Skátablaðið Faxi - 01.12.1990, Síða 7

Skátablaðið Faxi - 01.12.1990, Síða 7
Gilwell 1990 Gilwell námskeið var haldið á Úlfljóts- vatni síðustu vikuna í ágúst sl. Þátttak- endur voru 20 víðsvegar af landinu. Námskeiðið tókst mjög vel enda vel að því staðið. Leiðbeinendur voru margir okkar fremstu manna og kvenna í for- ingjaþjálfun auk þess sem nýir leiðbein- endur fengu að spreyta sig. Að venju var hópnum skipt í 4 flokka: Uglur, Dúfur, Gauka og Hrafna. Á dagskrá voru síðan ýmis fræðandi erindi um skátahreyfinguna og foringjastörf auk margháttaðra verklegra æfinga í útilífi og flokkastarfi. Ekki verður annað sagt en þátttakendur hafi lifað sig inn í starfið, jafnt ungir sem aldnir, en rúmlega20 ára aldursmunur var á yngsta og elsta þátt- takanda. Einnig var starfsmannahópur- inn stór. Stjórnandinn Björgvin Magnús- son hafði sér til fulltingis á annan tug leiðbeinenda, aðstoðarmanna og gesta- leiðbeinenda að ógleymdu frábæru mat- reiðsluliði sem ávallt gat glatt mannskap- inn, þó stjórnandinn væri að færa allt í kaf með ómennskum kröfum um vinnu- framlag. En hvað er Gilwell? Gilwell eroft kallað hápunkturforingja- þjálfunarinnar. Hugmyndin að Gilwell er komin frá B.P. sjálfum. Honum datt í hug að árangursríkt gæti verið að safna foringjum saman í langa útilegu og leyfa þeim að upplifa það að vera þátttakendur jafnframt því að þeim væri veitt markviss fræðsla. Nafn sitt draga námskeiðin af landareign í útjaðri London, sem skát- ahreyfingin eignaðist snemma og heitir Gilwell-Park, en þar var einmitt fyrsta Gilwell námskeiðið haldið árið 1919. Fram til ársins 1969 var öllum Gilwell námskeiðum í heiminum stýrt frá Gilwell- Park en þá var hverju bandalagi falið að annast alla sína foringjaþjálfun. Fyrsta Gilwell námskeiðið hér á landi var haldið árið 1959 og stjórnaði Björgvin Magnús- son flestum námskeiðum til 1973 og tók hann síðan upp þráðinn að nýju í fyrra. Gilwell námskeið er rúmlega viku löng útilega í tjöldum þar sem flokkarnir reisa sér tjaldbúð, sem fullnægir þörfum þeirra til þægilegrar dvalar við leik og störf. Einnig er farin 24 stunda markferð. Á hverju kvöldi eru haldnar kvöldvökur þar sem flokkarnir koma með skemmtiatriði samkvæmt fyrirmælum sem þeirfá stuttu fyrr. Á daginn er síöan kennsla og umræður ásamt verklegum æfingum. En þetta er aðeins fyrsti hluti Gilwell þjálfun- Skátaskálinn eða gamli golfskálinn eins og hann er oftast kallaður var byggður árið 1938 af Golfklúbbi Vest- mannaeyja. Klúbburinn hafði aðsetur sitt arinnár. Annar hlutinn er vinna að foring- jastörfum skv. áætlun í 4 mánuði undir handleiðslu leiðbeinenda. Þriðji hlutinn er svo skrifleg lausn verkefna sem lögð eru fyrir. Faxi hefur ekki haft þátttakenda á Gilwell í fjöldamörg ár en í ár varð breyting á, því einn drengur úr Eyjum var mættur á svæðið. Eins og áður hefur komið fram þá var hópnum skipt niður í fjóra flokka og lénti Eyjamaðurinn í flokk er heitir Gaukar. Þessi drengur(Högni) hafði það á orði að þetta væri besta og skemmtilegasta námskeið sem hann hefði farið á til þessa. Að lokum vill hann hvetja alla skáta til að reyna þetta þegar þeir hafa náð 18 ára aldri. þar, allt til ársins 1973, en þá byggði klúbburinn nýjan skála. Bæjarsjóður eignaðist skálann og lán- aði Skátafélaginu Faxa skálann með því skilyrði að það annaðist viðhald hans. Miklar endurbætur hafa verið gerðar á skálanum á þessu ári. Hann var málaður allur að utan, lagður hitakútur, steypt í gólfið í viðbyggingu, settir hlerar fyrir alla glugga og margt fleira. Aðaldrif- fjörðin í flestum þessum verkum var Gísli Sigmarsson og vill Skátafélagið Faxi þakka fyrir vel unnin verk. Útilegur eru haldnar þar um hverja helgi og er hann oftast pantaður langt fram í tímann. Enda er gífurlega vinsælt að fara í útilegur þar, þó sérstaklega hjá yngri krökkunum. Skálinn er einnig notaður af Hjálpar- sveit skáta í Vestmannaeyjum fyrir sjúkragæslu á þjóðhátíðum. A sumrin er hann opinn fyrir ferðamenn og tjaldgesti sem hreinlætisaðstaða. Þannig að skálinn er mikið notaður allt árið um kring og því fylgirmikil sjálfboða- vinna við skálann sem Skátafélagið Faxi hefur að mestu leyti séð um og skilað verki sínu með prýði. • Doppóttu fílarnir í útilegu. • Þátttakendur á Gilwell 1990. Skátaskálinn SKÁTABLAÐIÐ FAXI T

x

Skátablaðið Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.