Skátablaðið Faxi - 01.12.1990, Qupperneq 22
• Sigurður og telagar úr HSV hvíla lúin bein í Surtsey.
talinn ókleifur. Farartækið var gamall
Bedford slökkvibíll, sem við keyptum
eftir gosið. Við tókum dælubúnaðinn
úr og settum sæti í staðinn, settum
glugga á hliðarnar og ókum af stað.
Beddinn var og er enn, merkilegt
farartæki. Árið eftir fórum við svo
aftur í Alpana og klifum m.a. Matter-
horn.
Eitthvað hafa þessar ferðir kostað.
Það var nú meinið. Upp úr þessu höfðu
fæstir í hópnum lengur efni á að fara í
svo langar og dýrar klifurferðir út um
heim, þó viljinn væri fyrir hendi. Við
greiddum allar þessar ferðir úr eigin
vösum, fengum að vísu hópafslætti og
stundum rúmlega það en enga styrki eða
þvíumlíkt. Viðvorumsennilegaekki taldir
íþróttamenn.
Sveitin hefur marga hildina háð við
náttúruöflin, sjóinn, jökla og björg.
Það fer nú ekki hjá því að á aldarfjórð-
ungi lendi björgunarsveit í ýmsum erfið-
um verkefnum. Við höfum lent í leitum og
björgunaraðgerðum bæði hér í Eyjum og
uppá landi. Árlega er fjöldi útkalla. Það
eru leitir að týndu fólki, bjarganir úr
klettunum hér og aðstoðarstörf á sjó,
aðstoð í ofsaveðrum, sem eru algengari
í Eyjum en annarsstaðar í byggð á
fslandi og margt fleira mætti telja.
Hvað úr björgunarstarfinu er þér
minnisstæðast?
Þrennt kemur strax upp í hugann.
Heimaeyjargosið 1973 var hrikalegt. Þá
vann sveitin mikið starf. Ekki bara fyrstu
sólarhringana eftir gosið, heldur unnu
margir félaganna að björgunarstörfum í
hinum ýmsu deildum, allt til gosloka .
Þetta var stórkostleg reynsla. Þá gerðist
það 6. nóvember 1976 að fjórir félagar
voru við klifur í Gígjökli. Þeir hröpuðu
niður í jökulhvilft. Einn slasaðist svo
alvarlega að hann lést síðar af völdum
slyssins. Hann hét Kjartan Eggertsson
og þar misstum við góðan félaga. Þriðja
atriðið sem ég nefni er strand belgiska
togarans Pelagusar f nýja hrauninu aust-
ur á Heimaey. Þetta gerðist 21. janúar
1982. Við vorum kallaðir út um klukkan
04:00 um nóttina, ásamt Björgunarfélagi
Vestmannaeyja og slökkviliðinu. Okkur
tókst að bjarga fjórum skipbrotsmönnum
í land, en þrír urðu eftir um borð. Veðrið
var afleitt og gekk brimið stanslaust yfir
togarann, þar sem hann valt í hrauninu.
Á fjörunni um morgun inn tókst okkur að
bjarga tveimur í viðbót, en þá snéri
gæfan við okkur baki. Belginn sem eftir
var um borð, lenti í brotsjó. Það gerðist
þegar verið var að ná honum upp á
hvalbak togarans. Brotsjórinn þeytti hon-
um niður á þilfarið. Sveitarforinginn
okkar, Hannes K. Óskarsson reyndi að
ná honum en annar brotsjór tók hann og
Kristán Víkingsson, lækni. Þeir fórust
báðir ásamt Belganum. Þetta var ægilegt
slys og skelfileg I ífsreynsla fyrir okkur öll.
Verður Sigurður Þ. Jónsson í stjórn
HSV þegar sveitin verður 50 ára?
Nei, ætli þetta fari nú ekki að verða
nóg.
Þetta viðtal birtist í Hjáiparsveitartíðind-
um fyrir nokkru. Faxi fékk góðfúsiegt leyfi
þeirra til að endurbirta viðtalið.
ÞJÓNLSTA
Starfsfólk EIMSKIPS leggur metnað
sinn í að veita góða alhliða flutninga-
þjónustu. Þar gildir einu hvort leiðin
liggur á sjó eða landi, um strendur
íslands eða fjarlæga heimshluta.
22
SKÁTABLAÐIÐ'FAXI