Morgunblaðið - 18.05.2017, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 18.05.2017, Blaðsíða 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2017 Kvennakór Reykjavíkur hyggst fara um víðan völl á vortónleikum sínum í Guðríðarkirkju í kvöld kl. 20. „Eitt af því skemmtilegasta sem kórinn gerir er að takast á við alls- konar tónlist og það mun hann sannarlega gera þetta vorið. Við reynum okkur við smellna þýðingu Þórarins Eldjárns á ABBA-lagi úr Mamma Mía!, Bítlarnir leggja til nokkur lög og aðdáendur Prúðu- leikaranna verða ekki fyrir von- brigðum. Við dustum rykið af óborganlegu skúringanúmeri og tökumst á við krefjandi klapp í White Winter Hymnal. Ungversk, bandarísk, norsk, bresk og að sjálf- sögðu íslensk lög eru á dagskránni og eru þau hvert öðru fallegra. Efn- isskráin er í ætt við íslenskt sumar- veður svo gestir ættu að vera við öllu búnir, með sól í hjarta og bros á vör,“ segir í tilkynningu. Þar kemur fram að um undirleik sjá Birgir Bragason á bassa, Erik Robert Qvick á slagverk og Vilberg Viggósson á píanó, en stjórnandi er Ágota Joó. Miðar eru seldir hjá kór- konum, við innganginn og á net- fanginu: postur@kvennakorinn.is. Gull Kvennakór Reykjavíkur á Spáni sl. haust þar sem kórinn keppti í al- þjóðlegri kórakeppni og hlaut gull í öllum flokkum sem keppt var í. Vortónleikar Kvenna- kórs Reykjavíkur Hr. Örlygur og útvarpsþátturinn Kronik standa fyrir mikilli rapphá- tíð sem haldin verður í Laugardals- höllinni 7. júlí nk. Erlendir og inn- lendir rapparar munu stíga þar á svið og þeirra frægastur er banda- ríski rapparinn Young Thug. Krept And Konan frá Bretlandi koma einnig fram og hinir íslensku Emmsjé Gauti, Aron Can, Alvia Islandia, Úlfur Úlfur, Gísli Pálmi, Sturla Atlas, Herra Hnetusmjör, Birnir, Alexander Jarl, B – Ruff, Egill Spegill og Karitas. „Í ljósi þeirra grósku sem er í ís- lensku hiphop / rapp-senunni þá ákváðu skipuleggjendur að bæta við dagskrána sem áður hefur verið kynnt með Young Thug og kynna til leiks Kronik Live sem er eins dags tónlistarveisla í Laugardals- höll og fá til viðbótar alla þá lista- menn sem búnir eru að gera frá- bæra hluti síðustu misseri á Íslandi,“ segir í tilkynningu. Útvarpsþátturinn Kronik hóf göngu sína á ný á X-inu 97.7 fyrir hálfu ári og allir þeir íslensku lista- menn sem koma fram á hátíðinni hafa verið tíðir gestir í þáttunum og þótti því tilvalið að skella í góða veislu undir nafninu Kronik Live, að því er fram kemur í tilkynningu. Miðasala á Kronik Live fer fram á Tix.is. Rapphátíð haldin í Laugardalshöll Vinsæll Rapparinn Young Thug. Þorgerður Anna Gunnarsdóttir thorgerdur@mbl.is Lúðrasveit Þorlákshafnar mun halda þrenna tónleika á næstu dög- um þar sem hún flytur lög eftir einn ástsælasta og afkastamesta lagahöf- und Íslendinga, Magnús Þór Sig- mundsson. Sjálfur mun Magnús gegna hlutverki kynnis á tónleik- unum og segja áhorfendum sögur af lögunum og ferli sínum. Góðir gestir munu einnig koma fram með sveit- inni, en þar ber helst að nefna Stefán Jakobsson, sem er einna þekktastur fyrir að syngja með hljómsveitinni Dimmu. Fyrstu tónleikarnir fara fram í Ráðhúsi Ölfuss í Þorlákshöfn í kvöld. Föstudaginn 19. maí verða svo tón- leikar á Hótel Örk í Hveragerði og loks verða þeir í Gamla Bíói í Reykjavík sunnudaginn 