Freyr - 01.09.2005, Síða 15
STEINSMÍÐI
sleggjuhöggin verða að hitta meitilinn beint
þannig að höggið beini meitlinum beint í þá
átt sem smiðurinn ætlast til. Þá á höggið að
vera fast og ákveðið. Oftast er það þó tækni
steinsmiðsins sem skiptir meira máli en
höggkrafturinn.
Við ásláttinn verður jafnframt að gæta
þess að öll egg meitilsins hvíli á steininum.
Athugið að ekki má nota meitilinn sem
hamar, þá eyðileggst eggin fljótt. Eggin á að
hvíla á steininum og slá síðan á meitilinn
með hamri eða sleggju.
ÖRYGGISMÁL
Við vinnu sem þessa er afar mikilvægt að
gæta alls öryggis. Öryggisgleraugu eru al-
gjör skylda. Það geta hrokkið agnir bæði
frá meitli og steini. Sjónin er eitt það dýr-
mætasta sem við eigum. Góðir vinnuvett-
lingar og skótau með harðri tá eru líka
mikilvæg við þessa vinnu. Þá skal þess
gætt að áhorfendur standi í hæfilegri fjar-
lægð, utan hættusvæðis.
fc^~***‘
r.v.'Æ
'*••••
l *•-»,
''*•• .
ísar
*•'»•»!//
Handmeitlar. Til vinstri er meitill með hvassan odd sem er góður á bungur á steinum. Á miðmyndinni er meitlinum beint lóðrétt á steininn.
Þannig myndast grunn rauf. Á myndinni til hægri er meitlinum beint á ská á steininn og þannig er höggvið burt stærra stykki.
Kantsteinarnir mega vera grófhöggnir á hliðunum. En það er mikil-
vægt að línurnar í hleðslunni séu í lagi og að efri hliðin myndi sam-
felldan flöt. ( vegghleðslu verður að fínhöggva steinana þannig að
þeir falli þétt saman. Hið sama gildir um fletina milli steinlaganna,
sem skulu liggja þétt saman. Fínhöggva skal hliðina sem snýr fram.
Smekksatriði er hvort sýna eigi borgötin.
Hér geta auðveldlega skotist
burt hættulegar stálflísar.
Kraga, eins og á þessum meitli,
verður að fjarlægja með
smergilskífu jafnóðum og þeir
myndast. Þegar smergilnum er
beitt verður að gæta þess að
meitillinn bláni ekki. Þá tapast
herslan í honum.
Fínvinnan við grjótið fer fram
þar sem því er komið fyrir. Hér
er steinsmiðurinn að ganga frá
kantsteinum og fella þá hvern
að öðrum. Stóri steinninn
fremst á myndinni er með
bungu sem þarf að fjarlægja.
Hér þarf að strika línu með tíg-
ulsteini og fjarlægja það mesta
með brothamri með tvær hvass-
ar brúnir. Fínvinnan er síðan
unnin með handmeitlum.
Innri egg brothamarsins er beint að steininum. Sleggjuhöggið á brot-
hamarinn verður að lenda beint á fyrirhugaða brotlínu. Til þess að
það sé hægt þarf skallinn á brothamrinum að vera svolítið kúptur.
15
FREYR 09 2005