Morgunblaðið - 18.05.2017, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 18.05.2017, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2017 Leitar þú að traustu BÍLAVERKSTÆÐI Smiðjuvegur 30 (GUL GATA) | 200 Kópavogi Sími 587 1400 |www. motorstilling.is SMURÞJÓNUSTA < HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA TÍMAPANTANIR 587 1400 Við erum sérhæfðir í viðgerðum á amerískum bílum. Mótorstilling býður almennar bílaviðgerðir fyrir allar tegundir bíla. Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Íbúar Húsavíkur hafa síðustu daga notið heimsóknar framandi gesta. Tveir mandarínandarsteggir hafa sest að í skrúðgarði bæjarins og gert sig heimakomna. Mandarínendur eiga uppruna sinn í Austur-Asíu en vegna skrautlegs útlits hafa þær verið vinsælar í lysti- görðum Evrópu og svo virðist sem nokkrar hafi nú flækst hingað til lands. Gaukur Hjartarson, skipulags- og byggingarfulltrúi í Norðurþingi, hefur fylgst með öndunum síðustu daga. Hann segir þær sauðspakar og auðvelt sé að ná af þeim myndum. Steggirnir eru merktir og koma að öllum líkindum frá Belgíu en þeir komu úr eggi í fyrra. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem mandarínendur gera vart við sig hérlendis en Gaukur segir fugla af tegundinni hafa sést hér nokkur sumur í röð. Óvíst sé þó hvort endurnar geti náð fótfestu hér á landi en skortur á kollum, kvenfuglum, hamli því helst. agunnar@mbl.is Ljósmynd/Hörður Jónasson Mandarínendur setjast að á Húsavík Fiðraðir gestir frá fjarlægum löndum „Nú er búið að stytta nám til stúd- entsprófs í þrjú ár og það gæti hafa veikt samkeppnisstöðu iðnnámsins,“ segir Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, sviðsstjóri hjá Samtökum iðnaðarins. Hún mætti á fund hjá Lands- sambandi bakarameistara þar sem hún viðraði nokkur atriði sem hún telur að þurfi að skoða varðandi iðn- nám. Til stendur að eiga fundi með öllum meistarafélögum iðngreina á næstu dögum, þar sem hvert sam- band um sig getur verið með sérþarf- ir vegna eðlis iðnarinnar. „Iðnnám hefur átt undir högg að sækja undanfarin ár, of fáir sækja um nám í iðngreinum,“ segir Ingi- björg jafnframt, afar brýnt sé að fleiri fari í iðnnám. Skoða þurfi ýmis atriði, t.d. hvort stytta megi iðnnám- ið til jafns á við stúdentspróf, en ein- ingar til sveinsprófs eru ekki fleiri en til stúdentsprófs, skv. mennta- og menningarmálaráðuneyti. Nú innrit- ast nemendur í bóknám og útskrif- ast, en það er hærra flækjustig í iðn- námi. 16 ára unglingar þurfa til dæmis að finna sér meistara en það getur verið erfitt, ekki síst fyrir iðn- nema úti á landi. Þá segir Ingibjörg að takast þurfi á við kerfislægan vanda, en stjórn- sýslan í kringum námið sé þung. Hlutverk starfsgreinaráðs sé of óskýrt, það séu mörg tækifæri til úr- bóta. Stuðst er við „Hvítbók“ menntamálaráðuneytisins, ásamt út- tekt frá Ríkisendurskoðun en þar komi fram gagnrýni og afgerandi rök með úrbótum. Hugmyndir uppi um að stytta iðnnám í þrjú ár Morgunblaðið/Sverrir Iðnnám Til skoðunar hjá stjórn- völdum að stytta iðnnámið í þrjú ár.  SI ræða við meistarafélögin Fyrstu samningarnir við landeig- endur í Hornafirði vegna nýs hring- vegar voru undirritaðir fyrr í vik- unni, að sögn Vegagerðarinnar. Sveitarfélagið Hornafjörður hefur þegar veitt framkvæmdaleyfi. Sett- ar verða 200 milljónir í fram- kvæmdina á þessu ári. Með nýja veginum mun ein- breiðum brúm á hringveginum fækka um þrjár. Vegurinn mun liggja á milli bæjanna Hólms og Dynjanda. Vegamót verða við nú- verandi hringveg á móts við Hólm, tengingar að Brunnhóli og Einholti aðlagaðar nýjum vegi, tengivegur verður meðfram Djúpá. Gerður verður varnargarður austan Hornafjarðarfljóts, ný vegamót verða við Hafnarveg og önnur vegamót við núverandi hringveg austan Hafnarness. Samið við landeig- endur í Hornafirði um nýjan hringveg Allmargir viðskiptavinir Rarik urðu fyrir tjóni á rafbúnaði vegna spennu- sveiflu í flutningskerfi Landsnets í gærmorgun. Þannig bárust tilkynn- ingar frá notendum á Kirkjubæjar- klaustri og nágrenni um skemmdir á sjónvörpum, ísskápum og varma- dælum. Ekki fengust svör í gær um það hvort raforkufyrirtækin bættu notendum tjónið. Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri Rarik, segir að við truflun í flutn- ingskerfi Landsnets hafi orðið veru- leg spennuhækkun í dreifikerfinu, áður en varnarbúnaður náði að rjúfa strauminn. Því virðist sem há spenna hafi farið út til notenda. Tryggvi seg- ir að Rarik hafi verið að setja upp varnarbúnað víðar til að varna því að svona spennuhækkanir færu til not- enda. Vonast hann til að það hafi virkað, þannig að tjón hafi ekki orðið víðar. Skipting mistókst Rafmagn fór af stórum hluta Austurlands og vestur fyrir Kirkju- bæjarklaustur í gærmorgun. Það varð vegna kerleka hjá Norðuráli á Grundartanga. Samkvæmt upplýs- ingum Landsnets brugðust kerfis- varnir sjálfvirkt við til að koma í veg fyrir kerfishrun. Kerfinu var skipt upp í nokkrar sjálfstæðar einingar til að einangra svæðin frá trufluninni. Kerfishlutinn frá Fljótsdal að Sig- öldu náði ekki jafnvægi og varð straumlaust á því svæði í tvo tíma og sums staðar lengur. Steinunn Þor- steinsdóttir, upplýsingafulltrúi Landsnets, segir að atburðurinn sýni berlega hversu veik byggðalín- an er og mikilvægi þess að styrkja hana. Álver Fjarðaáls í Reyðarfirði slapp að mestu en þurfti þó að draga úr rafmagnsnotkun um tíma. Landsnet varð fyrir tjóni á að- veitustöð sinni í Reyðarfirði og hugs- anlega einnig á Hryggstekk. Einnig var talið mögulegt að jarðstrengur sem liggur úr Skriðdal í Reyðarfjörð hafi bilað. Ekki fengust svör um það hjá Landsneti og Rarik hvort tjón not- enda yrði bætt og þá hvort fyrirtæk- ið myndi gera það. helgi@mbl.is Tjón á rafmagnstækjum  Spennuhækkun varð í dreifikerfi Rarik í Skaftárhreppi í truflunum á flutnings- kerfinu í gærmorgun  Sjónvörp, ísskápar og varmadælur skemmdust Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu (LRH) skráði 144 brot í apríl þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og 105 brot þar sem öku- maður var grunaður um ölvun við akstur. Ekki hafa verið skráð jafn mörg brot vegna aksturs undir áhrifum ávana- og fíkniefna eftir að ný lög tóku gildi árið 2006. Leita þarf aftur til nóvember 2008 til að finna fleiri ölvunarakstursbrot en í apríl. Þetta kemur fram í af- brotatölfræði LRH fyrir apríl. Þá bárust 655 tilkynningar um hegningarlagabrot. Það dró úr þjófnuðum, ofbeldisbrotum gegn lögreglu og kynferðisbrotum miðað við meðalfjölda síðustu sex mánuði á undan. gudni@mbl.is Margir voru í vímu undir stýri í apríl Framkvæmdir við byggingu 112 stúdentaíbúða í 1. áfanga Há- skólagarða Háskólans í Reykjavík (HR) eiga að hefjast í haust. Íbúð- irnar eiga að vera tilbúnar sumarið 2019 samkvæmt samkomulagi sem Dagur B. Eggertsson borgastjóri og Ari Kristinn Jónsson, rektor HR, undirrituðu í gær. „Íbúðirnar verða byggðar á grundvelli stofnframlags frá Íbúða- lánasjóði og Reykjavíkurborg, sem er liður í aðgerðum borgarinnar og ríkisins til að auðvelda og hraða uppbyggingu hentugs húsnæðis fyrir stúdenta,“ segir í tilkynningu. Gert er ráð fyrir 390 íbúðum á lóð HR við Öskjuhlíð, samkvæmt nýju deiliskipulagi. gudni@mbl.is 112 stúdentaíbúðir Háskólagarða HR Birtíngur útgáfufélag ehf. hefur rift samningi við Pressuna ehf. um kaup Pressunnar á öllu hlutafé í Birtíngi. Starfsfólki Birtíngs voru tilkynnt þessi málalok í gær en riftunin var undirrituð 10. maí síðastliðinn. „Það kom á daginn að fjárhags- staða Pressunnar er mun verri en af var látið. Að okkar mati voru engar líkur á því að þeir gætu greitt kaup- verðið og staðið við samninginn, staðan er svo slæm,“ sagði Karl Steinar Óskarsson, framkvæmda- stjóri Birtíngs. „Við sömdum um það við eigendur Pressunnar að rifta kaupunum og láta þetta ganga til baka. Það voru þegar orðnar van- efndir á kaupsamningnum.“ Karl Steinar sagði að Birtíngur stæði ágætlega fjárhagslega og gæti alveg staðið á eigin fótum. Útgáfu- félagið gekk í gegnum mikla fjár- hagslega endurskipulagningu á liðnu hausti áður en farið var að ræða um sameiningu við Pressuna. Tilkynnt var um kaup Pressunnar á Birtíngi 25. nóvember sl. með fyr- irvara um samþykki eftirlitsstofn- ana. Samkeppniseftirlitið samþykkti sameininguna 6. febrúar sl. Birtíngur útgáfufélag er stærsta tímaritaútgáfan hér á landi og gefur m.a. út Vikuna, Hús og híbýli, Gest- gjafann og Nýtt líf. Félagið var stofnað haustið 2006 og hefur starfað síðan. gudni@mbl.is Birtíngur og Press- an skilin  Ekkert verður af sameiningu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.