Skátablaðið Faxi - 01.04.1994, Page 14

Skátablaðið Faxi - 01.04.1994, Page 14
14 Hvað er að vera Kristin ? Eða kúnstin að iaga gott te. Hvað er kristin manneskja ? Við þessari spurningu eru mörg og ólík svör s.s. sá sem trúir á Guð, sá sem fer í kirkju, og sá sem er góður. Sumir segja að kristinn maður sé sá sem gefur Guöi tækifæri á að vinna í sér og í gegnum sig. En hvers vegna líkar tebollanum ekki við þennan drykk ? Hann kemur úr tekattli og s\'o er þetta Twinings Earl Grey te. Þetta te sem notað var var nefnilega gamalt innilokað te. Það hafði verið í kattlinum síðan í gær ojj. Það er mikið til af innilokuðum kristnidóm. Þar er mikið til af innilokuðum kristnidóm. Hann lítur vel út á yfirborðinu. Við getum kryddað drykkinn vel en samt er hann gamall og beyskur og óaðlaöandi. Hvers vegna ? Getur ástæðan verið sú að við höfum ekki opnað okkur fyrir Guði. Teketillinn getur ekki framleitt góða teið sjálfúr. Hann er bara hjálpartæki fyrir góðvildina. Guð vill hafa okkur sem sín hjálpartæki. Við fáum leyfi til að opna okkur fyrir góðvild hans. Við fáum að taka á móti kærleika og krafti Guðs i líf okkar, látum hann síast í okkur. Þessu má líkja við það hvernig maður lagar gott te. Þegar maður ætlar að laga gott te er best að nota tekönnu og hella í hana sjóðandi vatni, en einnig er hægt að nota tepoka sem dýft er í heitt vatn. Oft gerir maður þau mistök að láta tepokann ekki liggja nógu lengi í vatninu, og þá fáum við kannski drykk sem líkist tei en vantar allann kraft. Stundum líkist kristnidómurinn þessu hann verður þunnur og óaðlaðandi. Vegna þess að við höfum ekki gefið Guði tækifæri á að senda sinn kraft í okkur. " Þeir hafa á sér yfirskin guðhræðslunnar, en afneita krafti hennar. ( 2 Tím 3,5.) Þegar maður ætlar aö laga gott te er eins og áður sagði best að nota tekönnu. Til að fá gott te skiptir það ekki máli hvort tekannan sé frá Kína eða Japan og heldur ekki hvort hún sé falleg eða ljót. Gamla telaufið frá í gær þurfum viö aö fjarlægja úr tekattlinum. Eins þurfum við að játa syndir okkar fyrir Guði þá er hann trúr og réttlátur, svo að hann fyrirgefur okkur syndirnar og hreinsar okkur af ranglæti. Mikið af gömlu syndunum líma sig fasta viö okkur. og við þurfum hjálp til þess að hrcinsa okkur hið innra. Lestu 1 Jóh 1,9. Góðvildin kemur ekki frá okkur. en við berum áfram góðvild Guös og kærleika. Þegar við stillum okkur upp til þjónustu fyrir Guð, verðum við að blessun fy'rir aðra. Þýtt og cndursagl : Hrciðar Örn Stefánsson.

x

Skátablaðið Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.