Skátablaðið Faxi - 15.12.1967, Side 11

Skátablaðið Faxi - 15.12.1967, Side 11
 &> é # ‘* ;# > «&» Ji ÍV.Í / , e^kátarnir hér í Eyjum hafa mælzt til þess, að ég skrifaði nolckur °rð í blaðið þeirra Faxa, sem þeir hafa gefið byggðarsafninu og ég þakka fyrir hönd þess» Enn er mér í fersku minni, þegar Skátafélagið Faxi var stofnaðo Það var í febrúar 1938. Megin kjarni skátadrengjanna voru bá nemendur Gagnfræðaskólanso Áður en Faxi var stofnaður, var rætt um stofnun félagsins með okkur kennurum Gagnfræðaskólans og vegið og metið, hversu mikilvægt gildi skátafélagsskapurinn gæti haft fyrir þann hluta skólastarfsins," sem lýtur og laut að uppeldi unglingannao Þorsteinn Einarsson, síðar íþróttafulltrúi, var þá aðalkennari skólans hjá méro Við komum okkur saman um að láta til skarar skríða og vinn að stofnun skáta- felagsins. Margir efnilegir og mannvænlegir skólapiltar voru með í stofnunni og Gagnfræðaskólinn lánaði félagsskapnum herbergi í skolahusinu, þar sem skátarnir höfðu bæk stöð sína fyrstum sinn. Þar heldu þeir félagsfundi sína og höfðu þar aðra aðhlynningu, sem hverjum félagsskap er lifsnauðsýno Þannig var Gagnfræðaskólinn hér fyrsta féla^gsheimili skátanna. Og vissulega þurfti skólastofnunin ekki að sjá^eftir ÍDeirri fórno Skólinn fékk hana margfaldlega endur- ^reidda^ þvi að Skátafélagið Faxi, félagar þess, reyndust bratt hinir ahrifaríkustu og mæt'stu nemendur skólans, sem höfðu í hvívetna bætandi áhrif a skólann og skólalífið í heild. Fyrst og fremst gat það att ser^stað sökum þess, að skátapiltarnir fundu til ábyrgðar gagnvart sjalfum sér og félagsskapnum, félags, andanum og heirði Faxa. __Uppeldisahrif þessara ungmenna í Faxa, á jafnaldra sína urðu undragoð og heillavænlego Það sem fyrst og fremst gerði Faxa þá að því, góða, sem hamr. var piltunum sínum og^umhverfinu (Stúlknadeild eða stúlknasveit var ]oa ekki stofnað þar) í heild, var algjört bindindi bæði á tóbak og afengi, ..og. svo prúðmennskan og hugs jonaeldurinn, sem brann með þessu unga fólki.^ Eg hefi síðan fylgzt dálitið með þróun, skátafélagsins Faxa. Þegar skátarnir hér afneituðu^bindindisheiti félagsins síns og tóku upp aðra siði gagnstæða, beið félagsskapur þeirra mikinn hnekki. Þetta vil ég segja ykkur mínir kæru skátar, fyrst þið báðuð mig að sknfa nokkur orð í blaðið ykkar. Eg efast satt að segja um, að" Faxi hafi í annan tíma beðið meiri eða skaðvænlegri hnekki en eftir það að hann sleppti bindindisheitinu og bindindisstarfinu úr félags- 1 skapnum eða af stefnuskrá sinni. Ekki veit ég vel, hvernig þessu er_ nú varið hjá Skátafélaginu Faxai Ef til vill fæ ég svar við heirri_eftirgrennslan minni í blaðinu Faxa nú á næstunni. Bindindisstarfið Skátanna hér og hin heillavænlegu uppeldisáhrif af því og annarri mannvænlegri'framkpmu þeirra í heild, verður mér ávallt ríkast í huga, er ég minnist fyrstu ára Faxa. Þorsteinn Þ. Víglundsson

x

Skátablaðið Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.