Skátablaðið Faxi - 01.12.2003, Blaðsíða 7

Skátablaðið Faxi - 01.12.2003, Blaðsíða 7
Örninn Hæ við erum flokkurinn Öminn. Meðlimir flokksins eru Kristinn, Gísli, Friðrik, Gísli M, Guðjón, Hafþór, Friðrik Þór og Geir. Skátaforinginn heitir Alma. Við eram búinn að fara í göngu, dagsferð, út í Löngu, vinna verkefni og fleira. Við erum með þrjá stráka sem spila á gítar og einn sem spilar á píanó. Við vígjumst 22 febrúar sem skátar og fáum vörðu. Við erum flestir 11 ára og gáfaðir og skemmtilegir. Jólakveðja Örninn Svörtu slöngurnar Halló halló við heitum Breki og Óli og erum einu strákamir á aldrinum 13- 14 ára og foringinn okkar heitir Sæþór. Við byrjuðum núna í september og erum búnir að vinna nokkur verkefni með skátaflokknum Örninn. Við eru líka búnir að vera að vinna að verkefnum til Svörtu slöngurnar. Óli, Sæþór og Breki að geta vígst sem skátar 22. febrúar. Svo fórum við í félagsútileguna sem var svaka stuð í. Og ætlum að gera fleira margt eftir áramót. Jólakveðja Breki, Óli og Sœþór 111 Útgefið í desember 2003 Útgefandi: Skátafélagið Faxi Ábyrgðarmaður: Marinó Sigursteinsson Ritstjórar: Erna Georgsdóttir og Elfn Árnadóttir Auglýsingar: D.S. Westmenn Ritnefnd: D.S. Westmenn Prófarkalestur: Rósa og Sigurleif Prentvinna: Prentsm. Eyrún ehf. Erna og skátar ofan af íslandi. Helgina 7-9 mars var námskeið eða Vetraskátun eins og það er kallað. Var það haldið á Ulfljótsvatni og voru um 25 manns sem luku því. Foringjamir voru Gunnur, Bergdís, Amar, Gísli og Anna María. Um kvöldið var okkur skipt í hópa og áttum við að sofa með þessum krökkum sem við lentum með í her- bergi. Um morguninn var morgunmatur en þá fengum við einn gaffal sem við máttum ekki tína því þá gátum við ekki borðað matinn okkar og smurt brauðið okkar og fleira. En þessi gaffla leikur snérist um það að maður átti að stela göfflum frá öðrum en reyna að passa sinn, svo hann sem var með flestu gafflana í lok námskeiðsins vann og var það Ema í fræbæra félaginu Faxa. Við fórum í göngu sem tók 5-6 tíma og var það frekar erfið ganga. Við gengum að helli sem er við Þingvallarvatn. Um kvöldið fómm við í ratleik sem snérist um það að finna 4 stafi sem hægt var að finna á 8 stöðum. Þegar við vorum búin að finna alla stafina þurftum við að raða þeim saman og út kom LAUT. Það þýddi að við áttum að fara í lautina sem var þar, þegar við komum þangað var haldin kvöld- vaka og var varð- eldur og heppn- aðist hún mjög vel. Daginn eftir fórum við í pósta- leik sem var um áttavita sem var mjög skemmti- legur og fróðlegur. Um klukkan 3 kom rúta og sótti okkur og keyrði okkur í Herjólf. í þessari ferða vom: Elín, Ema, Sandra, Þóra, Sigrún, Sara og Alma. Elín Arnadóttir SKÁTABLAÐIÐ FAXI 7

x

Skátablaðið Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.