Morgunblaðið - 18.05.2017, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2017
Framtak-Blossi er umboðsaðili
fyrirVOLVO PENTA á Íslandi
Dvergshöfða 27 , 110 Reykjavík | www.blossi.is | blossi@blossi.is
Framtak-Blossi
kappkostar að bjóða
góða þjónustu og
sanngjarnt verð á
varahlutum.
Hafið samband við
Hafþór í síma 895-3144
eða hafthor@blossi.is
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Amma mín er mér sterk fyrirmynd,
enda lífsglöð kona sem fylgist vel
með sínu fólki og vill öllum vel. Svo
virðist hún líka vera alveg ódrepandi
og enn með fótavist, þrátt fyrir að
hafa ung barist við berkla og seinna
verið keyrð niður af ökumanni og
mölbrotnað. Þetta er ótrúleg kona,“
segir Agnes Hauksdóttir.
Nítján afkomendur
Helga Guðmundsdóttir í Bol-
ungarvík varð 100 ára í gær og hélt
upp á daginn fyrir sunnan með sínu
fólki þar. Meðal annars komu í af-
mælið fjórar systur hennar, sú
yngsta níræð, en þær og Helga eru
einar eftirlifandi úr hópi 15 systkina
frá Blesastöðum á Skeiðum. Komin
vel á fertugsaldur flutti Helga svo
vestur í Bolungarvík þegar hún gift-
ist Gunnari Hirti Halldórssyni, sjó-
manni og verslunarmanni í Bolung-
arvík, sem dó fyrir tíu árum. Þau
eignuðust þrjú börn og lifa tvö
þeirra; Agnar, oddviti í Miklabæ í
Skagafirði, og Ósk, kennari í Kópa-
vogi. Látin er Kristín sem síðast var
kennari í Keflavík. Barnabörnin eru
sex og langömmubörn Helgu eru
orðin alls 13. Afkomendurnir eru því
orðnir alls 19.
Dýrmætt að eiga ömmu
„Það er dýrmætt fyrir mig að
eiga ömmu á lífi, hressa og káta, og
vera sjálf orðin 36 ára gömul. Dóttir
mín, Karólína Ósk Rafnsdóttir, sagði
raunar við mig fyrir nokkrum dög-
um að ég ætti að vera eins og
langamma: alltaf glöð og deyja aldr-
ei. Eða kannski er þetta bara eins og
sungið var í laginu, Ég langömmu á
sem að létt er í lund,“ segir Agnes
Hauksdóttir að síðustu.
Langamma er fyrir-
mynd og létt í lund
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Vinátta Helga Guðmundsdóttir, Karólína Ósk Rafnsdóttir langömmustelpa og móðir hennar, Agnes Hauksdóttir.
Helga Guðmundsdóttir í Bolungarvík varð 100 ára í gær
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Ólafur Ólafsson mætti á fund stjórnskipunar- og
eftirlitsnefndar Alþingis í gær þar sem hann
skýrði frá sinni hlið á einkavæðingu Búnaðar-
bankans en bankinn var einkavæddur árið 2002.
Ólafur bað því nefndarmenn í upphafi fundar að
hafa í huga að 15 ár væru frá þeim atburðum
sem um væri rætt.
Nefndarmenn spurðu Ólaf sérstaklega út í að-
komu þýska bankans Hauck & Aufhauser og fé-
lagið Welling & Partners Limited en fyrrnefndi
aðilinn fékk 1 milljón evra fyrir fjárfestingu sína
en hið síðarnefnda félag 111 milljónir evra. Ólaf-
ur segist aldrei hafa heyrt um Welling & Part-
ners þrátt fyrir aðkomu félagsins að meintri
fléttu á kaupum S-hópsins á Búnaðarbankanum.
Samkvæmt upplýsingum rannsóknarnefndar
Alþingis fékk aflandsfélagið Marine Choice
Limited, sem var í eigu Ólafs Ólafssonar, rúm-
lega helming hagnaðar Welling & Partner en
hann kannaðist ekki við hverjir væri eigendur
Dekhill Advisors Ltd sem fékk hinn hluta hagn-
aðarins 2006.
Ekki skilyrði að hafa erlenda aðila
Ólafi gafst kostur að skýra frá sínu máli í upp-
hafi áður en komið var að spurningum nefnd-
armanna og nýtti hann tímann m.a. til að skýra
frá skilyrðum stjórnvalda við sölu Búnaðar-
bankans og stöðu S-hópsins, sem keypti bank-
ann af ríkinu.
„Óskað var eftir íslenskum eða erlendum að-
ilum. Engin skilyrði voru um annað,“ sagði Ólaf-
ur og vísaði máli sínu til stuðnings í fund sem
hann átti með einkavæðingarnefnd 28. ágúst
2002 þar sem hann segir þetta viðhorf hafa verið
ítrekað. Jafnframt benti hann á að S-hópurinn
hefði boðið hæsta verð í bankann og verið met-
inn hæfastur, með eða án erlendra fjárfesta.
