Morgunblaðið - 18.05.2017, Page 23

Morgunblaðið - 18.05.2017, Page 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2017 hvar urðu þau veðrinu að bráð, ó barn, er þig hugðir borið með undursamleikans eigin þrotlausan brunn þér í brjósti, vinur? Við svofelld annarleg orð, sem einhver rödd lætur falla á vorn veg – eða að því er virðist vindurinn blæs gegnum strætin, dettur oss, svefngöngum vanans, oft drykklanga stund dofinn úr stirðnuðum limum. Og spunahljóð tómleikans lætur í eyrum vor lægra. Og leiðindin virðast í úrvinda hug vorum sefast. Og eitthvað, er svefnrofum líkist, á augnlok vor andar, vér áttum oss snöggvast til hálfs, og skilningi lostin hrópar í allsgáðri vitund vor sál: Hvar? (Jóhann Jónsson) Þín afastelpa, Elísabet Rut Haraldsdóttir. Elsku Torfi. Lífið verður öðruvísi þegar rödd þín hefur þagnað á Útvarpi Sögu og ég hætti að hitta þig á Fylkisvellinum með Fylkistrefil- inn, einan eða með Mikka og Jóel Torfa. Við vorum bæði frum- byggjar í gamla Árbæjarhverfinu þar sem frelsið var ótakmarkað. Margs er að minnast eins og Kristbjörg Sigurðardóttir sagði á facebook. Fyrstu minningarnar eru frá Elliðaánum. Við á skautum á veturna en að vaða í ánni á sumr- in, eða byggja fleka og torfhús úti í tanga. Seinna meir að reykja njóla, sem stóð stutt yfir hjá mér, þegar þetta barst inn í skólann okkar. Spennandi var að njósna um pörin sem voru að kela undir trönunum uppi í móa. Strákar jafnt sem stelpur teikuðu eða héngu aftan í bílum. Þá vorum við að stríða Möggu gömlu, Siggu og Óla sem bjuggu saman þar sem Þykkvibærinn er í dag því að okk- ur fannst þau frekar skrýtin. Bjarnaskógur í sömu götu var okkar leiksvæði en þar máttum við ekki vera og var stundum kom- ið að okkur af eigendum. Staurinn fyrir utan húsið hjá Óla Geir og Öddu var vinsæll til ýmissa leikja svo sem eins og Fallin spýta og fleira. Gamli litli skólinn okkur var hentugur í boltaleikinn Yfir. Seinna var skólinn notaður af Framfararfélagi Seláss og Árbæj- ar fyrir stúkufundi undir stjórn Laufeyjar Guðjónsdóttur og Ax- els Clausen. Strákarnir í hverfinu Einar, Númi, Maggi, Dóri, Jói, Gummi, Þorgeir og fleiri, voru seinna með skátafundi þar. Þá vorum við stelpurnar að kíkja á gluggana frekar öfundsjúkar því það var engin stelpudeild. Þegar unglingsárin tóku við þá var spennandi að vera í rauða strætó- skýlinu að reykja og kjafta saman. Eins að hanga í Selássjoppunni og á Geithálsi, því á þeim tíma voru engar félagsmiðstöðvar. Þegar við stelpurnar þurftum að passa yngri systkini eða börnin á Vatnsenda komu strákarnir að heimsækja okkur. Nokkur sumur tókum við á leigu rútu og fórum saman í Þórsmörk eða Húnaver en þá var samband þeirra Huldu Fríðu byrjað. Eftir það var ekki mikið samband, allir uppteknir við að ala upp börn og fleira og þú kominn á sjóinn á varðskipið Óðin. Ég er þakklát fyrir að hafa fengið að kveðja þig á spítalanum, sem var frekar sárt. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Megi allar góðar vættir bera þig inn í Sumarlandið. Aðstandendum votta ég inni- lega samúð. Missir þeirra er mik- ill. Eygló Stefánsdóttir. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyr höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi. (23. Davíðssálmur) Elsku Torfi hefur kvatt okkur eftir stutt en erfið veikindi. Þvílík sorg að kveðja þig, þú sem hefur staðið vaktina og verið okkur fjölskyldunni svo rosalega dýrmæddur í svo ótal mörg ár. Við hefðum ekki getað trúað því að við ættum ekki eftir að sjá þig aftur þegar við kvöddum þig síðast á stofunni fyrir bara nokkrum vik- um síðan, þá klipptir þú okkur Jó- hann Egil. Þú varst heimsins besti rakari og algjörlega magnaður persónuleiki með svo stóran kar- akter