Morgunblaðið - 18.05.2017, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 18.05.2017, Qupperneq 13
teymi sem sigraði í Sargate, árlegri sýningarkeppni áhugamanna á salsa- ráðstefnu í Berlín í lok síðasta árs. Og nú stendur mikið til: Fjög- urra daga alþjóðleg salsadanshátíð á Íslandi, Midnight Sun Salsa, dagana 25.-28. maí. Skipuleggjandi og sú sem hefur alla þræði í höndum sér er engin önnur en Edda nokkur Blön- dal. „Ég fékk hugmyndina eftir óvenjulega langan og góðan nætur- svefn dag einn í febrúar fyrir rúmu ári og hóf strax að gera bindandi ráð- stafanir áður en mér yxi tiltækið í augum og hætti við allt saman,“ seg- ir Edda og viðurkennir að spennan sé að ná hámarki, en tilhlökkunin sé að sama skapi mikil. „Öllu verður tjaldað til og allir velkomnir. Í boði eru kennslustundir með sjö erlendum gestakennurum, haldin verða dansiböll á tveimur stöðum, Iðnó og Hilton Reykjavík Nordica, þar sem þrír erlendir skífu- þeytarar leika fyrir dansi. Hápunkt- ur hátíðahaldanna er Norðurlanda- mótið í salsa og bachata laugardags- kvöldið 27. maí, en í keppnina eru skráð 5 erlend pör og 4 íslensk,“ upp- lýsir Edda og fullyrðir að hátíðin sé sú fyrsta sinnar tegundar sem haldin er hér á landi. Eitt stórt excel-skjal Þegar Edda hóf að kynna salsa fyrir landanum segir hún að margir hafi ekki haft hugmynd um hvað hún var að tala um. „Ég þurfti að útskýra fyrir býsna mörgum að salsa væri spunadans en ekki salsasósa með mexíkóskum mat,“ segir hún og er ekkert að grínast. Rétt fyrir hrun var fólk þó farið að taka svolítið við sér. „Tvennt gerðist í hruninu,“ segir Edda. „Annars vegar hafði fólk minna milli handanna og því fækkaði þátttakendum á námskeiðum hjá okkur til að byrja með. Hins vegar sáum við líka breytta forgangsröðun, fólk fór að hugsa meira um hvað gæfi lífinu gildi og vildi frekar rækta sjálft sig með því að fara út að dansa, hitta aðra og hafa gaman af því einfalda; skemmtun og dansi víðsfjarri þessari næturklúbbastemningu sem ein- kennir skemmtanalíf á Íslandi.“ Hjá Salsa Iceland-dansskól- anum er kennt fimm sinnum í viku og skipta sextán kennarar með sér verkum. Að jafnaði kennir Edda einu sinni til tvisvar í viku, en kveðst gjarnan vilja kenna meira. „Utan- umhaldið er slíkt að ég neyðist til að eyða fleiri tímum við tölvuna en á dansgólfinu. Stundum finnst mér ég vera orðin eins og eitt stórt excel- skjal, sérstaklega þessa síðustu daga fyrir salsadanshátíðina.“ Þar sem Edda er ofurseld salsa, svo vitnað sé í hennar eigin orð, er ekki úr vegi að spyrja hvort hún hafi innleitt dansinn á heimili sitt? „Með óbeinum hætti. Það ómar oft tónlist á heimilinu og börnin sjá okkur for- eldrana gjarnan fá okkur snúning í stofunni. Í byrjun okkar tilhugalífs áttaði ég mig á að ég mætti ekki vera of ágeng við að ýta Páli út í salsa, svo ég beitti nokkrum lævíslegum brögð- um. Mér tókst svo vel upp að hann fór að kenna hjá Salsa Iceland og gerir enn,“ segir Edda. Keppni Sýningarteymin hafa tekið þátt í hátíðum og keppt í útlöndum. Karate Edda í karate 1998 og á heimsmeistaramótinu í Mexíkó 2004. Salsa Edda í salsastuði á sviði. Nánari upplýsingar: midnightsunsalsaiceland.com og salsaiceland.com. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2017 Edda segir að oft sé talað um salsa sem 6. samkvæmisdansinn þegar pör dansa. „Annar stýrir og hinn fylgir eftir, en þó ekki eftir fyr- irfram ákveðnum dansrútínum eins og t.d. í keppni í samkvæm- isdönsum. Þeir sem vilja læra salsa byrja á ákveðnum grunn- sporum. Síðan þurfa herrarnir að gefa dömunum bendingar með höndum og líkama. Dömurnar læra að lesa í bendingarnar sem beiðni um snúning til hægri eða vinstri. Með þessum hætti læra pörin al- þjóðlegt danstungumál sem er gjaldmiðill inn í salsasamfélagið og hver og einn getur dansað við hvern sem er hvenær sem er. Keppni í salsa á bara heima á sviði, en annars er salsa að vissu leyti götudans, nokkurs konar spuna- dans. Engin formleg námsleið er í boði og margir af frambærilegustu salsadönsurum heims eru al- gjörlega sjálflærðir eða hafa grunn úr öðrum dönsum.“ Salsa er spunadans SJÖTTI SAMKVÆMISDANSINN Plakat Midnight Sun Salsa. SJÓNMÆLINGAR Tímapantanir: Optical Studio í Leifsstöð, 4250500 Optical Studio í Smáralind, 5288500 Optical Studio í Keflavík, 4213811

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.