Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.2005, Blaðsíða 28

Freyr - 01.09.2005, Blaðsíða 28
SAUÐFJÁRRÆKT BLUP kynbótamat fyrir kjötmatseigin- leika hjá íslensku sauðfé haustið 2005 IEftir Jón Viðar Jónmundsson, Bændasamtökum íslands, Ágúst Sigurðsson og Þorvald Kristjánsson, Landbúnaðarháskóla (slands Reynslan hefur þegar sýnt að BLUP kynbótamatið fyrir kjötmatseiginleika eru traustustu niðurstöður sem hægt er að styðjast við í vali kynbótagripa fyrir þessa eigin- leika. Með hverju ári verður sá upplýsingagrunnur, sem þarna er að baki, öflugri og öruggari. Núna bætast við kjötmatsupplýsingar frá haustinu 2004 og er það stærri viðbót upplýsinga en nokkru sinni áður vegna aukningar sem varð í skýrsluhaldinu á árinu 2004. Þaðan koma í upp- gjörið upplýsingar fyrir um 390 þúsund dilka. Að vísu eru gerðar kröfur um að upplýsingar um báða foreldra lambs- ins séu þekktar sem og upplýsingar um fæðingarár þeirra beggja. Þetta er skýringin á því að upplýsingamagn vex ekki í hlutfalli við aukningu í skýrsluhaldi. Meðal þeirra, sem voru að hefja skýrsluhald árið 2004, voru þessar upp- lýsingar víða ófullnægjandi. Dímon 01-932 hefur nú, með frekari upplýsingum um afkvæmi og aðra skylda einstaklinga, enn styrkt stöðu sína. Dímon er að stórum hluta Strandakind þó að hann sé fæddur og hafi vaxið upp í sunn- lensku umhverfi. Áhugavert verður að fylgjast með afkvæmum Dímons tilkomnum við sæðingar, en þau munu koma fram í hundr- aðatali vítt og breitt um land í haust. Reiknað er kynbótamat fyrir báða þætti kjötmatsins, fitu og gerð, og síðan er reiknuð heildareinkunn á grunni þess, þar sem fitumatið hefur 60% vægi og gerðin fær 40% vægi. Minnt skal á það að með BLUP matinu er verið að nota allar upplýsingar sem fyrir hendi eru i gögnunum fyrir hvern og einn einstakling. Þetta gefur mun betra mat en t.d. afkvæmarannsóknir vegna þess að fyrir flesta hrútana er að finna meira af upplýsingum í gögnunum sem koma frá skyldum einstaklingum, öðrum en aðeins afkvæmum þeirra. Mestu skiptir þetta fyrir sæð- ingarhrúta sem eiga jafnvel þúsundir dætra og sona i gögnum sem skila miklum við- bótarupplýsingum. Með BLUP matinu erum við einnig með upplýsingar sem gefa okkur kost á að bera saman niður- stöður fyrir gripi á milli búa en það er sérlega mikilvægt t.d. FREYR 09 2005 gagnvart vali á hrútum fyrir sæðingarstöðvarnar. Þriðja atriðið, sem miklu skiptir um þessar niðurstöður, er að þarna er leiðrétt vegna vals sem á sér stað ( gögnunum. Flestir þekkja að slíkt val er feikilega mikið í sauðfjárræktinni, bæði markvisst en einnig óbeint, t.d. vegna vals innan búa með tilliti til skyldleika. Á næstu árum verður von- andi hægt að vinna að endur- bótum á þessum útreikning- um. Þar er einkum að vænta landvinninga í sambandi við að nýta umfangsmiklar niður- stöður úr ómsjármælingum og Tafla 1. Hrútar með 135 eða meira í kynbótamati fyrir fitu og að lágmarki 90 í kynbótamat fyrir gerð Nafn Númer Bær Fjöldl Fita Gerð Heild Spakur 95-528 Vogum II 31 149 94 127,0 Þristur 99-242 Brekkubæ 263 145 90 123,0 Karl 99-318 Gröf 27 142 103 126,4 Eldur 03-131 Hesti 36 142 117 132,0 Fáfnir 99-645 Vatnsleysu 69 141 100 124,6 Háleggur 01-312 Dunki 139 141 92 121,4 Bjartur 02-015 Súluvöllum 76 141 108 127,8 Arður 03-218 Víðidalstungu 17 141 95 122,6 Lári 00-303 Kjarláksvöllum 263 139 93 120,6 Óþokki 02-206 Gautlöndum 64 139 108 126,6 Dóni 02-017 Staffelli 67 139 103 124,6 Lómur 97-111 Gröf 176 138 104 124,4 03-228 Engihlíð 30 138 95 120,8 Kóngur 02-410 Hauksstöðum 58 137 116 128,6 03-611 Laugalandi 32 137 105 124,2 03-034 Reykjum II 31 137 102 123,0 Manni 03-711 Ytri-Neslöndum 32 137 108 125,4 03-268 Arnarvatni 29 137 118 129,4 Busti 92-645 Engihlíð 44 136 93 118,8 Rammi 97-496 Húsavík 107 136 94 119,2 Lási 02-084 Bergsstöðum 95 136 110 125,6 Ylur 03-132 Hesti 33 136 132 134,4 Dropi 03-743 Brekku 16 136 94 119,2 Sjóður 03-783 Úlfsbæ 38 136 92 118,4 Einir 02-029 Víðidalstungu II 60 135 110 125,0 Fjölnir 02-016 Borgarfelli 72 135 107 123,8 Kaldi 03-379 Selalæk 60 135 106 123,4

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.