Skátablaðið Faxi - 01.12.1990, Blaðsíða 11

Skátablaðið Faxi - 01.12.1990, Blaðsíða 11
Hvaö er Landsmót skáta? Landsmót skáta er viku skátamót sem haldið er af Bandalagi íslenskra skáta. Þessi skátamót eru haldin víðsvegar um land fyrir skáta á aldrinum 11 ára og eldri. Skátamót þessi eru haldin á þriggja til fjögurra ára fresti. Þarna hittast skátar allstaðar að af landinu og einnig fjölmarg- ir frá öðrum löndum heimsins. Þetta er kjörinn staður til að eignast nýna vini allsstaðar að úr heiminum. Hópur ungra Eyjamanna tók þátt í sumar og hér á eftir munum við reyna að fræða ykkur um ferð þeirra. Landsmót skáta 1990. Undirbúningurinn: Undirbúningurinn fyrir Landsmótið var mikill. Sett var á laggirnar flokkakeppni og fengu flokkarnir mánaðarlega ný verkefni. Verkefnin voru byggð upp á því að flokkarnir gerðu nytsamlega hluti sem hægt yrði að nota á landsmótinu. Má þar nefna varðeldaskykkju, göngustaf, flokkskistu auk annars. Flokkurinn Pönd- ur fékk viðurkenningu fyrir göngustafi. Þátttakan hér í Eyjum var fremur léleg. Fyrir Landsmótið varfararstjórn skipuð af skátafélaginu Faxa og i fararstjórn voru Högni Arnarson, Sif Pálsdóttir, Páll Z, og fararsstjóri var Marinó Sigursteins- son. Undirbúningurinn hófst að fullu tveimur vikum fyrir Landsmótið, með fundarhöldum og vinnukvöldum. Þar var athugað var hvort tjöld og aðrir nauðsyn- legir hlutir væru í lagi. Akveðið hvernig hliðið ætti að vera og einhverjar einingar voru settar saman með hjálp HSV. Við þurftum að koma með eitt atriði sem átti að vera tívolí atriði, en það varatriði sem öll félög urðu að koma með. Fengum við Herjólfsgám lánaðan. Þar komum við fyrir öllum útbúnaði og fylgdi þessi gámur okkur allan tímann. Hvað var til boða á mótinu? Dagskráin var mjög fjölbreytt, henni var skipt niður í 8 lönd. 1. Undraland. Þar gerðust ótrúlegustu hlutir. Má þar nefna risabolta, risagolf, þriggja enda reipitog, bílarallý, kassabílarally, BMX keppni og margt fleira. 2. Þrauta og metaland. Þar reyndu flokkarnir að setja met í ótrúleg- ustu hlutum eins og pílukasti, bogfimi, sigi, að troða sér í símaklefa, fjallahjóla- rallý, skíðagöngu og mörgu fleiru. 3. Vatnaland. Þaðan komst enginn þurr sem á annað borð tók þátt og voru þrautirnar við eða út í Úlfljótsvatni. Á meðal þrauta þar má nefna vatnasafarí, bátsferðir, eyjaferðir, kanó, koddaslag, seglbretti, vatnsrennibraut og þá er ekki nærri allt talið. 4. ísland. Það var póstur sem var fyrst og fremst ætlaður til að efla skógrækt og landgræðslu í kringum Úlfljótsvatn, og fengu flokkarnir að spreyta sig í skógrækt. 5. Tækni og hikeland. í Tæknilandi var tækni höfð í fyrirrúmi. Má þar nefna Ijósmyndun, myndbandagerð, málmleit, heimsóknir í virkjanir og margt fleira. En í hikelandi var boðið uppá þrennskonar hike, lítið hike, dagshike og sólarhrings- hike, þar sem þeir allra hraustustu tóku þátt(ekki Hjalli). 6. Dróttskátaland. Þessi dagskrárliður var aðeins starfræktur á nóttunni, og gafst þá eldri skátum kostur á að spreyta sig á flest öllum löndunum. 