Morgunblaðið - 18.05.2017, Side 18

Morgunblaðið - 18.05.2017, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2017 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Dagblöð ogaðrir fjöl-miðlar hrærast í „núinu.“ Líðandi stund er þeirra tími. Og því næst nýliðin stund. Þeir segja frá atburðum sem sæta mismiklum tíðindum svo fljótt sem verða má. Stundum skyggnast þeir til framtíðar í gegnum mismikla hulu. Fjöl- miðlar byggja á heimildum og þeim fækkar með hverjum ókomnum klukkutíma. Brúarbygging sem er hafin og lýtur þekktum lögmálum á sennilegan vígslutíma. Honum má slá föstum í frétt. Með kurteislegum fyrirvörum má segja að Karl Bretaprins verði orðinn kóngur innan 10 ára og sonur hans á næstu tveimur áratugum á eftir. Slíkar stað- hæfingar eru innan marka þótt þessi fjölskylda sé ólíkindatól. Filippus prins tilkynnti nýverið að hann myndi draga úr opinber- um verkum í haust enda verður hann 96 ára 10. júní. Fjölskyldan hefur sín viðhorf gagnvart eftir- launaaldri. Valdamenn veraldar tala um að hækka eftirlauna- aldur í 70 ár, en þá vantar 26 ár upp á þá viðmiðun sem Filippus notar. Karl stefnir á að byrja á áttræðisaldri. Morgunblaðið fylgir megin- reglunni um nýliðinn tíma. Þó mátti lesa út úr skrifum þess að það teldi litlar líkur á að Donald Trump næði að verða forseti Bandaríkjanna. Aðrar „spár“ blaðsins hafa staðist skár. Nú hefur Trump verið forseti í rétt tæpa 4 mánuði. Sumir fjölmiðlar vestra, eins og Washington Post, New York Times, CNN, NBC og ABC, sem allir stóðu þétt með Hillary Clinton í baráttunni og leyndu því lítt, hafa haldið kosn- ingabaráttunni áfram síðan. Þeim gengur hægt að fara niður í hlutlausari gír. Það er hefðbundið í Banda- ríkjunum að þessir fjölmiðlar standi vel með demókrötum en dragi, sóma síns vegna, nokkuð úr að kosningum loknum. Meg- inlínurnar eru þó ætíð þær að þessir fjölmiðlar standa með for- setum og kjörnum fulltrúum demókrata en sýna slíkum fulltrúum repúblikana eðlilegt aðhald. En eins og að framan sagði hefur gengið hægar nú að komast niður á eðlilegt aðhalds- stig gagnvart Trump. Átta árin sem Obama var í Hvíta húsinu minnti samband þessara fjölmiðla við hann á það sem er á milli klerks og kirkju- kórs. Tvær ólíkar stofnanir hvor með sinn stjórnanda, en allir halda sama takti. Bómull var brúkuð á Obama en byssustingir á Trump. En Trump er enginn hvítskúraður engill í þessari þrenningu. Hann gengur ekki inn í rulluna sem hefðin er sögð hafa skrifað utan um forseta. Rök hans eru þau að millilendi boðskap- urinn hjá fram- angreindum fjöl- miðlum á leiðinni til landa hans komi hann stór- brenglaður á áfangastað. Trump er því sín eigin fréttastofa. Hann „kemur út“ allan sólarhringinn. Og þar sem hann er sjálfur rit- stjórinn, útsendingarstjóri og prófarkalesari, getur útkoman orðið óvænt. Sjálfsagt græðir Trump oftast á að láta eins og „gervifjölmiðl- arnir,“ séu ekki til. En óná- kvæmar og vanhugsaðar fullyrð- ingar hafa gert honum bölvun þótt þær séu aðeins fáeinar línur í hvert sinn. Snupraðir ofurfjöl- miðlar snúa auðvitað út úr hverju orði. En við því mátti hann búast. Og stundum þarf texti forsetans ekki aðstoð frá andstæðingunum. En fínu fjölmiðlunum skjöpl- ast líka í ákafa sínum og heift. Nú síðast var fullyrt að forsetinn hefði brotið reglur um ríkis- leyndarmál í samtali við utanrík- isráðherra Rússlands. Á því var hamast. Vandinn er sá að sam- kvæmt lögum á forsetinn sein- asta orðið um það, frá hverju megi segja, hvenær og við hvern. Fjölmiðlarnir sem birtu lekana hafa ekki þá heimild. En þess utan hafa þeir upp á síð- kastið fallið í eigin gryfjur vegna fljótfærni og vafasamra heim- ilda. Slegið var upp á forsíðum „stórblaða“ að aðstoðardóms- málaráðherrann hefði hótað að segja af sér. Sá segir það hrein- an skáldskap. Fullyrt var og kallað stórhneyksli að fáeinum dögum fyrir brottrekstur Comeys, forstjóra FBI, hefði hann óskað eftir auknum fjár- veitingum til að rannsaka „Rússaþátt“. Gefið var í skyn að það væri brottrekstursástæðan. Settur