Skátablaðið Faxi - 01.12.2003, Side 14

Skátablaðið Faxi - 01.12.2003, Side 14
Rollan 2003 Við lögðum á stað á flokksforingja námskeið full tilhlökkunar með seinni ferð Herjólfs. Þegar við komum upp í Alviðru tóku Jenný, Bergdís og Unnsteinn á móti okkur og vorum við sérstaklega ánægð að sjá Bergdísi og Unnstein þar sem við höfðum áður verið á námskeiði þar sem þau voru leið- beinendur á. Þegar við vorum nokkurn veginn búinn að koma okkur fyrir fött- uðum að við áttum að koma með mat sjálf Setninginn var með skemmtilegu sniði og vorum við látinn segja nafnið okkar, fæðingardag og stjörnumerki og hentum í leiðinni bandi á milli. Við vorum svo látin henda því til baka eftir smá ræðu frá Jenný;o) Svo var okkur skipt í flokka og flokkamir fundu sér nafn.. Flokkamir hétu Dollý, Heimalingar og Gemlingar. Eftir setninguna vorum við látin fá skrif- færi og áttum við að undirbúa útilegu fyrir 10-12 ára krakka.. Síðan var haldin kvöldvaka sem var mjög skemmtileg. Unnsteinn kom svo til okkar og sagði okkur draugasögu sem við hlógum mest af en einhverjir urðu þó hræddir. Á laugadagsmorguninn vorum við vakin með söngi og sfðan í skálaskoðun sem gekk vel. Fáninn var með skemmti- legu sniði og var þar enginn fánastöng eða fáni notaður. Heldur vorum við látinn ímynda okkur stöngina og fánan. Eftir morgunmatinn fórum við svo í póstaleik; þar sem við lærðum að búa til gerfisár, undirbúa hike, leiki og eitthver klöpp. Þegar við komum þangað voru foringjamir að baka skonsur og meðan við borðuðum þá fórum við í leik sem var þannig að maður fékk eitthvert hlutverk t.d. fá að smakka hjá öðrum, vera að fikta í hárinu og segja hvað það er yndislegt á öðrum, segja frá hvað leiðbeinendurnir voru frábærir og margt fleira. Eftir kaffið var hver hópur látin kenna öðrum t.d. leiki, skyndihjálp, hnúta og fleira, og kendum við Faxamir hinum t.d. Sto sem er einn vinsælasti leikurinn í eyjum. Eftir matinn var svo haldin kvöldvaka á hefbundinn hátt en mjög skemmtilega. Þegar kvöldvakan var búinn fóru öll lömbin út í Sto en foristusauðirnir fóru að undirbúa eitthvað.. Þegar við vorum hálfnuð í leiknum kom Unnsteinn og tók einn inn í einu.. Þegar við komum inn tók við allt dimmt, kerti og steinar eftir einum ganginum og við endan sátu Jenný og Bergdís, þar vomm við látin fara með eitthvert heiti á kindamáli. Vítamín 7.-9. Við vorum kominn upp á Ulfljótsvatn um 9 leitið eftir að hafa beðið í 2 klukkutíma á litlu kaffistofunni eftir rútunni. Þegar búið var að koma sér fyrir var kynntur leikur námskeiðsins og var það vinaleikur og var öllum hópnum skipt niður í marga flokka og hétu þeir vinir á mörgum tungumálum eins og t.d. vener, friends, freunde og amigosz. Næsta dag vorum við vakinn kl. 8 og þá var skálaskoðun og auðvita morgun- leikfimi. Þegar þessu lauk var morgun- matur og þá var kynntur annar leikur fyrir okkur... hann var þannig að við fengum einn gaffal og þurftum að passa hann allan tíman því allir máttu stela honum. Þessi gaffall átti að notast sem allt eins og skeið með morgunmatnum og hnífur í kvöldmatnum. Þannig að þetta var keppni hver myndi geta safnað flestum göfflum en ef þú misstir þinn gaffal, þá bara greyið þú að reyna að borða matinn. Eftir morgunverkinn þá var haldið í póstaleik og var meðal annars kennt á áttavita, farið í sig, þrautabraut, búin til hveitibolti og fánapóstur. Ekki gátu allir sigið því það kom hópur af útlendingum sem voru að fara að síga. Eftir póstaleikinn sem tók reyndar allan daginn var farið að búa til Þegar við vorum búinn að því fengum við eitthvern vondan ávöxt/grænmeti og vatn. Vorum svo látinn býða eftir hinum og hlusta á þau. Eftir þessa skemmtilegu athöfn fengum við okkur kvöldkaffi og fórum svo í háttinn, allir mjög þreyttir. Á sunnudeginum vorum við vakin man ekki hvemig. Og allir fóru út í fánan, morgunleikfimina og svo í morgunmat.. Síðan var haldið í póstaleik þar sem farið var yfir útilegur, sveitaráðið og svo vetrarstarfið.. Þegar því var lokið skellt- um við okkur í að þrífa húsið og svo slíta. Leiðbeinendumir voru frábærir Takk fyrir okkur. Alma Guðnadóttir febrúar 2003 skemmtiatriði á því tungumáli sem hópamir hétu. T.d. tælenska, þýsku, frönsku, dönsku, spænsku og fleiri tungumálum. Eftir hræðilegan mat var farið upp í KSÚ og var 'kvöldvakan haldinn þar en þar var hjálparsveit skáta í Hveragerði. Þegar jjessu öllu lauk þá var farið í næturleik sem var mjög skemmtilegur því allir hóparnir voru bundnir saman á höndum og áttu hinir hóparnir að reyna að ná böndunum sem var búið að binda um lappimar á okkur og sá hópur vann sem var kominn með flestu böndin, en þetta gekk svolítið brösuglega því að það var snjór upp að hnjám og erfitt að vera í eltingarleik þannig. Loksins þegar allir hóparnir vom kominir kaldir og ánægðir þá var tilbúið heitt kakó og kex. Við vöknuðum um 10 leitið og þá var fyrirlestur um alheimsskátun. Eftir þetta og morgunverkin þá var farið að taka til í skálunum. Um 2 leitið vom slitin og fengu allir að vita hver var þeirra leyni- vinur og þeir sem tóku illa til þurftu að fara aftur inn að taka betur til. Svo kom rútnan og keyrði okkur í bæinn. Þeir sem vom á þessu námskeiði voru: Elín, Erna, Alma, Sara, Sigrún, Sandra, Þóra, Eyþór, Sæþór og Hjölli. Erna Georgsdóttir Óskum ölíum bæjarbúuir gleðilegra jól, mco þökk fyrir viðskiptin á á 1 a rinu Reynr/teie íur 14 SKÁTABLAÐIÐ FAXI

x

Skátablaðið Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.