Skátablaðið Faxi - 01.04.1994, Page 5

Skátablaðið Faxi - 01.04.1994, Page 5
5 Eftirtalin fyrirtæki senda fermingarbörnunum og fjölskyldum þeirra sínar bestu hamingjuóskir í tilefni fermingarinnar Kaffl María sf r Islandsflug r Olíuverslun Islands hf Prýði -gallerý-verslun Rannsóknarstofnun fískiðnaðarins Tvisturinn Veitingaskálinn Friðarhöfn Þór vélaverkstæði EIMSKIP hf Bæjarveitur Vm ísfélag Vestm. hf. Skósmíðaverkstæði Stefáns Bátaábyrgðarfélag Vestmannaeyja Þórður Svansson Byggingarverktaki MUNIÐ EFTIR SKATASKEYTUNUM MATARHORNIÐ Umsjón : Hörður S Friðriksson og Stefán H Fannbergsson ( allt er miðað \ið fjóra) FORRÉTTUR LÉTT SALAT MEÐ REYKTU KJÖTI Fvrirtaks leið til að nýta afganga svo úr verði góður og næringarríkur réttur. Nota má nánast hvaða reykt kjöt sem er og grænmeti í samræmi við árstíma. HRÁEFNI 1 kínakálshaus, 4 tómatar, 150g pasta (t.d.skrúfur, núðlur), 250g hangikjöt eða hamborgarhryggur (gott er að nota afganga). JÓGÚRTSÓSA. lOOg hrein jógúrt, 4 msk saxaður graslaukur. Saxið graslaukinn smátt og hrærið saman við jógúrtina. Setjið sósuna í skál eða hellið yfir salatið. SALAT l.Sjóðið pasta í léttsöltu vatni eftir leiðbeiningum á umbúðum og kælið það síðan. 2. Skerið kínakálið og tómatana. 3 Skerið kjötið í litla teninga. Best er að skera kjötið þegar það er kalt. 4. Blandið saman káli, tómötum, kjöti og kældu pasta í salatskál. MEÐLÆTI Beriö salatið fram með brauði. Undirbúningur 10 mínútur AÐALRÉTTUR KVÖLDSTUÐ MEÐ PEPPERONI OG PASTA. HRÁEFNI 250g pastahreiður (tagliatelle). SÓSA. 3 eggjahvítur, 3 eggjarauður, 1 dós sýrður rjómi eða 2dl súrmjólk, 2 msk mjólk, salt og pipar , 1 tsk múskatkrydd, 200- 300 g pepperoni pvlsu,2 msk rifinn ostur 26 % !Sjóðið pasta í léttsöltu vatni samkvæmt leiðbeiningum á pakka, gætið þess að sjóða ekki of mikið. SÓSA 2. Stífþeytið eggjahvítumar og setjið til hliðar. 3. Setjið eggjarauður í stóra skál, blandið mjólk og sýrðum rjóma eða súrmjólk saman við. 4. Kryddið með salti, pipar og múskati. 5. Skerið pcppcroni pylsuna í bita og hrærið út í sósuna. Blandið að lokum stífþevttum eggjahvítum saman við. 6. Setjið pastað í smurt eldfast mót, hellið sósunni yfir og stráið rifnum osti yfir. Bakið í 175*C heitum ofni í 30 mínútur. Undirbúningur 15 mínútur. Meðlæti: Berið fram með salati og brauði. EFTIRRÉTTUR BJÚGALDINSÍS Hafrakex mulið þrýst í form , brætt smjör. Bananar ofan á cftir smekk . ís settur ofan á Bananana og allt sett í frysti. Sósa 100 gr, suðusúkkulaði brætt saman 75 gr smjör. 2 dl flórsykur bætt út í og 1 dl af rjóma og látið sjóða í 5 -10 mínútur. Við mcðal hita, hræra vel á mcðan. Taka pottinn af hitanum og þá cr vanilludropum bætt í eftir smekk. Kælt og hellt yfir ísinn áður en borið cr fram.

x

Skátablaðið Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.