forstjóri FBI sem talinn er trúnaðarmaður demókrata segir þetta staðlausa stafi. Í bandarískum refsimálum gildir sú almenna regla að fréttir fjöl- miðla teljast ekki til sönn- unargagna. Það er ekki að ástæðulausu. Margt gott má um framangreinda fjölmiðla segja. En taumlaust hatur og fyrirlitn- ing á núverandi forseta skaðar trúverðugleika þeirra. Það blas- ir við öllum nema innvígðum að þeir geta ekki fyrirgefið að Trump var kosinn, en ekki skjól- stæðingur þeirra. Sú glannalega áhætta skal tekin að spá því hér að Donald Trump sé ekki á förum úr Hvíta húsinu vegna þeirra mála sem þegar hafa komið fram, hvað sem síðar verður. Trump verður þá að binda vonir við að spásagn- argáfa ritstjórnar hafi skánað frá aðdraganda forsetakosninga. Heift ræður of miklu hjá þeim fjölmiðlum sem fylgdu Hillary í kosningunum} Trump forseti og frétta- stofa siglir krappan byr E kki láta mótlætið sigra – haltu áfram því það er aldrei að vita í hverju þú blómstrar. Tvær aug- lýsingar með svipaðan boðskap hafa nýverið birst í sjónvarpinu, önnur frá Lottó og hin frá Icelandair, og boð- skapur þeirra beggja á mikið erindi til okkar í samfélagi einsleitrar íþróttaiðkunar. Það er sorglegt til þess að hugsa að það þurfi að minna á það að það eru allskonar íþróttir í boði, ekki bara útvaldar boltaíþróttir, og að kyn á ekki að skipta máli þegar það kemur að íþróttaiðkun. Innan knattspyrnunnar mæta kvenkyns iðk- endur mótlæti og innan íþróttahreyfingarinnar er mismunun eftir íþróttagreinum. Út um allt land eru reistar rándýrar heilagar fótboltahallir sem öðrum íþróttagreinum er ekki velkomið að nýta sér og þegar iðkendur þeirra fara fram á bætta aðstöðu er að þeim hlegið í reykfylltum bakher- bergjum. Það þykir lítið mál að setja fjármuni í fótboltann en svo virðist sem séð sé eftir hverri krónu sem fer í aðrar íþróttagreinar. Það var skammarleg frétt sem birtist í vikunni um að- stöðuleysi frjálsíþróttafólks á Akureyri. Það fær ekki að nota aðstöðu á Þórsvellinum þrátt fyrir að hann sé þeirra æfingasvæði, búningsklefarnir og félagsaðstaðan er bann- svæði og því nýtti frjálsíþróttafólkið áhaldageymsluna til að hlýja sér í á æfingum. En nú er búið að reka það úr geymsl- unni því fótboltaelítan hjá Þór vill ekki sjá að aðstaðan sé nýtt til annars en fótbolta, samkvæmt fréttum. Sveit- arfélögin eiga að skaffa íþróttastarfi aðstöðu og það er m.a þeirra að grípa inn í svona mál og tryggja fjölbreytnina. Ísland hefur lengi átt góða frjálsíþróttamenn en þeir bæta sig ekki eða fjölgar á meðan þeim er úthýst. Fyrr í vor bárust fréttir af því að stjórn Vík- ings vildi losna við tennisvelli úr Fossvoginum og nota svæðið til knattspyrnuæfinga. Það er samt rekin tennisdeild innan Víkings og ætti því að vera kappsmál stjórnarinnar að hafa smá svæði fyrir tennisiðkendur. Stjórnin bar því við að borgin hefði ekki áhuga á að setja pening í að viðhalda tennisvöllunum en á íbúum í Fossvogi mátti skilja að ekkert hefði verið sóst eftir því og það hefði verið markmið stjórnarinnar að láta vellina drabbast niður til að hafa ástæðu til að fá þá fjarlægða fyrir fótboltann. Þegar það er gagnrýnt hversu illa öðrum íþróttum en útvöldum boltagreinum er sinnt hjá íþrótta- félögunum eða í fjölmiðlum er því oft borið við að það hafi enginn áhuga á öðru eða að það séu ekki nógu margir iðk- endur til að halda öðrum íþróttagreinum uppi. Auðvitað er fótboltinn vinsælastur þegar allir kraftar og fjármunir fara í hann. Hvernig væri að setja samsvarandi fjármuni og at- hygli í aðrar íþróttagreinar og sjá hvar þær verða staddar eftir nokkur ár? Þá munum við kannski eiga fleiri afreks- menn í frjálsum, júdói, tennis, sundi eða dansi og þau börn sem æfa annað en fótbolta yrðu ekki dæmd til að hírast í áhaldaskúrum eða jafnvel dæmd til að æfa ekki neitt því það sem þau hafa áhuga á er ekki í boði. ingveldur@mbl.is Ingveldur Geirsdóttir Pistill Mismunun og mótlæti STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Breytingar á vistkerfumnorðurslóða kalla á meiriog samræmdari