og ótrúlega góða og skemmtilega nærveru. Það orð sem lýsir þér best er einstakur. Þú varst algjörlega einstök mann- eskja og vinur litla mannsins, sanngjarn og með sterka réttlæt- iskennd. Þú varst með gott og gjöfult hjarta og hugsaðir vel um allt og alla. Þú hafðir svo marga góða kosti og þú áttir gott með að laða fólk að þér og segja sögur enda frábær sögumaður og mikill húmoristi. Við spjölluðum alltaf um heima og geima, þjóðfélags- mál, pólitík, trúmál, fjölskyldu- málin, gamla daga þegar þú varst á Óðni og margt, margt fleira. Við áttum margt sameiginlegt og höfðum að mörgu leyti svipaða sýn á lífið og tilveruna. Þú spurðir mig alltaf um pabba og hvernig honum gengi með Hótel Gríms- borgir því í gamla daga sást þú um hárgreiðsluna fyrir ungfrú Ísland- keppnina fyrir hann í Hollywood og á Broadway. Þú hafðir líka allt- af áhuga á að vita hvernig strákn- um okkar gengi í söngnum því á tímabili áttum við bæði stráka í Drengjakórnum. Þú varst líka frá- bær óperusöngvari og tókst eitt sinn lagið fyrir okkur á meðan við sátum í stólnum. Þú varst góður í öllu sem þú tókst þér fyrir hendur og elskaðir börnin þín og barna- börn meira en allt annað og varst svo rosalega stoltur af þeim. Elsku Torfi, þú hafðir sterka trú og miklar skoðanir á trúmálum, góða ferð yfir í eilífðina, við sjáumst svo aftur þegar okkar tími kemur. Guð geymi þig og varðveiti þína dýrmætu og fallegu minningu. Við vottum börnum, tengdabörnum, barnabörnum og fjölskyldunni allri okkar dýpstu samúð á þessari miklu sorgar- stundu. Guð blessi ykkur öll. Berglind, Svavar, og Jóhann Egill, Kvistalandi 6. Í dag kveð ég fagbróður minn Torfa Geirmundsson hársnyrti. Torfa kynntist ég snemma í náms- ferlinu, þá sem starfsmanni Land- helgisgæslunnar. Torfi vakti þá þegar athygli fyr- ir fróðleiksfýsn sína varðandi rak- arastarfið. Ekki grunaði mig þá hvað undir lá, en innan tíðar hóf Torfi nám í rakaraiðn hjá Sigur- páli mági sínum. Þar eftir lágu leiðir okkar Torfa saman gegnum starfið, alfarið á sviði félagsmála nema-, sveina- og meistarafélaga. Þar gegndi Torfi oftlega for- mannsstörfum í þágu allra félag- anna, og síðar fyrir Samband hár- greiðslu- og hárskerameistara í samstarfi við Norðurlanda- og alheimssambönd. Af eftirfylgni gekkst Torfi fyrir hinum ýmsu námskeiðum og menntun innan starfsgreinarinn- ar, ásamt því að sækja slíkt víðs- vegar sjálfur til sér reyndara fag- fólks. Þekkingunni útdeildi Torfi síðan af alhug. Störf Torfa sem fagkennara við Iðnskólann bera honum glöggt vitni og öfluðu honum virðingar þeirra er þar nutu leiðsagnar hans. Alls staðar var Torfi virkur á velli. Í senn ljúfur en fastur fyrir, snöggur að setja sig inn í málefnin og félagastörfin, líkt og þau væru honum í blóð borin. Torfi lét engan eiga neitt inni hjá sér og var ætíð reiðubúinn til skoðanaskipta í anda baráttu og réttlætis. Ég minnist atviks er upp kom á undirbúningsfundi fyrir Norður- landamót starfsgreinarinnar í Reykjavík. „Af alkunnu yfirlæti sínu og þekkingu“ svo í harðbrýnu sló, vildu fulltrúar tveggja ónefndra Norðurlandaþjóða ráða því hvern- ig við útfærðum ákveðinn þátt keppninnar. Ekki mátti annað skilja, en við værum íslenskir reynslulitlir mótshaldarar, vart taldir til Norðurlandaþjóða, og mættum ýmislegt læra. En Torfi var víðar inni í málum en margur hugði. Í stuttu máli á hárfínni ensku hóf Torfi upp raust sína með eftir- minnilegri kennslustund. „Ráðgjafarnir“ fengu snarlega að finna til tevatnsins, hvað Ísland hefði lagt til Norðurlandasam- starfs vítt og breitt, hér réðum við ferð í mótshaldi og engu yrði breytt! Ekkert hanastél kvaddi sér nánar hljóðs. Þvílík Íslandskynning, og af- greiðsla. Norðurlandamótið í Reykjavík fór fram