7. Skátaland. Þarna var keppt í skátaí- þróttum þar sem einstaklingar og flokkar keppa í skemmtilegum þrautum. 8. Keppnisland. Keppt var í hefð- bundnum íþróttum eins og fótbolta, blaki og fl. Einnig var einstaklingskeppni á svæðinu. Þar gátu einstaklingar keppt í sundi o.fl. Ferðasagan. Loksins hófst ferðin sem allir höfðu beðið eftir. Það var laugardaginn 31 .júní. Ferðinni var heitið á Úlfljótsvatn. Þangað var komið um fjögurleytið og vorum við með þeim fyrstu á svæðið. Við byrjuðum á því að skípuleggja og koma dótinu okkar saman. Þegar því var lokið reistum við hliðið okkar með dyggri aðstoð nok- kurra meðlima HSV. • Fimleikastjarna félagsins Þennan sama dag byrjaði martröð hjá starfsmönnum í sjúkratjaldinu, en þess má geta að við unnum keppnina um mestu notkun á sjúkratjaldinu. Svo um kvöldið voru grillaðar pylsur, og farið að sofa kl.11 og kyrrð átti að vera komin á kl.12. Næsta dag, sunnudaginn 1. júlí, vöknuðum við kl. 10 og fengum okkur að borða. Dagurinn fór mest allur í að koma sér fyrir í tjöldunum og á svæðinu okkar. Mótið var sett kl.20.00. 3.dagur. Mánudagur 2.júlí. Þessi dagur var tileinkaður Vatnalandi hjá okkar þorpi, en félögunum var skipt í þorp eftir staðsetningu. Krakkarnir voru flest öll mjög ánægð með dagskrána í Vatnalandi og komu allir blautir og skítugir heim í þorpið. Um kvöldið var torgavarðeldur með nágrannafélögun- um. Dagur 4. Þriðjudagurinn 3.júní. Þessi dagur var tileinkaður landinu okkar, íslandi. Við fórum og gróðursett- um nokkur tré. Um kvöldið var Undral- andsvarðeldur sem ætlaður var öllum félögum og eftir það fóru allir í háttinn. Dagur 5. Miðvikudagur 4.júní. Eins og venjulega var ræst kl.08.00. og borðað. Þessi dagur var mjög skemmtilegur að allra mati, enda hitti svo heppilega á að við fórum í þrauta og metaland. Um kvöldið héldum við félags- varðeld og buðum skátum frá Dalvík og Akranesi. Kl.00.00. var kyrrð komin á. Dagur 6. Fimmtudagur 5.júlí. Þessi dagur vartileinkaður Undralandi. I Undralandi gerðist allt undarlegt. Við héldum svo Suðurlandsvarðeld, um kvöldið. Einnig komu þar nokkrir útlend- ingar frá ýmsum löndum, m.a. frá Banda- ríkjunum og Svíþjóð. Kakóið vinsæla var hitað um kvöldið eins og öll hin kvöldin. Dagur 7. Föstudagur 6.júlí. Tækni og hikeland var dagskrárliður okkar þennan dag. Flestir völdu sér litla „hækið" sem var aðeins að ganga í sund og heim aftur. Seinna um daginn var tívolíið og skemmtu okkar menn sér bara vel. Strax eftir tívolíið byrjaði hörku sveitaball sem stóð til kl.00.30. Laugardagur 7.júlí. Þá var frjáls dagur. Krakkarnir fengu að fara í land að eigin vali en veðrið var svo slæmt að ekki varð mikið úr því. Kl. 12.30 hófst heimsóknartíminn. Þenn- an sama dag var krossinn á Úlfljótsvatni vígður og heimsóttu okkur merkismenn eins og Forseti íslands, Biskup íslands og ekki má gleyma fjármálaráðherra íslands. Seinna um daginn var síðan Undralandsvarðeldur. Kyrrð var komin á kl.00.30. Sunnudagur 8.júlí. Dagurinn fór í að kveðja nýju vinina, ganga frá öllu og Ijúka mótinu. 1 1 SKÁTABLAÐIÐ FAXI

x

Skátablaðið Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.