21. maí. Tónleikarnir hefjast allir kl. 20.30. Blaðamaður heyrði í Stefáni Jak- obssyni fyrir tónleikana og spurði hann að því hvernig stæði á því að söngvari þungarokkssveitar væri fenginn í þetta verkefni. „Hún Ása Berglind Þórðardóttir, stjórnandi hljómsveitarinnar, hafði samband við mig en ég svosem spurði mig ekkert hvers vegna ég hefði verið valinn fram yfir einhvern annan,“ segir Stefán. Hann kveðst þekkja megnið af lögum Magnúsar og segist hafa verið ólmur í að fá að túlka þau. Út fyrir rammann „Mesta áskorunin er að vera sett- ur í aðstæður með lúðrasveit, sem ég hef ekki gert áður. Ég hef verið gestasöngvari með karlakórum og í hinum og þessum verkum og upp- setningum. Þegar ég fæ eitthvert verkefni sem er út fyrir minn ramma er ég alltaf til í að prófa,“ segir Stef- án og bætir því við að þetta sé eins- konar íþrótt hjá sér. Hann kveðst ekki muna eftir að hafa flutt verk Magnúsar áður op- inberlega, nema þá helst lagið „Þú átt mig ein“ í brúðkaupum. „Ég hef alltaf verið mikill aðdá- andi laganna hans og þá sérstaklega þegar hann flytur þau sjálfur. Hann er með einhverja aðra dýpt en hinir sem hafa flutt lögin hans,“ segir Stefán. Spurður að því hvort þetta reyni öðruvísi á hann en hann er vanur segir hann þetta að minnsta kosti ekki reyna sérstaklega mikið á rödd- ina. „Þetta snýst meira um túlkun á texta. Sum lögin eru mikil ættjarð- arljóð og það er mikið stolt í þeim. Stundum er það kuldi, stundum eymd en svo er það náttúrulega ást- in. Við erum ekki mikið að túlka ást- ina í Dimmu,“ segir Stefán. Fólk meira drukkið Hann segir Magnús þó fara yfir allan skalann í textagerð. „Ég vinn þannig að ég verð að fá tilfinningu fyrir því um hvað lagið fjallar. Ég verð að skilja textann og svo reyni ég að túlka hann,“ segir Stefán. Blaðamaður veltir því upp að Magnús hafi nú samið texta við tvö vinsæl Þjóðhátíðarlög og spyr hvort ekki leggist vel í Stefán að vera að fara að spila á hátíðinni í ár. Stefán svarar því játandi og segir að þetta verði svolítið öðruvísi fyrir hljóm- sveitarmeðlimi. „Fólk er kannski meira drukkið en við erum vanir og svo spilum við ekki oft fyrir fólk í pollagalla,“ segir Stefán en bætir því við að alltaf sé gaman að spila fyrir nýtt fólk við nýjar aðstæður. „Dimma er að gefa út nýja breið- skífu þann 19. maí og við höfum allt- af lagt mikla áherslu að fylgja plöt- unum okkar vel eftir svo við munum spila á eins mörgum stöðum og við mögulega komumst yfir í sumar,“ segir Stefán að lokum um það sem framundan er hjá honum og hljóm- sveitinni Dimmu. Mikil áskorun að syngja með lúðrasveit  Stefán Jakobsson kemur fram með Lúðrasveit Þorláks- hafnar á þrennum tónleikum  Flytja lög Magnúsar Þórs Ljósmynd/Aline Fournier Syngur Stefán Jakobsson. Morgunblaðið/RAX Kynnir Magnús Þór Sigmundsson. Miðasala og nánari upplýsingar 5% SÝND KL. 5.30SÝND KL. 10SÝND KL. 5.30, 8, 10.30 SÝND KL. 8, 10.20 SÝND KL. 5.30, 8 Tíska & förðun Fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 2. júní Fjallað verður um sumartískuna 2017 í fatnaði, förðun og snyrtingu auk umhirðu húðarinnar, dekur og fleira PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til kl. 16 mánudaginn 29. maí NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is SÉRBLAÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.