Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.2005, Blaðsíða 11

Freyr - 01.09.2005, Blaðsíða 11
NAUTGRIPIR kálfurinn sé nýlega dauður eða drepist í burðarliðnum, gildir það um 3 af hverjum 4 kálfum. 7,1% voru löngu dauðir. Nánari útlistun er á 4. mynd. Um heilsufar kúnna um burð- inn er það að segja að 6,8% kúnna voru skráðar með doða og 4,5% fastar hildir, aðrir sjúk- dómar voru mun sjaldgæfari, eins og sjá má á 5. mynd. Alls voru 39 kálfar vigtaðir og reyndust þeir vera 34,8 kg að meðaltali við burðinn. Þeir sem drápust voru ivið þyngri en þeir lifandi fæddu, 37,9 kg á móti 34 kg. Munurinn er þó naumast marktækur eins og sjá má á 6. mynd. Samhengi stærðar og van- halda er náið, allir af mjög litlu kálfunum lifðu en tæpur þriðj- ungur mjög stóru kálfanna drápust. Fylgni (R2) vanhalda- hlutfalls og stærðarflokks er 0,878. Nánara yfirlit er á 7. mynd. Þar sem um afturfótafæðingu var að ræða voru vanhöldin mjög mikil, eða 56,7%. Þarsem um legsnurðu var að ræða voru vanhöldin algjör, þau tilfelli eru hins vegar einungis tvö. Þar sem um engin burðarvandamál var að ræða, voru vanhöldin engu að síður 8,1%. Nánari útlistun er á 8. mynd. Vanhöld þegar engin burðar- aðstoð var veitt voru 5,9% en fóru stigvaxandi eftir því sem meiri hjálpar var þörf, þegar að- stoðar dýralæknis naut við voru vanhöldin tveir af hverjum þremur kálfum. Nánari útlistun á 9. mynd. Óverulegur munur reyndist vera á vanhöldum naut- og kvígukálfa, 18,6% á móti 18%. Þá ber að geta þess eins og áð- ur segir að tvíburafæðingar voru innan við 10 þannig að ekki ber að draga of víðtækar ályktanir af þeim tölum sem koma fram á 10. mynd. ÞRIÐJUNGS VANHÖLD UND- AN HEIMANAUTUM Sæðinganaut voru feður 77,1 % kálfanna og heimanaut feður 22,9% kálfanna. Verulegur munur reyndist vera á vanhöld- um eftir faðerni, 15,3% van- höld voru undan sæðinganaut- um en 31,2% undan heima- nautunum. Þess ber þó að geta að gera má ráð fyrir að heima- nautin séu nær eingöngu notuð á kvígur. Þriðjungs vanhöld verða þó að teljast gríðarlega mikil og meiri en niðurstöður skýrsluhaldsins hafa sýnt al- mennt hjá 1. kálfs kvígum. I því hafa vanhöld hjá þeim verið á bilinu 20-22% hin síðari ár. Hjá yfirgnæfandi hluta þeirra kúa sem fengið höfðu við heima- nauti, var tal ekki þekkt. HEILSUFAR KÚNNA Talsverður munur er á heilsufari kúnna um burðinn eftir því hvort kálfurinn lifir eða drepst. 4. mynd. Hvenær kálfurinn drepst. 5. mynd. Heilsufar kúnna um burðinn. 6. mynd. Afdrif kálfa og þungi. 45,0 Afdrif 7. mynd. Samhengi stærðar kálfsins og vanhalda. 300 35% Stæröarflokkur FREYR 09 2005 11

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.