Skátablaðið Faxi - 01.12.2003, Blaðsíða 2

Skátablaðið Faxi - 01.12.2003, Blaðsíða 2
Jólin, eru stœrsta hátíð ársins og hafa verið það frá ómunatíð. Meðal okkar skáta ríkir ekki hvað síst gleði um jólin, því að við fögnum þá birtu og hlýju. Það er von okkar að við og allir skátar, hvar sem er í heiminum, já og allir jafnt skátar sem aðrir, geta gert hlý og björt jól- þessi önnur jól hins nýja friðar. Við vonum, að Ijósið, sem tendrað var í hjörtum man- nanna á jólanóttina árið 1, megi einnig lýsa og verma okkur mennina nú um jólin 2003. Um jólin megum við ekki hugsa einungis um gjafir og góðgœti, nei. Við skulum athuga, dálítið hver munur er á okkur, sem lifum hér í landi velmegunarinnar og skátabræðrum okkar og systrum, sem berjast við hungur og kulda út um allan heim. Efvið athugum þetta þá getum við ekki annað en vonað að a.m.k. nú um jólin veitist þeim ein- hver hjálp. Upp úr jólunum fer að birta og birtan kemur með nýtt ár til okkar. Með nýtt ár, sem fullt er af vonum og verkefnum. Við skátar erum sólskins- börn, og mikill þáttur starfs okkar er bundinn við sól- skinið. Þess vegna verða jólin einnig okkar hátíð og við vonum að þau beri með sér birtu og yl að þessu sinni, ekki einungis hingað til okkar, heldur einnig inn í skammdegismyrkur hungurs og kulda um allan heim. Gleðileg jól Skátafélagið Faxi Óskutn öllum bæjarbúutn jfleðityra jóla með þökk fyrir viðskiptin á árinu Starfsfólli o$ eípdur Óskum öllum bæjarbúum «SPARISJÓÐUR VESTMANNAEYJA IMANDSBANKI 2 SKÁTABLAÐIÐ FAXI

x

Skátablaðið Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.