Morgunblaðið - 18.05.2017, Síða 29

Morgunblaðið - 18.05.2017, Síða 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2017 • AMT eru hágæða pönnur úr 9 mm þykku áli • Allar pönnur mega fara inn í ofn við allt að 240° hita • 3 ára ábyrgð á verpingu • Ný byltingakennd viðloðunarfrí húð sem er sterkari en Teflon og án eiturefna • Nothæf fyrir allar eldavélar • Má setja í uppþvottavél • Kokkalands- liðið notar AMT potta og pönnur Úlfar Finnbjörnsson notar AMT potta og pönnur Allir velkomnir Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi Sími 540 3550 | progastro.is Opið alla virka daga kl. 9–18. Allt fyrir eldhúsið Þýskar hágæða pönnur frá AMT Ný sending WORLD’S BESTPAN „ “ THE * “The world‘s best pan”according to VKD, largest German Chefs Association * Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þið hafið mikla þörf fyrir að veita list- rænum og skapandi kröftum útrás. Munið að góð vinátta er gulli betri og hún er ekki ein- stefna. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú gætir öðlast nýja sýn á vin þinn í dag eða komist að einhverju óvæntu um hann. Fjölskyldumál eru í forgrunni og verða leidd til lykta. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú þarft að hafa mikið fyrir hlut- unum sem er allt í lagi ef þú bara gætir þess að skila vel unnu verki. Fáðu sjálfum þér réttu tólin til þess að standa vel að verki. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Útlitið í viðskiptum er gott núna, ekki síst allt sem tengist erlendum fjárfestingum, læknisfræði og lögum. Farðu hægt í sakirnar, snöggar breytingar endast skemur. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það er eins og þú eigir eitthvað erfitt með að koma skoðunum þínum á framfæri við aðra. Vertu þó viðbúinn svari, á hvern veg sem er. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú þarft ekki að gala uppi á hæsta hól til þess að koma skilaboðum til fólks. Nú er komið að þér að leggja í púkk mannlegrar þekkingar. Ekki reyna að stjórna því, sem læt- ur ekki að stjórn. 23. sept. - 22. okt.  Vog Hóf er best á hverjum hlut og það á líka við um það sem gert er í eigin þágu. Ef þú ert undantekingin, breyttu því þá nú. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Aðstæður heima fyrir eru kannski ekki eins og best verður á kosið en þeim má breyta ef vilji er fyrir hendi. Notaðu tækifærið og leitaðu leiða til að fegra umhverfi þitt. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þótt það freisti að láta berast með straumnum, skaltu íhuga, hvað er í húfi hverju sinni. Nú er kominn tími til þess að láta hend- ur standa fram úr ermum. 22. des. - 19. janúar Steingeit Einhver verður á vegi þínum sem á eftir að hafa mikil áhrif á líf þitt. Leitaðu nýrra leiða og aðstoðar ef með þarf. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú ert óvenju daumlynd/ur og óraunsæ/r í dag og ættir því að forðast við- ræður um mikilvæg viðskipti. Sýndu sam- starfsvilja og þolinmæði og reyndu að taka hlutunum ekki of alvarlega. 19. feb. - 20. mars Fiskar Taktu til á heimilinu og gerðu það meira aðlaðandi. Einnig kann að vera heppi- legt að stunda viðskipti í eða keppa í íþróttum. Í aðdraganda sæluviku eru hag-yrðingar brýndir til að taka þátt í vísnakeppni Safnahúss Skag- firðinga sem notið hefur vinsælda um áratugi. Hér var í gær birtur sá botn og vísa sem verðlaun hlutu en nánar er sagt frá keppninni í Fylki. Þar er margt svo vel kveðið að ég get ekki stillt mig um að taka stökur þaðan upp og birta í Vísnahorni. Fyrst er hringhenda eftir Jón Gissurarson í Víðimýrarseli: Þiðna móar, mildast tíð, minnka snjóalögin. Bráðum gróa grund og hlíð, grænka