af myndar- skap. Hársnyrtiiðnaðurinn kveður ljúfan dreng með virðingu og þökk fyrir frumkvæði og fórnfýsi. Aðstandendum er vottuð sam- úð. Þorberg Ólafsson. Torfi rakari er fallinn frá. Skarð fyrir skildi. Stofa hans við Hlemm var svo miklu meira en „bara“ rakarinn á horninu. Stofn- un. Vissulega var Hárhornið kjaftaklöpp og blaðamenn sóttust eftir því að komast í stólinn hjá frásagnaglöðum Torfa. En Torfi var örlátur og hafði ríka réttlæt- iskennd. Til hans leituðu ekki síð- ur þeir sem eiga undir högg að sækja. Torfi gat reynst þeim vel; rukkaði fyrir klippinguna eftir efnum; boðinn og búinn að veita lið. Ekki er ætlunin að teikna af honum helgimynd. Torfi hefði húmor fyrir því en kysi sannleik- ann. Hann var breyskur maður; ljóðelskur slarkari og kvennamað- ur. Ég dáðist ætíð að óttaleysi hans við það hvað öðrum, ein- hverjum sem enginn veit hver er, kann að finnast um hitt og þetta. Torfi átti oft erfitt með að sætta sig við rétttrúnaðarríkið Ísland. Furðu sætir hversu margir ólíkir þættir einkenndu Torfa. Torfi gat verið afskaplega fastur fyrir og erfiður þannig. Mikael sonur hans segir af því í Týnd í Paradís, hversu harður hann var á því að ekki mætti gefa fárveikum barnungum syni sínum blóð. Torfi var þá í Vottunum, hetja vegna einarðrar afstöðu sinnar en lenti fljótlega upp á kant við trúfélagið, lét seinna til sín taka í Ásatrúar- félaginu og gerðist síðar sérfróður um kínverska stjörnuspeki. Torfi var leitandi og vildi brjóta mál til mergjar. Þrjóskur en opinn fyrir nýjum möguleikum. Margþættur. Ungur fór hann til sjós á varðskipum og var stolt- ur af þeim ferli. En, óvænt venti hann kvæði sínu í kross og gerist hárgreiðslumeistari. Saltstorkinn gekk hann inn í glys og glaum há- tískunnar eins og ekkert væri eðli- legra. Þar varð hann vel metinn; kennari og gegndi trúnaðarstörf- um. Og pældi í faginu niður í kjöl því hann var grúskari. Ég vil votta fjölskyldu Torfa samúð, Torfa verður saknað en minningin um margbrotinn, ævin- týralegan og skemmtilegan mann lifir. Jakob Bjarnar Grétarsson. Meistari Torfi. Ég kynntist þér fyrir rúmu ári síðan, þegar Lilja sagði við mig að ég ætti nú bara að skella mér í hársnyrtinám og koma að vinna hjá ykkur á Hárhorninu. Hún sagðist ætla að tala við þig og þér fannst nú ekki mikið mál að bjóða mér að koma og prufa, til að sjá hvort þetta væri eitthvað sem ég vildi gera. Þú bættir því nú samt við að þú værir áður búinn að ráða fólk sem ætlaði sér ýmislegt, en hætti svo bara við. Ég ákvað að prufa og sjá hvort þetta væri eitt- hvað sem ég gæti og vildi vinna við. Eftir nokkrar vikur vissi ég að þetta væri einmitt það sem ég vildi gera, að vinna á Hárhorninu með þér og Lilju og ég ætlaði sko að sýna þér að sumir taka ákvörðun og halda henni til streitu. Ég skellti mér á fullri ferð í námið. Þér fannst svo ekkert tiltökumál að redda mér öllu dóti sem ég þurfti og keyptir meira að segja bækurnar. Það lýsir þér mjög vel. Þú varst alltaf tilbúinn að hjálpa og vera góður. Ég var alltaf svo spennt að koma til þín og segja þér einkunnirnar, þegar ég var búin í prófum, því ég fann að þú varst stoltur og ánægður með mig og hafðir óbilandi trú á mér. Þú hentir mér margoft í djúpu laugina og sagðir að þannig myndi ég læra mest. Þegar viðskiptavinir komu og báðu um eitthvað sem ég hafði ekkert endilega fullkomið sjálfstraust í og þú sagðir: Alma, hún gerir þetta, hún er mesti snill- ingurinn í þessu, þá svitnaði ég og horfði á þig og þú bara brostir með væntumþykju í augunum og ég fann að ég gat þetta, að þú stæðir þétt við bakið á mér. Þegar ég var búin að svitna mörgum sinnum í djúpu lauginni, fór mér að finnast að ég hefði alltaf tilheyrt Hár- horninu, þér og Lilju. Og