Skátablaðið Faxi - 01.12.1990, Qupperneq 20

Skátablaðið Faxi - 01.12.1990, Qupperneq 20
Rabbað við Sigurð Þóri Jónsson Ihnébuxumogdúnúlpu Þann 6. ágúst s.l. voru 25 ár liðin frá stofnun Hjálparsveitar skáta í Vestmannaeyjum. Allan þennan tíma hefur Sigurður Þ. Jónsson setið í stjórn sveitarinnar. Þetta er lengsta samfellda stjórnarseta innan hjálparsveitar. • Sigurður Þórir Jónsson Hvernig stóð á því að þú byrjaðir að starfa með sveitinni? Fyrir Þjóðhátíðina 1965 í Eyjum komu forsvarsmenn hennar að máli við Jón Ögmundsson þáverandi félagsforingja Skátafélagsins Faxa og spurðu hann hvort eldri skátargætu aðstoðað þjóðhát- íðargesti, ef slys eða óhöpp bæru að höndum. Jón safnaði saman hópi eldri skáta sem hófu undirbúning að þessu starfi á. Þjóðhátíðinni. Nú, ég var í þessum hóp. Rétt fyrir Þjóðhátíðina fór ég reyndar á skátamót í Svíþjóð, þannig að ég var ekki á Þjóðhátíðinni. Eftir hátiðina var svo ákveðið að halda starfi hópsins áfram og úr varð Hjálparsveit skáta í Vestmannaeyjum. Reyndar höfö- um við áður tekið þátt í leitum að týndu fólki á vegum skátafélagsins. Þú varst kjörinn í fyrstu stjórn sveit- arinnar. Já, um haustið var ákveðið að sveitin þyrfti stjórn og á fyrsta aðafundinum í janúar 1966, var ég kosinn ritari og var það í nokkur ár. Ég varð svo aðstoðar- sveitarforingi 1970 og sveitarforingi frá 1972-74, eða í gosinu. Hefurðu samt ekki lengst af verið gjaldkeri? Þegar ég var sveitarforingi fór ég að skipta mér að fjármálunum og síðan hef ég tæpast verið laus við þau. Þegar ég lét af störfum sveitarforingja varð ég gjald- keri og hef verið það síðan, að einu ári undanskildu. Þá tók ég að mér að sjá um nýliðaþjálfun sveitarinnar. Hefurðu nokkra hugmynd um hversu miklir peningar hafa farið f gegnum kassann hjá þér? Nei, ertu vitlaus maður, en ég gæti fundið það út. En það er ansi mikill munur á verðgildi krónunnar á þessum árum. Nú eru fáar björgunar- og hjálpar- sveitir á landinu sem eiga eins mikin og góðan útbúnað og Vestmannaeyja- sveitin, segir það ekki nokkuð um tekjurnar? Tekjur, jú sveitin hefur haft allgóðar tekjur en þær hafa ekki komið af sjálfu sér. Þær hafa fengist með mikilli vinnu og útsjónarsemi félaga sveitarinnar og góð- um stuðningi og skilningi félagasamtaka og einstaklinga hér í Eyjum og víðar. Getur þú nefnt nokkur dæmi um á hverju þið hafið þénað? Blessaður vertu, við höfum gert flest. Við höfum skafið timbur, selt Ijósaperur, rukkað inn á fótboltavelli, unnið við gæslustörf á Þjóðhátíðum, bæði inn i Dal og um borð í Herjólfi, við seljum flugelda, eins og flestar aðrar hjálparsveitir, seljum neyðarvörur í skip og báta, við rekum tjaldstæði, rákum hótel í tvö sumur, sækjum í úteyjar, erum eð kökubasara og merkjasölu. Svo höfum við selt alls- konar nytjahluti fyrir LHS. Er þá fátt eitt nefnt. Sumt af þessu hefur verið bölvað puö en með þrautsegjunni hefst það. Svo höfum við líka fengið töluvert af peningum frá LHS, ekki má gleyma því. Hafið þið ekki unnið eitthvert verk- efni fyrir Póst og síma? Jú, við tókum að okkur að leggja síma og rafstrengi ásamt Ijósleiðara upp á Klif. Það minnir á að þið hafið verið í fremstu röð íslenskra fjallamanna og voruð reyndar frumkvöðlar á því sviði upp úrgosinu. Strax í byrjun lærðum voð að síga 20 SKÁTABLAÐIÐ FAXI

x

Skátablaðið Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.