flóadrögin. Skagfirðingum lætur vel að yrkja um ágæti sitt. Fyrst er staka eftir Hilmi Jóhannesson: Upp skal vekja enn á ný afrek fyrri tíða. Bændur voru bestir í brugga, syngja og ríða. Magnús Geir Guðmundsson á Akureyri gerir grein fyrir sjálfum sér: Á afreks- sanna velli verka, vísna- á ég sögu merka. Í ættum fáa kenni klerka en kominn er af Hrólfi sterka. Af Hrólfi sterka er mikil ætt komin, Hrólfungar. Í Feyki er sagt að auk annarra barna hafi Hrólfur átt tvo Bjarna fyrir sonu; var ann- ar kallaður Verri-Bjarni, en annar Betri-Bjarni. „Ekki veit ég hvort Magnús sé af öðrum þeirra kom- inn,“ segir þar. Pétur Stefánsson kann að lýsa yfirburðum Skagfirðinga. Það er kunnugt vítt um völlu og veldur ýmsum líðan sárri, að Skagfirðingar eru í öllu utan vafa flestum skárri. Einar K. Guðfinnsson vakti at- hygli mína á þessari stöku Gunnars Rögnvaldssonar: Um það vitna verkin öll að vann þau smiður slyngur. Sólargeislar, grundir, fjöll, Guð var Skagfirðingur. Ég hef fyrir framan mig Safna- mál þar sem sagt er frá vísna- keppninni 1979. Þar þótti þessi vísa um orkuvandann frambærileg- ust en höfundar er ekki getið: Ef að tækniorkan þverr ógnar vandi mestur. Körlum mun þó koma verr ef kynorkuna brestur. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Frá vísnakeppni Skagfirðinga Í klípu HVORT YKKAR ER BETRI ÖKUMAÐUR? RÆÐIÐ ÞAÐ NÆSTU 100 KÍLÓMETRANA eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ALLAR GENGILBEINURNAR ERU VEIKAR Í DAG!“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að láta ekki vinnuna trufla sig í fríinu. STÓRT STEFNUMÓT Í KVÖLD, GRETTIR HÚN VILL AÐ MENNIRNIR SÍNIR LYKTI KARLMANNLEGA ÉG HEF EKKI BAÐAÐ MIG Í ÞRJÁ DAGA! ÞAÐ ÚTSKÝRIR DAUÐA BURKNANN HEFURÐU EINHVERN TÍMANN ÓSKAÐ ÞESS AÐ ÞÚ VÆRIR ÓSÝNILEGUR? EKKI MEÐ MITT GÓÐA ÚTLIT! Mikið hefur verið rætt um byrl-un síðustu daga. Er það vel! Byrlun er ógeð og þeir sem hana framkvæma að sama skapi ógeð. Hinsvegar hefur umræðan mikið til snúist um það hvað Þórunn Ant- onía Magnúsdóttir hljóti að vera illa gefin og vond manneskja. Nú vill svo til að Víkverji hefur haft kynni af Þórunni og veit að hún er hvorki vond né illa gefin. Það má vera að hugmyndin sé illa ígrunduð og ráðist ekki á rót vand- ans en það gefur ekki skotleyfi á hugmyndasmiðinn. x x x Meinið er augljóslega byrluninsjálf, það þarf engum að dylj- ast. Að fólk láti sér detta það í hug að eitra fyrir annað fólk er ofar skilningi Víkverja og óljóst hvað vakir fyrir þeim sem það gera. Þáttur í þeim vanda er þöggun. Þá er ekki átt við að fólki sé ráðlagt að hafa ekki hátt um það sem gerðist heldur vantrú þeirra sem eiga að láta sig málið varða. Oftar en tárum taki hafa Vík- verja borist til eyrna sögur af því að lögregla og heilbrigðisstarfsfólk neiti að taka mark á þeim sem eru undir áhrifum og segja sér hafa verið byrlaða ólyfjan. x x x Það þarf að uppræta þetta meinsem byrlun er. Að sjálfsögðu verður það bara gert með því að fólk láti sér ekki lengur detta það í hug að eitra fyrir aðra. Hinsvegar munu byrlarar halda uppteknum hætti meðan þeir komast upp með það. Til að finna sökudólg þarf fórn- arlamb og ef lögregla og heilbrigð- isstarfsfólk neitar að taka mark á þeim sem telja sig hafa orðið fyrir byrlun munum við aldrei komast að því hvar og hvenær þetta gerist og þannig mun vandinn bara aukast. x x x Niðurstaðan er einföld. Tölumsaman og hlustum hvert á annað í stað þess að álykta að sú/ sá sem ber sig illa hafi bara fengið sér einum drykk of mikið. vikverji@mbl.is Víkverji Finnið og sjáið að Drottinn er góður, sæll er sá maður sem leitar hælis hjá honum. (Sálmarnir 34:9)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.