„Það kemur hvergi fram í neinum skjölum að
það hafi nokkurn tímann verið skilyrði að við
sem S-hópur yrðum að hafa með okkur erlendan
fjárfesti,“ sagði Ólafur og bætti við að það hefði
verið þeirra markmið sem kaupanda að bank-
anum að hafa með sér erlendan fjárfesti.
Í lok framsögu sinnar benti Ólafur á þátt lög-
gjafans sem hann segir að setja þurfi skýrar
reglur um sölu ríkiseigna.
„Þegar ríkið kaupir ferju eða skóla er alveg
skýrt ferli í kringum það til að girða fyrir póli-
tíska hagsmuni. Þau lög sníða mönnum sérstak-
an stakk,“ sagði Ólafur og bætti svo við að þeg-
ar kæmi að sölu eigna væru engin lög. Benti
hann máli sínu til stuðnings á sölu bankanna,
ÍAV, Þormóðs ramma, Borgunar og Vífils-
staðalandsins.
Sakaður um blekkingar og óheilindi
Vilhjálmur Bjarnason, þingmaður Sjálfstæð-
isflokksins, lagði fram tvö skjöl, m.a. fréttatil-
kynningu frá 2003 um aðkomu þýska bankans
Hauck & Aufhauser að kaupunum á Búnaðar-
bankanum.
„Hvers vegna varstu að setja upp þessa
löngu fléttu með blekkingum?“ spurði Vilhjálm-
ur sem var ansi heitt í hamsi og bætti við
„Hvers vegna komstu ekki hreint fram á þess-
um tíma og sagðist vera að kaupa þetta sjálf-
ur?“
Ólafur svaraði Vilhjálmi og sagði yfirlýs-
inguna hafa verið samda af ríkinu og vísaði til
rannsóknarskýrslu Alþingis um málið. Hann
lagði svo áherslu á að hann hefði ekki samið
þessa yfirlýsingu.
Lilja Alfreðsdóttir, þingmaður Framsóknar-
flokks, spurði Ólaf hvort Hauck & Aufhauser
hefði verið raunverulegur eigandi að hlut í Bún-
aðarbankanum þegar það lægi fyrir að þýski
bankinn hefði eingöngu haft eina milljón evra
upp úr krafsinu en Welling & Partner fengið
111 milljónir bandaríkjadala.
„Þegar þú tekur mikla áhættu geturðu fengið
mikinn hagnað en ef þú tekur litla áhættu
færðu lítinn hagnað,“ sagði Ólafur og vísaði til
þess að Hauck & Aufhauser hefði verið tryggt
svokallað skaðleysi með aðkomu sinni.
Þungt í þingnefndarmönnum
Ólafur Ólafsson skýrði frá sínum þætti í einkavæðingu Búnaðarbankans fyrir stjórnskipunar- og eft-
irlitsnefnd Alþingis Vilhjálmur Bjarnason, þingmaður Sjálfstæðisflokks, gekk hart að Ólafi á fundinum
Morgunblaðið/Golli
Harka Ólafur að svara ásökunum Vilhjálms um blekkingar og lygar í einkavæðingarferlinu.
Pólitíkin var aldrei langt undan á
fundi stjórnskipunar- og eftirlits-
nefndar í gær þar sem Ólafur Ólafs-
son mætti að eigin ósk til að svara
spurningum nefndarmanna sem
sumum var ansi heitt í hamsi og létu
spurningarnar dynja á Ólafi. Þá var
ljóst að nefndarmenn töldu fátt nýtt
koma fram og fátt um svör þar sem
ítarlegri skýringar var óskað.
Þáttur stjórnmálanna
Jón Steindór Valdimarsson, þing-
maður Viðreisnar, spurði Ólaf
hvort hann hefði verið annaðhvort
þátttakandi eða fórnarlamb póli-
tískrar spillingar á þeim tíma sem
einkavæðing Búnaðarbankans fór
fram en Ólafur hafði í upphafi fund-
ar og rétt undir lok hans lýst því að
hann væri ópólitískur og hefði ekki
og tæki ekki þátt í pólitísku starfi.
Svaraði hann Jóni að hann hefði
hvorki tekið þátt í pólitískri spill-
ingu né orðið fórnarlamb hennar.
Spurður um það hvort pólitík hefði
ráðið því að S-hópurinn hefði feng-
ið að kaupa Búnaðarbankann sagði
Ólafur hins vegar að pólitísk
fingraför hefðu verið á öllu ferlinu.
Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pí-
rata, spurði ítrekað að því hvort
Ólafur teldi ekki þörf á sérstakri
rannsókn á einkavæðingu bank-
anna og fullyrti, við litla hrifningu
þingmanna Sjálfstæðisflokksins, að
vitað væri að Sjálfstæðisflokkurinn
hræddist slíka rannsókn á Lands-
bankanum. Ólafur sagði réttara að
menn horfðu fram á veginn en hann
myndi ekki gráta það að Lands-
bankinn yrði rannsakaður eða ótt-
ast ítarlegri rannsókn á Bún-
aðarbankanum.
Spurður um
pólitíska spillingu
Ólafur vísaði til pólitískra fingrafara