vöktun áöllum hafsvæðum í kringum norðurheimskautið, að mati Guðmundar Guðmundssonar, forstöðumanns hjá Náttúru- fræðistofnun Íslands. Fram kemur í skýrslu vinnuhóps norðurskauts- ráðsins um líffræðilega fjölbreytni (CAFF) að vistkerfi norðurslóða eru að breytast og framundan geta verið mikil umskipti. Breytingar á fæðuvali, tap á búsvæðum á ís og breytt ísalög, fjölgun smitsjúkdóma og yfirvof- andi aðflutningur suðrænna teg- unda hefur áhrif á sjávardýr á norðlægum slóðum. Í skýrslunni kemur fram að vegna fæðuskorts í hlýnandi sjó hafi margar norð- lægar tegundir þurft að leita enn norðar í kaldari sjó. Nefnt er sem dæmi að hvítabirnir og sumar teg- undir sela þurfi að ferðast lengri vegalengdir til að afla sér fæðu og hafi stofnar látið á sjá. Sömuleiðis margir sjófuglastofnar. Nefnt er að erfitt geti verið að spá fyrir um afleiðingar þess fyrir vistkerfi norðurslóða þegar fjöldi suðrænna tegunda leitar norður á bóginn. Þær geti útrýmt þeim teg- undum sem fyrir eru eða óhentug fæða fyrir hánorrænar tegundir. Sagt er að breytingar eigi sér nú stað á vistkerfunum. Margar þeirra séu hægfara en einnig megi búast við miklum og skyndilegum breytingum sem hafi áhrif á vist- kerfin. Mikilvægt sé að sporna sem fyrst gegn þeim. Vernda þurfi líf- fræðilega fjölbreytni og koma í veg fyrir að ágengar framandi tegundir nái fótfestu. Vantar betri vöktun Náttúrufræðistofnun Íslands á aðild að þessari vinnu og tóku ís- lenskir vísindamenn þátt í henni. Guðmundur Guðmundsson var í stýrihóp CAFF. Hann segir að hvatinn að gerð skýrslunnar hafi verið að fá yfirlit um hvers konar athuganir og vökt- un væri gerð á lífríkinu í sjónum í kringum norðurskautið. „Kom í ljós að það er afar misjafnt. Sums staðar er ekkert verið að gera, eins og norður af Síberíu, en Norðmenn og Rússar eru með öfluga vöktun í Barentshafi. Íslendingar hafa stað- ið sig ágætlega með fiskistofna- mælingar og hafa birt skýrslur um breytingar á útbreiðslu fiski- stofna,“ segir Guðmundur. Hann segir mikilvægt að fylgj- ast kerfisbundið og á samræmdan hátt með lífríkinu í sjónum. „Ef vel á að vera þarf að vera sérstök fjár- veiting í þetta, hvort sem ríkin gera það sameiginlega eða hvert fyrir sig. Það er mín skoðun að gera þurfi athuganir ár eftir ár og að lítið þýði að horfa til skemmri tíma en tíu ára og endurmeta þá stöðuna,“ segir Guðmundur. Góð búmennska Ísland er í útjaðri þess svæðis sem rætt er um sem norðurslóðir og fer ekki varhluta af breyting- unum. Mjög kaldur sjór er fyrir norðan land og svalur sjór með Austurlandi og austurhluta Norð- urlands. Guðmundur segir að hlý- sjórinn sé að sækja þarna á. Það birtist meðal annars í því að skötu- selur, sem er hlýsjávartegund, er farinn að veiðast fyrir norðan. Guðmundur segir einnig gagn- legt að vita hvað er að gerast á ná- lægum hafsvæðum. „Það er góð búmennska að fylgjast með hvað er að gerast í kringum mann. Allir góðir bændur gá til veðurs,“ segir hann. Auka þarf vöktun lífríkis norðurslóða Morgunblaðið/Eva Björk Krabbi Lífmassinn í hafinu er mismunandi eftir svæðum og einnig fjöl- breytni tegunda. Það hafa tvö fyrstu ár botndýrarannsóknar leitt í ljós. Vísindamenn á Hafrann- sóknastofnun fengu styrk hjá AVS sjóðnum til að skoða botndýr sem koma með með- afla í haustralli á rann- sóknaskipinu Árna Friðriks- syni. Fengu þeir sér til aðstoðar erlenda sérfræðinga sem vanir eru að greina botn- dýr. Verkefnið hefur staðið í tvö ár og of snemmt að meta hvað er að gerast á botni hafsins við Ísland, að sögn Steinunnar Hilmu Ólafsdóttur, sérfræð- ings hjá Hafró. Hún segir þó að komnar séu upplýsingar um lífmassa í kringum landið og mismunandi tegundafjölbreyti- leika eftir svæðum. Styrkur AVS rennur út eftir árið í ár og óvissa er því um framhaldið. Steinunn segir að til þess að átta sig á breytingum þurfi að afla slíkra upplýsingar í lengri tíma, til dæmis 10-12 ár eins og Norðmenn og Rússar hafi gert í Barentshafi. Skoða botn- dýr í hafinu VERKEFNI HAFRÓ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.