Skátablaðið Faxi - 01.12.1990, Side 23
Dósasöfnun - Þjóðþrif
Hjálparstofnun kirkjunnar, Landssamband hjálparsveitar skáta og Bandalag íslenskra skáta hafa tekið
höndum saman um að stuðla að aukinni umhverfisvernd, endurnýtingu verðmæta og öflugra hjálpar-
björgunar- og æskulýðsstarfi. Samstarf þetta gengur undir heitinu ÞJÓÐÞRIF og er rekið undir kjörorðinu
„Við endurnýtum verðmæti“.
ÞJÓÐÞRIF gefa almenningi kost á að losa sig við einnota umbúðir undan gosdrykkjum og bjór a
einfaldan hátt.
• Bæjarbúar eru beðnir um að safna einnota umbúðum, sem til falla, í sérstaka plastpoka, sem bornir
verða í hús með blaði þessu.
• Tekið verður á móti pokunum laugardaginn 5. janúar 1991 í Skátaheimilinu við Faxastíg.
• Einnig geturfólk hringt í síma 12915 og beðið uml að pokarnir verði sóttir.
ÞJÓÐÞRIF koma svo umbúðunum til Endurvinnslunnar hf. og innheimta skilagjaldið. Afraksturinn rennur
til æskulýðs- og björgunarstarfa skátanna og hjálparstarfs á vegum Hjálparstofnunarinnar. Auk þess
verður hluta af væntanlegum ágóða varið til umhverfismála. H ver dós er ekki mikils virði, en tugmilljónir
dósa á ári skapa ýmis vandamál, ekki bara í náttúrunni eða á götum úti, heldur einnig á sorphaugum
landsmanna. Við sem stöndum að ÞJÓÐÞRIFUM vonumst til að sem flestir gefi okkur dósirnar sínar.
Þannig getum við eflt okkar mikilvægu starfsemi og um leið stuðlað að bættri umgengni við landið og
endurnýtingu verðmæta. Auðlindir heimsins eru ekki óþrjótandi, svo ekki er ráð nema í tíma sé tekið.
SÖFNUNARDAGUR
f/«T' í 5. jar 1. 1 99'
Allar einnota öl- og gosdrykkjaumbúðir Skátar verða við Skátaheimilið og taka við dósum og flöskum
f/«T' J 5. jai 1. 1 I99
Við veitum þjónustu þennan dag. Við sækjum heim.
Þú hringir - við komum. Síminn er 12915.
Hentu ekki öl- og gosdrykkjaumbúðum.
(*%9
BANDALAG ÍSLENSKRA SKÁTA
HJÁLPARSTOFNUN
KIRKJUNNAR
LANDSSAMBAND
HJÁLPARSVEITA
SKÁTA
SKÁTABLAÐIÐ FAXI
23