Freyr - 01.09.2005, Qupperneq 25
SAUÐFJÁRRÆKT
er. Hér verður ekki fjallað um þá reynslu
sem fram kemur um eldri hrúta þó að
margir þeirra eigi enn stóra dætrahópa. Fyr-
ir þessa hrúta er reynslan yfirleitt í prýðis-
góðu samræmi við fyrri niðurstöður um
dætur þeirra. Til gamans má samt nefna að
fyrir stóra dætrahópa undan þeim gömlu
köppum Mjaldri 93-985 og Mola 93-986
munar að jafnaði um 0,1 lambi eftir á. Þeg-
ar dætrafjöldinn er kominn nokkuð á ann-
að þúsundið fer að muna um slíkan mun.
Ekkert lát er á mjög góðri frjósemi dætra
Lækjar 97-843 líkt og áður. Flotti 98-850 á
stóran dætrahóp, en þær ær eru í slöku
meðallagi. Dætur Túla 98-858 sýna áfram
prýðisfrjósemi. Ærnar undan Víði 98-887,
sem nú eru allra tvævetlur, sýna alls ekki
sömu yfirburði og þær gerðu gemlingsárið.
Yfirburðir hjá dætrum Kosts 98-895 virðast
fá rækilega staðfestingu.
Dætur Bessa 99-851 sýna jafnvel heldur
lakari frjósemi en áður en hins vegar
blómstra dætur Hörva 99-856 meira en
nokkru sinni. Tvævetlurnar undan Stygg
99-877 sýna góða frjósemi og miklu meiri
yfirburði en þær sýndu gemlingsárið. Dæt-
ur Kúða 99-888 sýna mun meiri frjósemi en
áður hefur sést hjá þeim. Þá á Partur 99-
914 mjög stóran hóp gemlinga sem virðist
liggja nánast alveg við meðaltalið.
Áll 00-868 og Lóði 00-871 sýna áfram
sínar góðu hliðar fyrir þennan eiginleika.
Hins vegar er stór dætrahópur undan Dóna
00-872 sem á alltof fá lömb. Dætur Leka
Ægir
Ægir 01-916, Seðill 01-!
00-880 sýna nokkuð líka mynd og árið áð-
ur. Dætur Eirs 00-881 eru réttu megin við
meðaltalið en dætur Mola 00-882 hins veg-
ar örlítið undir meðaltali. Dætur Rektors 00-
889 sýna líkt og á stðasta ári mikla yfirburði
í frjósemi. Dætur þeirra Abels 00-890,
Snúðs 00-911 og Snæs 00-915 eru allar í
meðallagi frjósamar. Dætur Dreitils 00-891
ná lítið að bæta neikvæða mynd frá fyrra ári
fyrir þennan eiginleika. Undan Tímon 00-
901 kemur nokkur hópur af veturgömlum
ám sem sýna yfirburðafrjósemi. Mjög stór
hópur veturgamalla dætra Spaks 00-909 og
dágóður hópur dætra Oturs 00-910 á sama
aldri gefa jákvæða mynd fyrir þessa hrúta
um þennan eiginleika.
Eins og hjá veturgömlu ánum á síðasta ári
sýna dætur Þokka 01-878 nú góða frjósemi,
dætur Hyls 01-883 eru eins og árið áður um
meðaltal og sama niðurstaða blasir við fyrir
veturgömlu ærnar undan Sóloni 01-899.
Dætur Seðils 01-902 eru undir meðaltali og
stór hópur veturgamalla áa undan Úða 01-
912 er í tæpu meðaltali. Hjá gríðarstórum
hópi veturgamalla áa undan Ægi 01-916
koma hins vegar fram yfirburðir í frjósemi
sem fáséðir eru.
Hjá yngsta árgangi stöðvahrútanna, sem
aðeins eiga veturgamlar dætur, kemur fram
mikill munur. Milli dætra Gára 02-904 og
Frosta 02-913, en báðir eiga mjög stóra
dætrahópa, kemur fram Ifkur munur og hjá
veturgömlu ánum undan þeim á Hesti árið
áður. Allt bendirtil að Frosti 02-913 sé fyrsti
Seðill
og Hylur 01-883 virðast allir hafa skarað eilíi
hrúturinn frá Hesti um mjög langt skeið
sem virðist ætla að skila dætrum sem ekki
eru nægjanlega frjósamar. Stór dætrahópur
undan Kunningja 02-903 sýnir mikla yfir-
burði í frjósemi og örfáar dætur Hækils 02-
906 skilja eftir sig ákaflega jákvæða mynd.
Lóði 00-871 hefur þegar staðfest sig sem fá-
dæma ærfaðir en dætur hans eru bæði
frjósamar og mjólkurlagnar.
Hylur
fram úr með vænleika lamba haustið 2004.
Hængur 98-848 hefur skilað öflugum afurðaám.
Lækur 97-843 á stóran dætrahóp á breytilegum aldri. Fyrri reynsla
af góðri frjósemi hjá þeim ám er staðfest og virðist ekkert lát vera
þar á.
Freyr 09 2005