Freyr - 01.09.2005, Qupperneq 35
SVÍNARÆKT
Tafla 3. Framleiðsla og sala svínakjöts 2000-2004, kg
Framleiðsla kjöt, kg Sala kjöt, kg Útflutningur Sala kjöts á íbúa, kg
2000 4.782.700 4.790.651 17,0
2001 5.283.517 5.280.744 18,5
2002 6.010.933 5.777.444 173.695 20,1
2003 6.204.949 5.976.350 233.526 20,6
2004 5.597.498 5.475.074 123.712 18,7
17. desember voru flutt inn
223 svín frá 5 búum f Noregi.
Innflutningur svínanna gekk
mjög vel og dafna þau vel í
einangrunarstöðinni, þrátt fyrir
að mörg þeirra hafi verið ung
og sum nýfráfærð fyrir inn-
flutning. Er þetta í fyrsta sinn
sem SF( flytur inn svo mörg svín
í einu.
Rekstur stofnræktarbúsins á
Bjarnastöðum í Grímsnesi hélt
áfram á árinu og voru lífdýr
seld þaðan til bænda.
Heimasæðingar voru stund-
aðar áfram á svínabúunum.
Veruleg hagræðing á sér stað
með þessu móti. Bændur taka
sjálfir sæði úr göltunum, þynna
það og skipta í allt að 20 - 30
skammta. Gölturinn nýtist mun
betur með þessum hætti og
hentar mjög vel að stunda
heimasæðingar í hóprekstrar-
fyrirkomulagi nútíma svfnabú-
skapar.
FRAMLEIÐSLA OG SALA VERÐLAGSMÁL
Árið 2004 var framleiðsla 9,8 %
minni en árið 2003. Miðað við
árið 2000 hefur framleiðsla
svínakjöts aukist um rösklega
800 tonn eða 17%. Alls var
slátrað 73.007 svínum, þar af
71.669 grísum. Meðalfallþungi
grfsa var 75 kg.
Sala svínakjöts árið 2004 var
5.475 tonn eða 24,7% heildar-
kjötsölu f landinu. Þetta er
8,4% samdráttur frá árinu
2003. Miðað við árið 2000 hef-
ur sala svínakjöts aukist um 684
tonn eða 14%.
Á tímabilinu 2000 til 2004
hefur neysla svínakjöts aukist úr
17 kg á fbúa í 20,6 kg. Tafla 3
sýnir framleiðslu og sölu svína-
kjöts 2000-2004. Allt svínakjöt
er selt á innlendum markaði og
nær allt ferskt. Birgðahald er því
yfirleitt mjög lítið.
Þróun verðs til framleiðenda á
svínakjöti er sýnd í töflu 4. Verð
á svínakjöti til framleiðenda
hækkaði nokkuð á árinu 2004.
Framleiðendur eiga þó langt f
land með að ná sér eftir miklar
verðlækkanir og átök á kjöt-
markaði á síðari hluta ársins
2002 og á árinu 2003.
Tafla 4. Þróun framleiðenda-
verðs svínakjöts 2000 - 2004
Kjöt, meðal- verð ársins kr. pr. kg Kjöt, verð- lag 2002 kr. pr. kg
2000 207,4 244,38
2001 223 246,31
2002 182 191,81
2003 140 144,50
2004 208 208,00
FREYR 09 2005
35