Morgunblaðið - 18.05.2017, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 18.05.2017, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2017 Ferðavagn fyrir útivistina! Notalegt svefnpláss fyrir tvo með góðu geymslurými. Vel útbúin eldunaraðstaða með kæli, gaseldavél, vaski, 60 lítra vatnstanki og sturtu. Hægt að bæta við aukahlutum, eins og þakgrind, olíumiðstöð, aukatjaldi með gistirými fyrir tvo í viðbót o.m.fl. SPENNANDI EHF MÖRKIN 6 108 REYKJAVÍK s: 893-7911 skuli@spenn.is Kynningarverð! Sýnum Caretta á Amazing Home Show! - endilega kíkið við! ATH! Utanvegaakstur er ólöglegur samkvæmt lögum. Fyrirtækið GE Appliances hefur til- kynnt um nýjan samning sem það gerði við stórveldið Google. Samningurinn gerir það að verk- um að þeir viðskiptavinir sem kaupa heimilistæki hjá GE Applian- ces geta tengst kerfi á vegum Google sem gerir þeim kleift að raddstýra tækjum heimilisins, s.s. þvottavélum og ísskápum. Samningurinn felur það í sér að kerfið, sem hlotið hefur nafnið „Ge- neva“, tengist raddstýringakerfi Google. Þannig geta notendur ein- faldlega sagt „Google, viltu biðja Geneva Home að stilla tímaklukk- una á ofninum á 10 mínútur.“ Tilkynningin um samninginn kemur tæpu ári eftir að GE Appli- ances upplýsti um svipaðan samn- ing sem fyrirtækið gerði við risa- fyrirtækið Amazon, um samstarf við svokallaða „Alexa-hátalara“ Sömuleiðis kemur tilkynningin í kjölfar þess að Google var talið ætla að upplýsa um frekara sam- starf við fyrirtæki sem sérhæfa sig í gervigreind, á árlegri frumkvöðla- ráðstefnu sinni í Kaliforníu í Bandaríkjunum. Raddstýrð heimili framtíðin Tækni Talandi heimilistæki. Chelsea Manning, bandaríski upp- ljóstrarinn, sem árið 2010 var dæmd fyrir að leka mörg þúsund gögnum í eigu bandaríska ríkisins, var sleppt úr fangelsi í gær. Barack Obama stytti dóminn yfir Manning áður en hann lét af embætti Banda- ríkjaforseta í janúar sl. „Eftir að hafa beðið í fjóra mán- uði er dagurinn loksins runninn upp. Ég er gríðarlega þakklát fyrir þann stuðning sem mér hefur verið veittur undanfarin ár,“ sagði Mann- ing í yfirlýsingu eftir að hún var látin laus úr fangelsi í Leavenworth í Kansas í gær. Þar var henni verið haldið undir hámarks öryggisgæslu undanfarin sjö ár en hún var dæmd til 35 ára fangelsisvistar. Manning birti mynd á Twitter af strigaskóm sínum og sagðist hafa tekið fyrstu skrefin í átt til frelsis. Manning var handtekin í júlí 2010 vegna gruns um að hún hefði komið yfir 700 þúsund bandarísk- um leyniskjölum til uppljóstr- unarvefjarins Wikileaks. Meðal skjalanna voru skýrslur sem starfs- menn bandarískra sendiráða víða um heim sendu til bandaríska utan- ríkisráðuneytisins. Skýrslur úr bandaríska sendiráðinu í Reykjavík voru meðal gagnanna sem Wiki- leaks birti. Manning átti við kynátt- unarvanda að stríða og hét áður Bradley Manning. Hún hóf kynleið- réttingarferli í fangelsinu í Kansas. Píratar boðuðu í gærkvöldi til fagnaðar í Reykjavík í tilefni af því að Manning var látin laus. Chelsea Manning látin laus AFP Manning Fjölmiðlamenn biðu í röðum fyrir utan fangelsið í Leavenworth.  Sat í fangelsi fyrir umfangsmikinn gagnaleka Nicola Sturgeon, forsætisráðherra Skotlands og leið- togi Skoska þjóð- arflokksins, segir að verði Skotland einhvern tíma sjálfstætt vilji hún að landið gangi í Evrópu- sambandið en ekki taka upp evruna. Mögulega þyrftu Skotar þó að gerast aðili að Fríverslunarsamtökum Evrópu, EFTA í millitíðinni. Í EFTA eru nú Noregur, Ísland, Sviss og Liechtenstein. Sturgeon vill að fram fari ný þjóð- aratkvæðagreiðsla um sjálfstæði Skotlands í ljósi þess að Bretar hafi hafnað beiðni Skota um sérstaka undanþágu varðandi aðild Skotlands að innri markaði Evrópusambands- ins eftir að Bretar ganga úr sam- bandinu. aronthordur@mbl.is EFTA mögu- legur milli- leikur Skota Nicola Sturgeon

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.