viðræðum við
sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu
um að tengja fyrirhugaða fluglest við
áformaða borgarlínu. Það komi til
greina að hafa fleiri en eina millistöð
fyrir fluglestina. Má því álykta að
horft sé til þess að tengja fluglestina
við fyrirhugaðar biðstöðvar borgar-
línu við Smáralind og Kringlu. »10
Fluglest í
Kringluna?
Leiðin í mótun
Tæplega 1.500 bílar seldust á hin-
um svokallaða gráa bílamarkaði
fyrstu fjóra mánuði þessa árs, bílar
sem fluttir eru inn framhjá bílaum-
boðunum. Þessi tala bendir til þess
að vöxtur á þessum markaði sé
hraður.
Í fyrra voru til samanburðar
keyptir 3.700 bílar á þessum mark-
aði en 1.200 árið þar áður. Inni í
þeim tölum eru notaðir bílar.
Samkvæmt heimildum Viðskipta-
Moggans færist í aukana að nýir og
nýlegir bílar séu fluttir inn af ein-
staklingum og fyrirtækjum með
þessum hætti, og sérstaklega virð-
ist vera vinsælt að flytja inn nýlega
rafmagns- og tengil-tvinn-bíla.
»ViðskiptaMogginn
„Grái“ bíla-
markaður-
inn vex hratt
Seldir framhjá
bílaumboðunum