þegar þú komst frá útlöndum og fórst að koma með gjafir handa mér, kon- unni minni og stelpunum mínum, þá fannst mér ég endanlega til- heyra. Það sem heillaði mig mest við þig var að allir fengu sömu móttökur og virðingu frá þér. Þú varst svo góður við alla og mér finnst ég svo ótrúlega heppin að hafa fengið að kynnast þér. Ég ákvað fljótlega að taka þig mér til fyrirmyndar sem fagmann og ekki síður sem manneskju. En nú ert þú farinn og Lilja fetar í þín stóru spor á Hárhorninu (hún er líka al- veg eins og þú) hún tekur við að passa upp á mig. Ég skal passa vel upp á hana fyrir þig. Það er merkilegt að hafa þekkt einhvern í svona stuttan tíma, sem samt á svona stóran stað í hjarta mínu. Þú, meistarinn minn, gerðir mig að betri manneskju og fyrir það verð ég alltaf þakklát. Knús á þig, elsku kallinn minn, ég á eftir að sakna þín. Svo æfi ég mig í rúlla upp permanentinu á 20 mínútum þér til heiðurs. Ættingjum og vinum votta ég mína dýpstu samúð. Kveðja Alma Brown. Mjög sorglegt fyrir mig að kveðja gamla vin minn Torfa Geir- mundsson eftir meira en 40 ára vináttu. Kostir Torfa voru svo margir, eins og allir vita sem þekktu hann. Hann var gjafmildur fram úr hófi, mjög góður hlustandi og um- fram allt góður maður. Kæri vinur að kveðja þig kveikir sorg í hjarta bið til guðs, að geyma þig alla daga bjarta. (Anna Dóra) Eins og Biblían segir: „Því svo elskaði Guð heiminn að hann gaf einkason sinn til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki heldur hafi eilíft líf.“ Anna Dóra Theódórsdóttir. Okkar ástkæri MÁR SIGURÐSSON, Geysi, Haukadal, lést á heimili sínu 3. maí. Jarðarförin fer fram frá Skálholtskirkju föstudaginn 19. maí klukkan 15. Sigríður Vilhjálmsdóttir Mábil Gróa Másdóttir Vilhjálmur Másson Sigurður Másson Elín Svafa Thoroddsen barnabörn GUÐMUNDUR KARLSSON, bóndi og smiður, Mýrum 3, er látinn. Útförin verður gerð frá Melstaðakirkju laugardaginn 27. maí klukkan 11. Erla Stefánsdóttir og fjölskylda Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐMUNDA ÁRNADÓTTIR, Skipasundi 64, Reykjavík, andaðist á Landspítalanum 13. maí. Útförin fer fram frá Áskirkju miðvikudaginn 24. maí klukkan 11. Ingiríður Oddsdóttir Óli Pétur Friðþjófsson Þórunn Oddsdóttir Örn Ottesen Hauksson Davíð Atli Oddsson Ingigerður Friðriksdóttir Hjörtur Oddsson Guðrún Þórisdóttir Eygló Íris Oddsdóttir Hannes Sampsted Dagný Oddsdóttir Jónas Hjartarson og barnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og systir, KATRÍN EIRÍKSDÓTTIR, lést föstudaginn 12. maí á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund. Útför hennar fer fram frá Áskirkju mánudaginn 22. maí klukkan 13. Kristín Sveinsdóttir Pétur Árni Carlsson Elín Á. Sveinsdóttir Sólveig K. Sveinsdóttir Már Grétar Pálsson Sigurbjörg E. Eiríksdóttir Pjetur Már Helgason ömmu- og langömmubörn Okkar yndislegi lífsförunautur og fyrirmynd, RÓBERT HELGI GRÄNZ þúsundþjalasmiður, Hjallabraut 33, Hafnarfirði, lést á Landspítalanum við Hringbraut laugardaginn 13. maí. Útförin fer fram frá Digraneskirkju í Kópavogi mánudaginn 22. maí klukkan 15. Jóhanna Ingimundardóttir Jenna Gränz Björgvin Jónsson Daði Gränz Sigurrós Halldórsdóttir Ólafur Gränz Erna Rósa Eyþórsdóttir og barnabörnin Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELÍN FRIÐRIKSDÓTTIR hússtjórnarkennari á Laugum, Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu, lést á Sunnuhlíð í Kópavogi 15. maí. Útförin fer fram frá Lindakirkju í Kópavogi miðvikudaginn 24. maí klukkan 15. Ágúst Óskarsson Helga Sigurðardóttir Hermann Óskarsson Karín M. Sveinbjörnsdóttir Knútur Óskarsson Knútur Óskarsson Una María Óskarsdóttir Helgi Birgisson barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.